Mögnuð tala ~ 10.10.10

Nú hlýtur herra Hermundur Rósinkranz talnaspekingur og miðill að leggjast yfir þessar mögnuðu tölur.

Það er nefnilega svo merkilegt að hugleiða talnarunur og þýðingu þeirra.

Okkur er í fersku minni er við gengum gegnum áramótin 1999-2000 og margir héldu að allt færi á hvolf í tölvuheiminum. Svo varð þó ekki sem betur fer. Í framtíðinni verður nóg geymslupláss (Gígabæt) til að geta haft ártalið sem fjóra tölustafi í stað tveggja sem menn létu duga á fyrri öld og talið var að tölvurnar myndu ekki túlka sem árið 2000 heldur sem 1900.

En aftur að upphafinu. Nú væri fróðlegt að heyra frá Hermundi Rósinkranz. Við bíðum óþreyjufull eftir að fá fregnir af framtíðinni. Nútíðin er nefnilega svo ruglingsleg og erfið að það er hvíld í því að líta út fyrir hana um stund!

Góðar stundir ágætu landsmenn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband