Hverja á að dæma, afbrotamenn eða áhorfendur?

Ég dvel við þessa spurningu eftir fréttalestur dagsins.

Það er talað um að draga til dóms, þá alþingismenn sem tilfallandi voru við völd, þegar afbrotamenn bankakerfisins unnu spellvirki sín.

Svo vel voru afbrotin falin á þeim tíma, með umbúðum unnum af færustu lögfræðingum, að þau voru ósýnileg öðrum en gerendum sjálfum. 

Um langa hríð hefur stór hópur sérfræðinga á vegum Sérstaks saksóknara, unnið að gagnaöflun svo færa megi sönnur á afbrot þessara manna.

En á sama tíma er litið svo á að téðir ráðamenn hafi átt að geta séð gegnum heilt, það sem tekur sérfræðinga mánuði og ár að finna með gögnin fyrir framan sig. Ekki sé ég sanngirnina í slíkum málatilbúnaði.

Það virðist vera sú tíska í gangi nú um stundir, að betra sé að fá áhorfendur á sakabekkinn, heldur en þá sem raunverulega upphugsuðu og frömdu afbrotin.

Þetta er hliðstæða við biskupsmálið, þar sem þeir tala hæst sem vilja að séra Karl víkji úr embætti vegna afbrota annars manns.

Ég bið þjóðina að hugsa skírt og binda sig við kjarna málsins. Afbrotamenn eiga að fara fyrir dóm. Það er augljóst og eðlilegt. Að dreifa málum út um víðan völl og draga fram ávirðingar á áhorfendur, það er óvirðing við réttlætisgyðjuna.

 

réttlætisgyðjan

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband