Lífið er spennandi ævintýri !

Lífið er spennandi ævintýri !

Þetta get ég sagt vegna þess að ég hef lifað tímana tvenna og meira til. Fæddur á fyrri hluta síðustu aldar, og get sagt frá því að á mínu æskuheimili var aldrei sími né bifreið.  Þó var einskis saknað. Matur til að borða, þó hann væri stundum skammtaður, sérstaklega í seinna heimsstríði. Skóli var í kaupstaðnum og ég fékk að læra, þó maður skyldi ekki mikilvægi þess á þeim tíma. Hlýtt var í húsinu, með kolakyndingunni framan af og síðar olíukyndingu. Náttúran og árstíðirnar gengu eins fyrir sig eins og þær gera í dag.

Gleði í sinni var eðlilegt ástand.

Tækniöldin kom til mín með ritvélinni gömlu, sem ég keypti þegar ég var 12 ára. Mín fyrsta vél hefur líklega verið smíðuð um aldamótin 1900 eða örlítið seinna. Það var spennandi að læra að prenta með því að horfa ekki á stafina. Mörgum árum seinna fór ég inn í Bókabúð Jónasar Tómassonar tónskálds og organista á Ísafirði og gerði kaupmála við Jónas sjálfan, líklega hefur það verið um 1950. Ég man að það tók mig allann veturinn að greiða Remington ritvélina sem ég keypti af honum, með mánaðarlegum afborgunum, en það var þroskandi reynsla.

Tölvuöldin eins og hún er í dag, fæddist í mínu tilviki nálægt 1980, þegar Commadore tölvurnar komu til Íslands. Þær voru keyptar sem skrifstofutæki og ég var einn af þeim fyrstu hér á landi, sem freistaðist til að njóta þessarar uppfinningar.

Enginn sá fyrir sér allar þessar nýungar og möguleika sem nú bjóðast hverjum og einum.

Í gamla daga voru það dagblöð allra flokka sem útbreiddu „sannleikann" til lesenda sinna.

Mér er minnisstætt þegar Stalín dó ! Það var sem stórmenni hefði farið fyrir ætternisstapa og það þyrmdi yfir margann manninn, sérstaklega í ákveðnum hópi. Mörgum árum seinna var það svo opinberað öllum mönnum, með sannleikstali sjálfs Krúsjoffs  að enginn ljómi var yfir þessum forystumanni. Það eina sem hann hafði áhrif á gagnvart þjóð sinni, var að skapa henni miklar hörmungar og skilja eftir sig blóð og tár um allt samfélagið. Það er mikið sem rússneska þjóðin hefur þurft að þola af þeim sem áttu að leiða hana til farsældar. En eins og margir vita þá er þjáningin sá jarðvegur sem viskan sprettur úr. Ég hef það eftir sjáandanum Edgar Cayce að hið kærleiksríka og upplýsta mannkyn muni koma frá Rússlandi í framtíðinni, vegna þess að sú þjóð mun mynda svo mikinn þroska gegnum sína þjáningasögu.

Með því að líta nú fram til okkar tíma þá gengur hin íslenska þjóð þjóð gegnum fjárhagshörmungar sem eru reiðarslag fyrir alla. Ég má ekki til þess hugsa, að þetta mótlæti verði ekki notað til að læra af því og koma hér á heilbrigðara þjóðfélagi, þar sem allir þegnar eiga sér tilverurétt og fá lifað með eðlilegri reisn.

Í sjálfshjálparreglum er frá því sagt að maður eigi að líta á „vandamál" sem viðfangsefni. Með því er væntanlega átt við að mótlætið verði léttbærara og auðleystara. Því trúi ég að sé alveg rétt.

Ég vil enda þetta spjall á því að óska þjóð minni gleðilegs sumars með þeirri einlægu von að landið verði áfram góður verustaður fyrir okkur og þjóðlífið blómgist og verði mennskara en verið hefur um skeið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband