Líkamshreysti og öfgar okkar daga

Upp úr 1950 var ég ungur maður. Þá kom upp löngun til að verða stæltur og vel haldin. Á þeim árum var Arne Tammer (1913-2002) frægur líkamsræktarfrömuður. Hann stofnaði bréfaskóla um eflingu líkamshreystis. „Gefðu mér 15 mínútur á dag og þú færð stæltan líkama“, var hans kjörorð. Ekki þurfti nein tæki til að vera þátttakandi í bréfaskóla hans, svo ég gerðist meðlimur.

Á milli þessa manns og líkamsræktar nútímans er heilt sólkerfi !

Hugsjón Arne Tammers var heilbrigð hreysti. Hann var grænmetisæta. Hann bannaði allt tóbak og vín. „Ekkert sterkara en léttöl“, var hans móttó. Í þá daga voru ekki önnur eiturefni á boðstólum í okkar heimshluta, allavega hafði ég aldrei heyrt um slíkt. Það þarf að sjálfsögðu ekki að taka fram að hann fylgdi heilbrigðri uppbyggingarstefnu í hvívetna. Engin hjálparmeðul sem hugsanlega gætu eyðilagt líkamskerfið voru leyfileg. Allt eðlilegt og öfgalaust.

arne_tammer_samanbur_ur_a_992414.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 „Á hvaða mynd er ég 24 ára og á hverri er ég 50 ? , spyr Arne Tammer

2906_bild1.gif

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Svona var auglýst í þá daga.

 hver_er_a_ljuga_thvi_a_eg_hafi_teki_anabola_a.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

EKKI ÆSKILEG VAXTARRÆKT

Ég segi einungis: Gætið ykkar á öfgunum

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband