24.9.2010 | 18:14
Hverjir fundu upp á kjörbúða fyrirkomulaginu ?
Síðustu daga hef ég verið að hugsa um "sök" þeirra sem fundu upp á kjörbúða fyrirkomulaginu.
Ég man þegar þetta "undur" kom fyrst fram á sjónarsviðið. Eldri aðferðin var sú að afgreiða yfir búðarborðið, en svo kom þetta nýja fyrirkomulag. Menn voru steinhissa á því gerræði að ætla að treysta fólkinu til þess að ganga um búðina og geta snert vörurnar sem voru til sölu. Hvílíkt og annað eins. Það yrði öllu stolið úr þessum verslunum og þær stæðu tómar, um leið og kaupmaðurinn yrði gjaldþrota.
Eins og allir vita hefur þessi spá ekki gengið eftir, en það er af og til stolið úr þessum verslunum. Þó ekki svo mikið að sjálft frelsið fái ekki staðist.
Þetta eru mínar hugleiðingar um leið og verið er að heimta sakborninga á alþingi. Þeir sem gáfu frelsi til að almennir borgarar gætu sýslað með meiri fjármuni en áður hefur þekkst, eiga nú að taka út hegningu vegna þess að til voru menn sem ekki þoldu frelsið og létu greipar sópa.
Þetta er mál dagsins í hnotskurn. Þegar frá líður verður litið á þetta tímabil sem byrjunarerfiðleika frelsisins. Ef stuldurinn í kjörbúðunum hefði orðið óbærilega mikill þá hefði þetta verslunarfyrirkomulag ekki náð að festa rætur. Við værum þá enn í gamla tímanum.
Ég bið þjóðina að kalla ekki eftir því að menn verði teknir til hegningar fyrir að vera á vettvanginum þegar frelsinu var hleypt til þjóðarinnar. Látið nægja að heimta réttlæti yfir sjálfum afbrotamönnunum. Það eru þeir sem eru hinir sönnu "búðarþjófar" okkar daga.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.