Davíð Oddsson - einn besti sonur Íslands

Davíð Oddsson, þessi hæfileikaríki maður, sem ég hef fylgst með í árafjöld - og metið mikils sem landsfaðir - hefur sem slíkur þurft að lifa við einelti frá stórum hópi fólks.

Ég er ekki að segja að maðurinn sé hafinn yfir gagnrýni frekar en aðrir, en allir eiga skilið sanngjarna umfjöllun. Davíð hefur ekki notið eðlilegrar sanngirni, heldur þvert á móti verið lagður í einelti.

Nú er tími til kominn að þessi landsfaðir og mikilvirki stjórnmálamaður fái sína uppreisn.

Ég tek fram að manninn þekki ég eingöngu sem áhorfandi að verkum hans, gegnum allann hans feril og það sem ég hef séð er grundvöllur þeirra orða sem ég set hér fram.

Davíð er sá landsfaðir sem ég lít til sem leiðtoga þjóðarinnar.


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband