4.5.2010 | 20:54
Níu skilyrði fyrir innihaldsríku lífi
Margir miklir hugsuðir hafa dvalið við hina stóru spurningu um tilgang lífsins og einn þeirra sem oft er vitnað í er
Johann Wolfgang von Goethe 1749-1832
Goethe var skáld, rithöfundur, leikritahöfundur, heimspekingur og stjórnmálamaður. Ákaflega afkastamikill á sinni löngu ævi.
Eitt sinn rakst ég á mjög hnitmiðaðar leiðbeiningar og skýringar eftir hann, sem gefur okkur sérstakt tækifæri til að fá mikið út úr lífinu.
Níu skilyrði fyrir innihaldsríku lífi
Heilsan sé nægilega góð til að vinnan sé ánægjuleg.
Fjárráðin séu fullnægjandi til að sjá fyrir þörfum þínum.
Styrkur til að sigrast á erfiðleikunum.
Göfuglyndi til að játa yfirsjónir og vinna bug á þeim.
Þolinmæði til að vinna sleitulaust þar til árangri er náð.
Mannkærleikur sem fær þig til að sjá hið góða í öðru fólki.
Elska sem knýr þig til góðra verka öðrum til hagsbóta.
Trú sem gerir Guðs ætlunarverk að raunveruleika.
Von sem fjarlægir allar áhyggjur um framtíðina.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.