Icesave og InDefence

Mig langar til, á þessum tímamótum, að senda InDefence hópnum sérstakar þakkir, fyrir þeirra aðkomu að lausn Icesave málsins.

Þegar þeir gripu inn í atburðarásina var útlitið ekki björgulegt. Ríkisstjórnin ætlaði hreinlega að leggja þessar ofurbirgðar á komandi kynslóðir og gefa ekkert með öll þau rök, sem voru fyrir annarri og sanngjarnari niðurstöðu.

Sem betur fer kom þá þessi skeleggi hópur til sögunnar, sem kallast InDefence. Þeir knúðu í gegn þjóðaratkvæðagreiðslu og í dag sést hvað mikið hefur áunnist vegna þeirra inngripa.

Svo kom vandaður lögmaður, Ragnar Hall og lagði fram ákveðið varnarplagg, sem hefur fengið heitið, Ragnars Hall ákvæðið.  Þessu ákvæði er ætlað að gæta öryggis Íslendinga, svo ekki geti komið til þess að þjóðin þurfi að taka á sig óljósar ofurbirgðar, eftir því hvort málið þróast til betri eða verri vegar.

Í núverandi stöðu, er heppilegast að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram, um þann samning sem alþingi samþykkti í vikunni.

Þá fengi fólk að kjósa milli þriggja valkosta:

1. Samþykkja núverandi samning eins og alþingi hefur gert.

2. Samþykkja núverandi samning að viðbættu Ragnars Hall ákvæðinu.

3. Hafna þessum samningi og fara dómstólaleiðina.

Ég reikna með að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar myndi velja lið 2 og fá Ragnars Hall ákvæðið inn í samninginn.

InDefence hópurinn samanstendur af fólki á miðjum aldri. Einmitt það fólk sem þyngstar byrgðar mun bera af þessu máli, hvernig svo sem það verður samþykkt.  Nú þarf þessi hópur að beita sér, svo málið fái þann farsæla endi sem mér sýnist flestir líta til vonaraugum.

indefence_motmaelir_vi_bessasta_i.jpg

 

 

 

 

 

 

InDefence krefst þjóðaratkvæðagreiðslu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Sigurður Alfreð"En áhættan með gengið, það verður að vera þak á því, ef það á að samþykkja þessa kröfu eins og hún er nú. hún má ekki hækka. Falli gengið hjá okkur, fellur gengið á pundinu (skuldinni) um sömu tölu, en verði aldrei hærra en það er í dag. Annars Dómstóla leiðin!!!

Eyjólfur G Svavarsson, 5.2.2011 kl. 16:34

2 Smámynd: Sigurður Alfreð Herlufsen

Þakka þér Eyjólfur,

ég var að lesa góða grein í Fréttablaðinu, viðtal við Lárus Blöndal. Hann telur dómstólaleiðina mikla áhættu.

Eigum við sem stöndum utan við þetta samningaferli, að vita betur ?

Lárus segir að enginn geti gefið sér jákvæða niðurstöðu fyrir Ísland.

Við vitum nokkurn veginn hvað er í boði nú, en áhætta fylgir dómstólaleiðinni.

Einnig fylgir því áhætta að fara fram á að ákvæði Ragnars Hall verði sett í samninginn.

Eins og Lárus segir, þá er komin mikil samningsþreyta í viðsemjendur okkar.

Þess vegna þarf að meta það hvort það sé áhættunar virði að hafna núverandi drögum.

Er ekki rétt, að eignirnar sem eru í þrotabúinu, muni hækka á sama hátt, ef gengið hækkar?  Sé svo, helst það þá ekki í hendur útkoman, ef gengið breytist?

Finnst þér ekki að það þurfi að vera kosningar um þennan samning? Þá er það svar þjóðarinnar sem endanlega gerir út um málið.

Sigurður Alfreð Herlufsen, 5.2.2011 kl. 17:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband