Davíð Oddsson er sá eini sem sá í gegnum peningamennina !

En vegna þess að Davíð var ekki til sölu og ekki var hægt að kaupa hans fylgispekt, þá gat sá maður sem hafði keypt Ísland og gat gengið í alla þá sjóði sem til voru í landinu, sigað gervallri þjóðinni beint á Davíð.

Það var gert með hjálp fjölmiðla og stjórnmálafla sem peningamaðurinn hafði keypt sér til fylgilags og stuðnings. Með því fólki sem var pólitískt á móti Davíð.

Þjóðinni var kennt að hatast út í þann mann sem í reynd var sá eini sem stóð í fæturnar gegn peningaöflunum. Þvílík þversögn að þjóðin skuli hafa meðtekið menn mammons og hafnað Davíð.

Sjá menn ekki líkinguna við eitthvað frá fornum tíma?

Nú loksins er að koma upp á yfirborðið, hin hrottalegustu mál, sem eru svo ótrúleg og yfirgengileg, að ef einhver hryllingssöguhöfundur gæti upphugsað  þannig atburðarás, þá yrði hann fullsæmdur af.

Sýn Davíðs á peningamennina er hér með staðfest og vonandi opnar það augu Íslendinga fyrir því hver er hinn raunverulegi landsfaðir, sem sér og skilur og finnur til með þjóð sinni.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Og það verður ekki annað séð en að þú trúir þessu sjálfur. Mér hefur oft verið sagt að svona trúarskoðanir væru enn í gangi og líklega er það satt.

Við þessu eru auðvitað engin svör.

Árni Gunnarsson, 26.10.2010 kl. 23:25

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Hehehe.....

hilmar jónsson, 27.10.2010 kl. 00:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband