18.5.2010 | 22:21
Lífið er draumur !
Já, lesandi góður, ég samsinni þér að þessi staðhæfing er fjarstæðukennd og virðist lýsa höfundi hennar sem draumóramanni. Vil þó byðja um biðlund og þolinmæði á meðan ég kem með skynsamlegar skýringar þessu til halds og staðfestingar.
Áður en að skýringum kemur langar mig til að biðja lesanda að svara því, hvort sé líklegra til að vera draumur: Tilvera sem aðeins stendur í fáein andartök, eða tilvera sem varir um eilífð. Hvort er meiri veruleiki, þau fáu andartök sem við lifum í efninu, eða hinn eilífi tími sem við lifum sem andlegar verur. "En ég man ekki eftir neinni andlegri tilveru", segir þú. Kannski er leyndardómurinn sá að minnisleysið sé nauðsyn, svo að maðurinn muni starfa eftir löngunum hjartans. Séu þær langanir ekki í samhljóm við ráðsáætlun Skaparans þá fylgja því afleiðingar sem maðurinn þarf síðan að takast á við. Enn önnur skýring getur verið sú að við ráðum ekki við að höndla þann hæfileika að muna okkar horfnu yfirsjónir og syndir. Slíkt væri yfirþyrmandi.
Sjáum nú fyrir okkur ungann mann á steinsteyptri stéttinni fyrir utan heimili sitt. Svo virðist sem hann eigi allann heiminn. Hann er sjálfsöruggur, skynsamur og jafnvel íhugull. Þegar hann er 25 ára er hið jarðneska efni í svo yfirþyrmandi nálægð að þessi skynsami maður er vís til að líta á spurninguna um andlegan veruleika sem fjarstæðukennda hugmynd. Slík hugmynd sé eingöngu góð sem hugarleikfimi en á alls engann veruleika sér til staðfestingar.
Þessi maður á fyrir sér að eldast og 20 30 árum síðar er hann orðin margfaldur faðir og sér hilla undir að bráðum verði hann afi. Þegar spurningin um hinn andlega veruleika er borin undir hann á þessu æviskeiði, þá dregur hann djúpt andann og reynir að finna orðum sínum stað. Hann viðurkennir með semingi að hann viti nú ekki allt, hvorki um þennan heim né annann. Hann hafi þó lesið ýmislegt á langri ævi og sé hugsi yfir mörgu.
Þetta er gott og blessað, maðurinn er þá á breytingarskeiði og telur nú að þegar hann var yngri, sterkari og skynsamari, þá hafi hann þó ekki verið eins skynsamur eins og hann er í dag !
Þá færum við okkur um set um önnur 20 til 30 ár og maðurinn er þá staddur þar sem kallast að vera við útgöngu úr þessum efnislega heimi. Hafi þessi umræddi maður haldið áfram að hugsa og bæta við sig tilraunum til að svara eilífðarspurningunum, þá er líklegt að hann sé ekki alveg sammála sjálfum sér þegar hann var á miðjum aldri. Sé svo, þá er það vegna þess að nú er hann farinn að horfa yfir lífsgönguna með augum eilífðarinnar og þá koma upp allt aðrir fletir en fyrrum þegar þessi ganga var að hefjast.
Nú skulum við gera meira, við færum okkur um önnur 30 ár og gerum ráð fyrir að maðurinn hafi hvatt þetta líf sem við höfum litið á sem hina einu raunverulegu tilveru en ekki draum eins og höfundur þessa pístils er að halda fram!
Ég þarf að biðja fólk að grípa til ímyndunaraflsins til að fylgja mér eftir: Við erum í sporum mannsins sem hefur skilið við jarðneska tilveru sína og stendur frammi fyrir Drottni. Líf hans á að taka til mats. Hvernig hefur hann staðið sig á þeim vettvangi sem hann var settur til. Vissulega er erfitt að vera í sporum hins vanmáttuga manns sem þarf að svara fyrir gerðir sínar. Þar sem hann stendur þarna og lítur til baka á líf sitt, þá virðist það svo sannarlega vera eins og draumur liðin veruleiki og við þær aðstæður vaknar maðurinn upp og finnur að það eru allt önnur verðmæti sem ráða í þessum andlega heimi. Þar skiptir öllu að hafa farið fram með kærleika og réttsýni og hafa reynt að lifa eftir þeim leiðbeiningum sem andlegir meistarar hafa lagt okkur til. Ég vil trúa ykkur fyrir því að sjálfur hef ég í draumi upplifað svona andartak, frammi fyrir Skapara himins og jarðar og þá var ég sannarlega lítill og umkomulaus.
Hvort þú lesandi góður trúir því að hin fáu andartök sem kallast jarðnesk tilvera, séu hið eina sem við fáum upplífað og síðan sé hreinlega ekkert meira, það er þinn réttur að lifa við slíka hugmynd. Sjálfur mun ég allavega ganga inn í fögnuð herra míns, jafnvel þó ég sé viss um að fyrst þurfi ég að standa frammi fyrir hinum æðsta dómi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.