14.6.2010 | 14:15
VATNALÖG - Vatnið og lífsloftið eru mestu gæði Íslands
Nú eru vatnalög til umræðu fyrir alþingi. Einhverra hluta vegna eru þar menn sem berjast fyrir einkaeign á vatni. Til hvers er barist fyrir þessu. Vatnið er ein af frumþörfum mannsins og sameign allra.
Það var alþekkt hvað illa var farið með náttúrugæði í gömlu Sovétríkjunum. Þar var jörð og vatn ekki í sérstakri vernd, heldur var það stáliðnaðurinn sem var guð þess tíma. Þá fæddist sú hugmynd að náttúrugæði væru betur komin hjá einkaaðilum. Slíkt var reynt í Bandaríkjunum og gaf ekki góða raun.
Lausnin er sú að þróuð og velviljuð lýðræðisstjórn sjái um verndun náttúrugæða, með hagsmuni allra þegna fyrir augum.
Hraunfossar - eitt margra vatnsfyrirbæra Íslands
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.