„Gríđarlegur Gordon Brown“

 

Ég tók í júní ţátt í mikilli skákveislu í Skákseli Guđfinns Kjartanssonar viđ Selvatn. Ţar voru saman komnir Berlínarfarar frá Skákklúbbi KR sem höfđu fariđ utan í maí, í mikinn skákleiđangur.

Ţegar liđiđ kom heim fann Guđfinnur upp á ţví ađ safna saman „pressunni“ , ţađ er ţeim mönnum sem heima sátu, en hefđu líka getađ teflt í Berlín, hefđu ţeir veriđ ţar staddir.

Úr varđ myndarlegur hópur skákmanna sem mćttu í Skákseli Guđfinns, ţannig ađ Berlínarfarar tefldu gegn heimamönnum. Ţegar hlé var gert á skákkeppninni var mönnum stefnt út í skóg sem Guđfinnur og frú hans hafa rćktađ, frá sínum fyrstu búskaparárum. Sérstaklega myndarlegt allt saman. Ţar ađ auki er Guđfinnur svo uppfinningasamur. Hann hefur komiđ fyrir ýmsum sýningargripum og söguefnum. T.d. er í skóginum stór steinn sem hefur veriđ blessađur međ sérstakri athöfn. Á ţennan stein hefur veriđ settur stóll og ţegar gestir mćta ţarna og fá sér sćti í téđum stól, ţá hafa ţeir „sest í helgan stein“ og ţađ er alltaf merkileg athöfn !

 

berlinarhli_i.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kristján Stefánsson lögmađur og Einar S. Einarsson sáu um vígsluna á Berlínarhliđinu

Hópurinn fór um skóginn og byrjuđu gönguna međ ţví ađ vígt var Berlínarhliđ eitt veglegt, sem sérstaklega hafđi veriđ búiđ til í tilefni skákferđarinnar, ţó svo ađ Guđfinnur hafi setiđ heima. Ţađ var vígt međ viđhöfn og borđi klipptur, á sama hátt og fariđ er ađ viđ sérstakar vígslur hjá stjórnum lands og bćja.

Viđ komum ađ stađ ţar sem fram fór peningaţvćtti. Ţar voru peningar frá ýmsum löndum í plastumgjörđum og í rennandi vatni, sem sá um ađ gera peningana virka á ný, sem nýir vćru !

Guđfinnur lét ţess getiđ ađ danskur gestur hefđi veriđ mjög glađur međ ađ sjá danska peninga í ţessari ađgerđ.

gu_finnur_lysir_icesave_oge_inu.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Guđfinnur lýsir Icesave ógeđinu

Ţar á eftir komum viđ ađ Icesave drullunni. Komiđ hafđi veriđ fyrir vatnsleiđslu sem boruđ var í gegnum tré og hún leidd í svartan hrörlegan „te“ ketil sem var kolsvartur og átti ađ lýsa ógeđslegheitunum  Ţá gerist ţađ ađ Jónas Elíasson prófessor nefnir til sögunnar ađ hann hafi heyrt vísu eina sem tengist sjálfum Gordon Brown !

Ég eggjađi Jónas til ađ fara međ vísuna og hann lét ekki ganga á eftir sér, heldur gekk fram og sagđi eftirfarandi, međ sinni sterku og hljómmiklu rödd:

Á salerniđ ég settist down,

svall mér ţrútinn kviđur,

gríđarlegur Gordan Brown,

gekk ţá af mér niđur !!!

Ţetta vakti mikla kátínu međal viđstaddra og ţví lćt ég ţađ fylgja međ svo sagan sé fullsögđ.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband