8.5.2010 | 09:22
Maðurinn er andleg vera - það er hinn merki leyndardómur
Ég heyrði góða sögu hafða eftir andlegum meistara og hún er svona: Bóndinn yrkir jörð sína með mikilli vinnu. Hann undirbýr jarðveginn með því að plægja og slétta. Síðan setur hann fræ í jörðina og hugar að því að allt sé vel frá gengið til að fá góða uppskeru. Allt þetta gerir hann eingöngu til að afla sér fæðu og lífsviðurværis. Hvað ætti hann þá að leggja á sig til að uppskera andlegt ríkidæmi?"
Einhvernveginn þannig var saga hins andlega meistara og ég vil bæta við. Hvað ætti þá að leggja á sig til að skilja eilífðarspurningarnar. Þær spurningar sem hefur verið spurt um aldir, um það hvað sé tilgangur lífsins, þegar frá er talin fæðuþörfin, því þar sem við erum andlegar verur og vitum sem er að við erum dauðleg og dagar okkar hér á jörðinni eru afmarkaðir, þá hlýtur að blunda sú ósk í hverjum manni að hann mæti Skapara sínum með einhverjum undirbúningi. Þeim helstum að hafa reynt að skilja þennan leyndardóm sem sækir á okkur og svara, allavega fyrir sjálfan sig, hverju hann á að áorka í andlegum efnum með jarðgöngu sinni. Við erum hingað komin í einskonar sendiför frá andlegum heimi og það væri eins og að skrópa í skólanum, að hafa ekki leitt hugann að lærdómsefninu.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.