Jón frá Hvanná tónskáld

Jón bjó á Ísafirði í mínu ungdæmi. Hann er frægastur fyrir sitt fallega lag Caprí Catarina. Ég lenti í því ævintýri að spila með Jóni í hljómsveit sem mér finnst nú tíðindi út af fyrir sig. Það var um 1952 að komið var heim til pabba (Harrý Herlufsen rakari 18.08.1913 – 15.09.2006) og hann beðin að spila fyrir dansi að Uppsölum. Ég var um 16 ára og orðin liðtækur trompetleikari. Stígur bróðir var þá 18 ára og spilaði á altosaxafón. Pabbi hafði verið í hljómsveit með Jóni frá Hvanná á árum áður (ásamt Óla Koll á trompet) og var liðtækur á mörg hljóðfæri. Hann var fenginn til að spila. Hljómsveitin sem sett var saman af þessu tilefni var skipuð Jóni Jónssyni frá Hvanná á píanó, Harrý Herlufsen söngur og trommur, Stígur Herlufsen á altósaxafón og Sigurður Herlufsen á trompet.

Jón var minnisstæður karakter. Mikill á velli og minnti mig á Fats Waller, alltaf með sígrettu þegar hann sat við píanóið, enda var þá enginn maður með mönnum nema hann væri með vindling í sinni nálægð. Þegar þessi dansleikur átti sér stað var Villi Valli með sína hljómsveit í Alþýðuhúsinu og þar var dansleikur eins og venjulega á laugardagskvöldi.  Nema það að nú hafði verið settur á dansleikur að Uppsölum og þá þurfti fólk að velja á milli hvar yrði mesta fjörið!  Vegna þess að okkar hljómsveit var alveg ný, þá var forvitnilegt fyrir dansgesti að veðja á að fjörið yrði að Uppsölum. Enda varð það úr að dansleikurinn í Alþýðuhúsinu var flautaður af og man ég að Villi Valli og hans félagar komu yfir til okkar og skemmtu sér til tilbreytingar með dansgestunum.

Það var ekki aðeins að eldri menn eins og Pabbi (39 ára !)og Jón væru að spila eftir langt hlé heldur komu þeir með nýja (reyndar mjög gamla) siði í farteskinu. Á þessum árum var búið að finna upp míkrafóninn, en enginn slíkur var til þjónustu að Uppsölum þetta kvöld. Pabbi átti í fórum sínum söngtrekt eina og tók það ráð að syngja í gegnum þessa trekt sem hann hélt upp að munni sér! Trúlega hefur þetta verið siður um aldamótin 1900 en var komið í úreldingu þegar hér var komið sögu, árið 1952. Þetta virtist koma dansgestum skemmtilega á óvart. Það þarf ekki að orðlengja það að þetta var skemmtileg reynsla fyrir okkur bræðurna að lenda með þessum vönu tónlistarmönnum.

songtrekt_jpeg.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Söngtrektin var svona í laginu og með handfangi

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband