29.5.2010 | 18:36
Hafragrauturinn og Naglasúpan
Alla mína æsku borðaði ég hafragraut reglulega og hafði gott af. Þegar ég komst til vits og ára kynntist ég ýmsum útgáfum af þessum ágæta graut. Í sveitinni var hann látinn malla í langan tíma, meðan fólkið fór út í fjós að mjólka kýrnar. Svo voru aðrir sem aðeins létu koma upp smá suðu og þá var rétturinn tilbúin.
Eins og ég sagði þá var þetta á þeim árum sem maður var ekki sjálfur farinn að hugsa grant um hvað væri réttast og best í hverju máli. Þannig að ég gerði breytingu á hafragrautnum, þegar ég var komin í þá aðstöðu, að þurfa sjálfur að elda hann! Breytingin var sú að elda hann alls ekki! Í staðin sturtaði ég haframjölinu á diskinn og mjólk út á og borðaði með bestu lyst. Til tilbreytingar við þessa útgáfu setti ég skyr út í og hrærði saman við. Þannig að ég hélt mig við hollustuna þó að tilbrigði væru höfð með í för.
Fyrir nokkrum árum, fór ég á fyrirlestur hjá Heilsuhringnum og þar var íslensk kona nýkomin frá Kína. Hún talaði mikið um kornmeti og hollustu þess. Eftir að ég kom heim af fyrirlestrinum, ákvað ég að gera mjög kjarnmikinn korngraut. Úr varð uppskrift sem ég gaf nafnið Endurbættur hafragrautur til heiðurs mínum góða hafragraut frá æskudögum. Þessi góði grautur hefur fylgt mér æ síðan.
Endurbættur hafragrautur
1 glas Vatn sett í pott
1-2 matsk. Haframjöl
1-2matsk. Flögur úr t.d. Bókhveiti
og/eða Höfrum eða Rúg eða öðru korni
½ matsk. Hörfræ
½ matsk. Sesamfræ
1 matsk. Hafraklíð (eða annað grófmeti)
Kveikt undir pottinum og síðan tekið til við
að setja eftirfarandi á diskinn og betra að
hafa hraðann á til að vera búin áður en suðan
kemur upp:
30-50 rúsínur (eftir stærð)
5-6 möndlur
5-6 döðlur skornar niður í bita
Um leið og suðan kemur upp er potturinn tekin af hellunni og grautnum hellt á diskinn sem þá mýkir rúsínurnar, möndlurnar og döðlurnar. Nota má sojamjólk eða venjulega mjólk eftir smekk. Afbragðs grautur og góð undirstaða fyrir daginn.
Ég hef í byrjun ársins 2009 breytt vinnulagi við þennan góða málsverð. Nú tek ég sesamfræin og hörfræin og mala í mortel og set ósoðin á diskinn ásamt matskeið af hveitikími.
Allir þekkja söguna um naglasúpuna, sem varð betri og betri eftir því sem fleiru var bætt í pottinn. Hér erum við sannarlega að gera hinn góða hafragraut miklu betri með fáeinum viðbótum að hætti hússins!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.