Prestar og pólitík

Um langa hríð hefur leitað á mig spurningin hvort prestar eigi að vera virkir í pólitík. Það er fljótsagt að slíkt hugnast mér engan veginn. Ástæðan er sú að prestum er veitt kennivald og það hefur skyldur í för með sér. Þeir þurfa að rísa upp yfir meðalmennskuna og sjá heiminn frá hærri sjónarhóli. Með því að setjast í stjórnmálaflokk hefur því verið kastað á glæ að sjá hinn víðari sjóndeildarhring og vera hans fulltrúi. Með því að ákveða að vera svo pólitískur að það verði í fyrsta sæti, en starf sálusorgarans og prestsins komi í annað sæti  þá missir hann trúnaðinn við stóran hluta sinna sóknarbarna, ef við gerum ráð fyrir að presturinn sinni prestsembætti.

Þessi grundvöllur er því skýr. Það er ekki hægt að sinna tveim herrum, segir í merkri bók. Annaðhvort sinnir prestur skyldum sínum við Almættið og er þess þjónn í mannheimi, eða hann hættir sem slíkur og gerist almennur borgari. Þá hefur hann líka frelsi til að vera virkur pólitíkus og stofna einn slíkan ef hann svo kýs.

Sé litið á málið með umburðarlyndi og sagt að þetta tvennt geti vel farið saman, þá get ég ekki tekið undir það öðruvísi en að segja. Sé presturinn enn með hugsunarhátt stéttar sinnar þá er auðvitað mjög sterkur möguleiki á því að hann gæti bætt stjórnmálin með sinni nærveru. Hann gæti einmitt verið maðurinn sem hvetur til samvinnu og sáttargjörða og allra jákvæðra þátta í starfi sínu sem stjórnmálamaður og það er auðvitað framfaraspor í heimi stjórnmálanna. Þá þyrfti að líta svo á að presturinn sé að fórna einhverju af sínu prestlega til að bæta hið sammannlega, sem honum hefur þá væntanlega fundist vanta upp á að væri fullnægjandi án hans.

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Freyr Rúnarsson

Alltaf sammála jafn rökföstum manni

Gunnar Freyr Rúnarsson, 23.8.2010 kl. 07:55

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Hjartanlega sammála þér - prestar eiga ekki "heima" í pólitiík

Jón Snæbjörnsson, 26.8.2010 kl. 13:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband