Biskupinn er góður maður

 

Já ég fullyrði þetta sem einn af þegnum landsins. Þrátt fyrir að mörg ár séu liðin þá man ég greinilega þá gleði og feginleik sem gagntók mig þegar séra Karl var kjörinn. Hann var einn úr hópi presta í framboði og mér fannst skína svo mikil góðmennska frá honum að mér var það kappsmál að hann næði kjöri.

Hann hefur  verið að mörgu leiti farsæll í starfi sínu. En það verður enginn óbarinn biskup segir máltækið og það eru orð að sönnu. Séra Karl þarf að taka á mörgum erfiðum og óþægilegum málum og hvernig sem hann stendur að verki fær hann aldrei gert öllum til hæfis. Það sem ég legg þó fyrst til grundvallar öllum ákvörðunum er að reynt sé að komast að niðurstöðu með góðvild og gæzku  og hafa sannleikann að leiðarljósi.

Ég óska séra Karli velfarnaðar og þjóð minni einnig. Megi allir sem finna til fá sár sín grædd.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband