Frelsið er eina leiðin til þroska

Frelsið er eina leiðin til þroska.

Frelsi án siðferðis er afskræming allra góðra verka.

Frelsi sem er misnotað hefur glatað gildi sínu.

Samvinna og samhugur er hið góða hreyfiafl samfélagsins.

Þegar framangreindar staðhæfingar eru skoðaðar þá er ljóst að allir stjórnmálaflokkar hafa eitthvað til síns ágætis. Þeir hafa allir eitthvað að leggja til þjóðfélagsumræðunnar.

Einhverra hluta vegna er mjög ríkt í okkar ágætu þjóð að gera allt of lítið af því að líta til þess sem sameinar okkur, sem þó er svo ákaflega margt.

Okkur væri mjög hollt að nota nú tækifærið, á þessum sérstöku tímamótum, og breyta okkar hugsunarhætti og atferli og rækta þau gildi sem að framan greinir. Þannig væri best unnið að endurbótum fyrir mistök fortíðarinnar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband