Valdimar Briem okkar ástsæla sálmaskáld var prestur á Stóra-Núpi

Ég fór þangað fyrir fáeinum dögum og var yfir mig hrifinn af glæsilegri aðkomunni. Kirkjan umkringd stærsta hlaðna steinvegg sem til er á Íslandi umhverfis guðshús. Það tók um ár að hlaða hann og eftir stendur þetta líka flotta verk.

Stóra-Núpskirkja - lengsta steinhleðslan

Brot af hinum hlaðna steinvegg sést þegar komið er að Stóra-Núpi

Stóra-Núpskirkja - lengsta steinhleðslan - flott aðkoma

Við kirkjuna stendur steinn sem er tileinkaður sálmaskáldinu og á hann er ritað þessi vísdómsorð: 

  • „Einn geisli lýst upp getur myrkan klefa, 
  • einn gneisti kveikt í heilum birkilundi, 
  • einn dropi vatns sér dreift um víðan geiminn.
  • Ein hugsun getur burt rýmt öllum efa,
  • eitt orð í tíma vakið sál af blundi, 
  • einn dropi líknar drottins frelsað heiminn.“ 

    Valdimar vissi manna best hvað orðið er áhrifaríkt og það kemur glöggt fram í kvæði hans sem hér er ritað.

    Stóra-Núpskirkja - Valdimar Briem sálmaskáld

    Minning og heiður um Valdimar Briem sálmaskáld

    Stóra-Núpskirkja - lengsta steinhleðslan ársvinna

    Hér sést hluti af hinum hlaðna vegg, greinilega listasmíð.

    Þjóðararfurinn sést vel þegar farið er til sveita og kirkjurnar sóttar heim, hver annarri eftirminnilegri. Nú um stundir er mikil uppbygging í safnaðarheimilum við sveitakirkjurnar. Á slíkri þjónustu hefur verið mikil þörf, enda ekki boðlegt að senda kirkjugesti út á tún þegar náttúran kallar.

    Lesendur athugið að til að njóta myndanna þarf að tvísmella til að stækka þær og hægt að endurtaka með því að tvísmella á stærri myndina einnig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband