16.5.2010 | 09:11
Sigurður Einarsson segist saklaus.
Sigurður Einarsson fyrrverandi bankastjóri hefur fengið til liðs við sig dýrasta lögfræðing Bretlands. Lögfræðingurinn er svona dýr vegna þess að hann er sérfræðingur í að verja fólk sem er sakað um fjármálaglæpi. Saklaus maður þarf ekki að kaupa sér dýra þjónustu þar sem hann hvort eð er, er ranglega sakaður um fjármálamisferli . Hann er viss um sakleysi sitt og það væri alveg upplagt fyrir hann að koma bara heim til föðurlandsins og standa keikur gagnvart ákæruvaldinu. Það myndi styðja hans málstað að láta bara venjulegan lögfræðing gæta síns lagalega réttar. Maðurinn segist saklaus og það kemur örugglega í ljós í réttarhöldunum, þegar hann leggur öll sín spil á borðið. Við búum í réttarríki og það þarf að sanna sekt fyrir dómi.
Með lögum skal land byggja
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.