3.11.2010 | 22:39
Einn ríkasti maður heims lofar hin gömlu góðu gildi
Einfalt er gott. Inn á borð mitt kom notaleg saga sem mig langar til að deila með ykkur.
Einn ríkasti maður heims (var nr. 2 árið 2009 en er á þessu ári talin nr. 3) heitir Warren Edward Buffett. Fæddist 30. ágúst 1930. Hann lærði að spara fyrir 11 ára aldur.
"Fáðu börn þín til að spara", segir hann. En þannig varð hann að lokum stjarnfræðilega ríkur.
Hann keypti lítið sveitabýli þegar hann var 14 ára, með því að bera út blöð.
Hann á enn heima í 3ja svefniherbergja húsi sínu í Omaha, sem hann keypti fyrir 50 árum þegar hann gifti sig.
Segist hafa allt sem hann þarfnast og húsið nægi honum ennþá.
"Ekki kaupa meira en þú þarfnast og leggðu að börnum þínum að gera slíkt hið sama".
Hann ekur bíl sínum hvert sem er og hefur hvorki bifreiðastjóra né aðra aðstoðarmenn í kringum sig.
"Þú ert það sem þú ert". (Engin sýndarmennska).
Hann ferðast aldrei með einkaflugvél, þó svo að hann eigi heimsins stærsta leiguflugfélag.
"Gættu alltaf að því að gera hlutina á hagkvæman hátt".
Hann er ekkert fyrir samkvæmi fína fólksins. Eftir vinnu fer hann heim og sest við sjónvarpið með poppkorn til að maula.
"Ekki sýnast, en gerðu það sem þú hefur gaman af að gera".
Warren Buffett gengur ekki með síma í vasanum og hann er ekki með tölvu á borðinu.
Fyrir fáeinum árum hittust Bill Gates (ríkasti maður heims) og Warren Buffett. Bill Gates taldi að þeir ættu lítið sameiginlegt og hann hafði aðeins gert ráð fyrir hálftíma fundi. Reyndin varð sú að hálftíminn varð að tíu tímum og Bill Gates varð stórhrifinn af manninum. Síðan hafa þeir haft mikið saman að sælda.
Warren Buffets ráðleggur ungu fólki:
A. Forðist kreditkort og bankalán. Leggið peninga til hliðar og safnið fyrir því sem hugurinn girnist.
B. Peningar búa ekki til menn, en maðurinn býr til peninga.
C. Lifðu einföldu lífi eins og þér er eiginlegt.
D. Ekki gera eins og aðrir segja, en hlustaðu samt á þá. Að lokum skaltu fara eftir eigin hyggjuviti og því sem er þér fyrir bestu.
E. Ekki kaupa tískuföt, en vertu í því sem þér finnst sjálfum notalegt.
F. Ekki eyða í óþarfa, en keyptu það sem þú telur þig nauðsynlega þurfa.
G. Þú ættir að lifa þínu lífi, án þess að láta aðra trufla þá áætlun.
"Hamingjusamasta fólkið á ekki endilega ~alla bestu hlutina~, njótið þess sem þið eigið".
Boðskapur Warren Buffett er að við skulum lifa einföldu og þægileguu lífi.
Hann gefur 99% auðæfa sinna til góðgerðamála.
Tökum þennan mann okkur til fyrirmyndar, það geta allir gert !
Warren Buffett og Bill Gates í léttum leik
Warren Buffett og Bill Gates í spjallþætti
Warren Buffett - sérstakur maður !
Á þessari mynd minnir hann mig mjög
á hinn mikla bloggara
Herra Halldór Jónsson verkfræðing !
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.