12.5.2010 | 01:02
Davíð Oddsson geldur fyrir glöggskyggni og heiðarleika
Þegar ég hóf að rita á vef þennan, byrjaði ég á pístli um Davíð Oddsson einn besta son Íslands. Þar var ég stuttorður og nefndi aðeins aðalatriði máls - að þessi maður væri lagður í einelti og nyti ekki sannmælis.
Nú vil ég aðeins dýpka mál mitt og koma inn á fleiri hliðar. Þannig er að almenningsálit er mjög hvik og óstöðug vera, ef hægt er að komast þannig að orði. Almenningsaliti er hægt að stýra á alla lund eins og mannkynssagan sýnir svo glögglega. Auðveldast er að höfða til lægri hvata manna og æsa múg til illra verka. Hitt tekur lengri tíma, að vinna sannleikanum fylgi, sérstaklega þegar svo margir eru í liði mótherjanna og það getur valdið óþægindum.
Fyrir mótherja Davíðs var þessi atburðarás þægileg og einföld, um leið og þeir sjálfir og þeirra samherjar högnuðust á athæfinu.
Þeir sem hafa fylgst með fréttum undanfarinna ára hafa orðið vitni að því þegar borið var fé á Davíð, til að fá hann í hinn auðsveipa hóp viðhlæjenda útrásarvíkinga. Það er nefnilega hægt að kaupa allt eða næstum því og það notfæra þeir sér, þeir sem baða sig í gullinu sem glóir svo skært, en gerir lítið annað en veikja geðið og persónuleikann, svo eftir verður daufur svipur af manni.
Nú í dag þegar þetta er ritað, er að renna upp fyrir allri þjóðinni hvað hefur farið fram í musterum mammons og flestir eru agndofa yfir því sem í ljós kemur. Yfir bankaræningjum er einhver spenna sem menn samlíkja sér með og vilja allavega eiga gullið þegar höndum er yfir það komið. Hugsið ykkur hvað Davíð var þessum öflum óþægur og truflandi, að vilja ekki taka við hinum 30 silfurskildingum !
Peningaöflunum var þessi mótþrói óþægilegur og beinlínis ógnandi og þeir höfðu í sínu liði fullt af fólki sem þáði vinnu sína og afkomu úr þeirra hendi og auðvitað var fólkið húsbóndahollt. Í stað þess að beina sjónum sínum að innviðum bankanna þar sem vinnuveitendur þeirra störfuðu, var margfalt auðveldara að beina athugasemdum og gagnrýni á Davíð Oddsson. Sá maður var nógu stór til að vera holdgerfingur alls kerfisins. Þeir slógu margar flugur í einu höggi. Voru teknir alvarlega sem einlægir gagnrýnendur kerfisins, unnu fyrir kaupi sínu og enginn óþægileg eftirköst. Vinnan var tryggð og allir ánægðir. En ekki ég. Ég er sár fyrir hönd Davíðs og sár fyrir hönd sannleikans og sár fyrir hönd þess sem situr undir ljótu einelti.
Mál er að linni.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.