31.5.2010 | 11:52
Lúpínan, hið sterka og fallega víðernisblóm !
Ég á varla til nógu sterk orð til að lýsa ánægju minni með þetta fallega blóm. Það breiðir úr sér á berangri þar sem ekkert fær þrifist. Breytir hreint og beint moldarbörðum í skrúðgarða.
Oft á ég leið um uppland Hafnarfjarðar, þegar ég fer að heimsækja hið vinsæla fjall Helgafell. Á leiðinni fer maður framhjá Íshestum og þar eru miklar breiður af lúpínu sem fegrar leiðina svo um munar.
Fyrir utan að vera fallegt blóm þá er lúpínan einnig lækningajurt. Ævar Jóhannesson hefur lengi gert seyði úr lúpínu og margir notið góðs af.
Þessi jurt hefur þurft að lifa við það að ýmsir hafa fundið henni sitthvað til foráttu. Það hef ég aldrei náð að skilja. Hvernig er hægt að amast við slíku gersemi, sem þessi jurt er?


Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.