Trúarbænir Íslendinga

Við eigum mikinn fjársjóð Íslendingar í bænaversum.

Hafi maður á takteinum eina eða tvær bænir sem hægt er að fara með sér til sáluhjálpar, þá er vel. 

Hér eru fáein vers, auðveld og létt að muna.

Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi faðir þér ég sendi,
bæn frá mínu brjósti sjáðu
blíði Jesú að mér gáðu.

Ásmundur Eiríksson

--

Nú er ég klæddur og kominn á ról,
Kristur Jesús veri mitt skjól,
í guðsóttanum gef þú mér
að ganga í dag svo líki þér.

Höfundur ókunnur

--

Kvöldabænir sem eru í senn stuttar og einlægar og auðvelt er að muna, eru ætíð vinsælar sem nesti inn í svefninn.

Vertu nú yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.

Sigurður Jónsson

--

Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.

Ókunnur höfundur

--

Í þeim faraldri sem nú gengur yfir til að leggja stein í götu kristinna gilda, er mér fyrirmunað að skilja hvað þessi fallegu vers geta gert nokkrum manni annað en eitthvað sérstaklega hugljúft og háleitt.

_thli_arkirkja_-_stytta_2_1036358.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Engill við Úthlíðarkirkju

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband