Af hverju að hafa sjúkdóma á heilanum?

Það er ekki einhugur um þá stefnu, að vera með stórvirka leitarstöð að sjúkdómum. 

Hafa læknar ekki meira en nóg að starfa, við að hjálpa þeim sem eru hjálpar þurfi. Er ekki eitthvað brogað við það, að bæta því svo ofan á, að leita að sjúkdómseinkennum, sem í 99% tilfella verða aldrei raunverulegir sjúkdómar.

Væri ekki nær, að leggja svipað átak í að kenna fólki, að lifa heilbrigðu lífi og þar sem slíkt dugar ekki til, til að viðhalda heilsu sinni, þá og þá fyrst, ætti að koma til kasta læknisins, við að endurheimta heilsuna.

Það eru margir, sem hafa uppgötvað sína raunverulegu skyldu, sem er í raun sú, að hugsa vel um sína velferð og heilsu. Enda stendur það engum nær.

Það er hvers manns hagur í bráð og lengd, og umbunin er vellíðan og lífsgleði í hæstu hæðum.

Það eru hin dýrmætu laun, því að góð heilsa er gæfa hvers manns.

Sá maður sem hefur misst allt hið efnislega, þakkar sínum sæla fyrir að hafa góða heilsu og geta þannig endurheimt efnisleg gæði, með því að vinna hörðum höndum.

Í þeim aðstæðum blessar maður góða heilsu.

prinsessa_4.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fallega prinsessan þarf að borða eitthvað annað en kökur til að viðhalda lengur sinni æskufegurð

Indversk fegurðardrottning frá árinu 1949

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Indversk fegurðardís frá 1949. Hennar fegurð var einnig hverful

unga_fallega_folki.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Unga fallega fólkið þarf að hugsa um sinn lífsstíl til að viðhalda góðri heilsu.

lifsgle_i_njottu.jpg

 

 

 

 

 

 

Njóttu heilbrigðrar lífsgleði

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Þetta eru þarfar ábendingar hjá þér Sigurður.

Mér dettur í hug góður vinur minn sem efnast hefur vel á byggingarstarfsemi, eignir hans skipta hundruðum milljóna, bæði í beinum peningum og fasteignum.

Hann hefur næg verkefni enn sem komið er og er ansi glúrinn við að reka sitt fyrirtæki.

Fyrir tveimur árum veiktist konan hans af krabbameini í brjósti, en hún virðist sem betur fer hafa náð sér ágætlega og er nokkuð hress í dag.

Honum var mikið niðri fyrir þegar hann sagði mér þessar fréttir fyrst, þá voru þau nýbúin að heyra um sjúkdóminn frá lækninum.

Hann sagði mér að feginn vildi hann gefa allt það veraldlega sem hann ætti, ef það gæti orðið til þess að konan hans slyppi við þennan sjúkdóm. Við ræddum á þessum tímapunkti um þá staðreynd, hvað maðurinn væri í raun vanmáttugur þegar sjúkdómar berja að dyrum.

Þess vegna getum við ekkert annað en treyst á Guð og beðið þess, að hann gæti okkar.

Við erum í raun svo ósköp smá, þótt við höldum að við séum nær almáttug, þegar allt leikur í lyndi.

Jón Ríkharðsson, 6.3.2011 kl. 18:10

2 Smámynd: Sigurður Alfreð Herlufsen

Kærar þakkir Jón,

þær eru margar svona sögurnar og þín saga er sönn og hún er táknræn.

Ég man eftir manni sem átti nóg að bíta og brenna, en hann fór samt að byggja annað hús fyrir þau gömlu hjónin, þegar degi var tekið að halla. 

Svo sá ég hann ganga kengboginn um göturnar.

Búin að ofgera sér og svo dó hann skömmu síðar.

Sorglegt hvað verðmætamat manna er fátæklegt.

Vonandi verða svona umræður til að vekja einhverja.

Þá hefur verið gert gagn.

Sigurður Alfreð Herlufsen, 6.3.2011 kl. 18:27

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Góður pistill hjá þér og sannur.

Kunningi föður míns sem var ansi efnaður fékk að vita að dagar hans væru taldir í krabba. 4 til mánuðir mest.

Hann skildi við konuna, skipti öllu réttlátlega og fór til Spánar og fór að drekka.

Það voru vín, konur og fjárhættuspil þar til hann kom heim allslaus og örmagna af lifnaðinum, enn þremur árum seinna.

Hann fékk hjálp við vandamálinu sem hann hafði af áfenginu, enn krabbinn var horfin læknum á Íslandi til mikillar furðu.

Ég mæli samt ekki með þessari aðferð til að lækna krabba, enn maður getur spurt sig hvaða sjúkdómur þetta eiginlega sé?

Maður sem er búin að reyna að koma hugmyndum sínum á framfæri síðan 1974 er loksins að fá viðurkenningu á vinnu sinni. Hann heitir Jack Fresco og er alveg þess virði að hlusta á gamla mannin.

Einsök viska býr í þessum manni.

http://www.youtube.com/watch?v=iXmCbU4YoAc

Óskar Arnórsson, 7.3.2011 kl. 19:36

4 Smámynd: Sigurður Alfreð Herlufsen

Kærar þakkir Óskar,

ég nýtti mér að sjá þessa kvikmynd, sem þú færir okkur. Hún var óvenju löng, en hvílíkt og annað eins !

Þessi maður hefur slíka framtíðarsýn og kemur þó í heiminn upp úr 1920. Maður sér ekki fyrir sér, að þá hafi verið sá grundvöllur og sá veruleiki, sem hefði getað lagt grundvöll fyrir þeirri vegferð, sem maðurinn þó hefur gengið.

Það er hrein unun að sjá þessar byggingar og hugmyndir um framtíðarborgir. Með allar þarfir manna til ráðstöfunar. Sem ætti að koma í veg fyrir hungur og öfund og glæpi og græðgi.

Hins vegar sannar það fyrir okkur, að því minni sem langanir og þarfir eru, því auðveldara er að uppfylla þær, og því meiri lífsfylling er til staðar.

Já, ég segi: Takk fyrir mig. 

Sigurður Alfreð Herlufsen, 8.3.2011 kl. 01:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband