21.8.2010 | 18:15
Gilsbakkakirkja – einlæg og sérstök í afskekktri sveit
Ég fór í nokkra daga ferð fyrir skömmu til að heimsækja allflestar kirkjur í Rangárvallasýslu, Árnessýslu, Borgarfjarðarsýslu og á Snæfellsnesi. Þetta var áhugaverð ferð og gaf mér mikið. Sérstaklega var ánægjulegt að fá tækifæri til að koma inn í sem flestar kirkjur. Það er nefnilega þar sem helgidómurinn er varðveittur.
Ein af hinum athyglisverðustu, eða sú sem hafði sérstök áhrif á mig, var einmitt Gilsbakkakirkja. Hún virðist vera ein þessara bændakirkja sem láta lítið fyrir sér fara og maður gengur yfir tún til að komast í návígi við hana. Það sást strax að vel er um hana hugsað. Hliðið nýmálað eins og reyndar fleira. Svo ánægjulega vildi til að hún var opin og bauð mann velkomin. Innandyra var margt fallegra muna í viðbót við hina hefðbundnu kirkjumuni. Það upphefur andann að ganga inn í helgidóminn og ég vil nota tækifærið og þakka fyrir mig.
Kirkjan var upphaflega byggð 1908 en síðan endurbyggð 1954.
Hér eru svo fáeinar myndir frá staðnum.
Gilsbakkakirkja séð frá heimreiðinni
Gilsbakkakirkja og kirkjugarðurinn umhverfis hana
Flott veggskraut
En það sem ekki er hægt að sýna er hið dásamlega andrúm sem maður varð aðnjótandi !
Athugið að til að njóta myndanna þarf að tvísmella á þær - einnig er hægt að tvísmella á stækkuðu myndirnar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.