26.4.2010 | 00:25
Hvernig á að mæla gæði trúarbragða
Trúarbrögðin eru leið mannsins til að tengjast Skapara himins og jarðar". Miklar deilur hafa verið milli hinna ýmsu trúarbragða, um hver eru réttu trúarbrögðin", einu sönnu trúarbrögðin" o.s.frv.
Ég hef hér aðferð til að mæla gæði trúarbragða, hvorki meira né minna !
Eins og þið sjáið, hef ég viljandi valið þá leið, að setja mynd til áréttingar efni þessa pístils, úr náttúrunni. Sleppt því að setja ákveðin trúarbragðatákn. Þannig langar mig til að nálgast þessa spurningu. Um leið og verk mannanna taka við, þá byrja deilurnar að koma upp. Allir trúarhópar geta gengið að Hraunfossum og verið sammála um að hann sé listasmíð og fegurð sem upphefur andann. Einnig geta þessir hópar farið saman inn í fallegan skrúðgarð og notið þar fegurðar sem er ofar hverri kröfu".
Gildi tilbeiðslunnar er sameiginlegt öllum trúarbrögðum, sem leiðin til að nálgast Skaparann. Fegurðin sem okkur er gefin í náttúrunni hjálpar okkur til að nálgast þetta stórkostlega afl sem getur látið moldina breytast í þvílíkt skrúð. Einnig er sagt að við séum af jörðu komin. Er þetta ekki nóg til að við getum opnað augun og náð að skilja eitthvað meira en sem nemur okkar nánasta rými.
Nú vil ég ekki draga lengur að koma með svar við spurningunni hér að ofan.
Svarið er það að gæðin mælast í þeim kærleika, hjálpfýsi, hlýhug og góðvild sem ákveðin trúarbrögð hafa að leiðarljósi. Einnig mælast gæðin í því hvað lítið mælist af þröngsýni og illsku og hatri á öðru fólki og þjóðum. Það er sem sagt þannig, að því minna sem er af breyskleika mannanna í trúarbrögðunum og því meira sem er af algildum hreinum kærleika, því nær Skapara sínum eru þau. Trúarbrögðin eru leið allra manna, sem leita æðri leiðsagnar, til að nálgast þá leiðsögn með skipulögðum hætti sem hópur, hver í sínu umhverfi. Íslendingar með sínum kirkjum, Indverjar með sínum hofum o.s.frv.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.