Styrmir Gunnarsson: Hrunadans og horfið fé

 

_slandskort.jpg

 

 

 

 

 

 

Ísland í sárum en sumar í nánd

Ég var að ljúka við téða bók og vil gjarnan þakka höfundinum fyrir hans hreinskipta og góða framlag til þessa erfiða máls, sem fall fjármálakerfisins var fyrir þjóðina. Sérstaklega er sárt og erfitt að kyngja þeirri staðreynd, hvernig  fáeinir ungir menn fóru með það fjöregg, sem þeir komust yfir.

Þeim sem er í mun að fræðast um málefnið hvet ég til að lesa bókina sem fyrst. Mjög mikilsvert að allir lesi með opnum huga og einlægum ásetningi. Þeir sem að málinu koma, hvort heldur er embættismenn, stjórnmálamenn eða almenningur, þurfa að ganga fram í hógværð og visku  og reyna að læra sína lexíu. Fara síðan hver til sinna starfa og byrja að slá nýjan tón í allri orðræðu, hvort sem hún snýst um stjórnmál, efnahagsmál eða önnur þjóðmál.

Þann draum ber ég með mér að upp úr þessu öllu saman komi nýtt Ísland, betri þjóð, betra land. Þannig að þegar hreinsuninni, sem nú fer fram, er lokið, verði okkar kæra land betri bústaður fyrir alla sem vilja vera góðir þegnar og láta gott af sér leiða. Hinir sem ekki hafa jákvæða sýn í brjósti sér vil ég biðja um að fara til fjarlægra landa og leita þar hamingjunnar, hvernig sem þeir svo sjá fyrir sér líf sitt án þess að vera Íslendingar í framtíðinni.

Í þjóðinni býr mikill náunga kærleikur, en meðfætt sundurlyndi eyðileggur margt. Hugsið ykkur ef við nýttum samtakamáttinn til að koma fram hugsjónum um betra land fyrir alla, hvað miklu væri hægt að koma til leiðar.

Víða hafa birst spádómar um Ísland og Íslensku þjóðina sem ber saman um að þjóðin sé sérstök og hún eigi mikilsverðu hlutverki að gegna. Þetta set ég ekki hér fram til að við getum hreykt okkur Íslendingar, heldur þvert á móti, þá er þetta hvatning um að ganga fram í hógværð og lítillæti. Hver sá sem sýnir sína bestu hlið og kemur þannig fram með jákvæða útgeislun, hann er aðdráttarafl fyrir allt það besta sem prýða þarf mannkynið. Það er til máltæki sem segir að oft verði baldinn foli að góðum hesti. Þetta segi ég með í huga hvað þjóðin er sjálf baldin og uppreisnargjörn, þó í henni slái gott hjarta.

Ég vona að þessi vel menntaða þjóð sýni nú styrk sinn og gott hjartalag og bæti það sem bæta þarf.

 „Farið nú og syndgið ei framar“, sagði Kristur. Það má gjarnan vera einskonar lokaorð þessarar greinar.

  svartifoss_a.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svartifoss - eitt af djásnum Íslands

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband