Dýrðardagur - fjallasýn, veizla fyrir augað !

Í morgun fór ég í langa göngu í þessu líka blíða veðri. Mér var gengið inn Setbergshlíð og að Ásfjalli. Þá uppgötvaði ég þvílíkt augnkonfekt, að það verðskuldar að maður staldri við og njóti.

Þessi fallega fjallasýn opnast við það að Ásfjall er orðið byggt og gefur þeim sem þar búa frábært útsýni úr húsum sínum. Eitthvað þessu líkt fær fólk einnig notið úr háhýsum Hafnarfjarðar á Holtinu.

Ég sé fyrir mér Reykvíkinga sem hafa haft þessa sýn fyrir augum alla tíð, að þeim þyki ekki mikil tíðindi á ferðinni. Ef þeir hins vegar skoða myndina hér fyrir neðan sjá þeir að panorama fjalladýrðarinnar er önnur frá Hafnarfirði séð og þá geta allir verið sáttir, hver með sinn skerf af dýrðinni.

Esja og Akrafjall séð frá Áslandi

Til að sjá myndina í fullri stærð þarf að smella tvisvar á myndina og hún fyllir skjáinn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband