29.10.2010 | 10:24
Kristinn siður hefur reynst þjóðinni happadrjúgur
Kristinn siður hvetur til sáttfýsi og mannkærleika.
Kristinn siður er mannbætandi.
Kristinn siður er bindiefni þjóðfélagsins.
Kristinn siður er siðbætandi.
Kristinn siður er siðmennt okkar tíma (orð sem andstæðingarnir hafa tekið inn í sína málnotkun).
Þegar ég var að alast upp þá fór ég oft í fríkirkjuna Salem á Ísafirði. Einnig á kvöldsamkomur í Herkastalanum. Þessar heimsóknir gerðu mér ekkert annað en gott. Varð mér til blessunar.
Þar fékk ég efni til umhugsunar á uppvaxtarárunum.
Þessi grunnur hefur fylgt mér alla tíð síðan.
Ég tek eftir því að það er mikill fjöldi fólks sem virðist feiminn við að viðurkenna tengsl sín við trú, þó slíkt ætti ekki að vera málefni sem sé neinum manni til minnkunnar, nema síður sé.
Ekki svo að skilja að trúmál séu einn farvegur, heldur eru þar margar leiðir. Enda segir Kristur: "Í húsi mínu eru margar vistarverur".
Einnig er sagt að það liggji allir vegir til Rómar, í merkingunni að þó leiðirnar séu margar sé áfangastaðurinn einn og hinn sami fyrir alla.
Hólskirkja Bolungarvík á fögrum degi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.