8.3.2011 | 23:59
Góð heilsa er grundvöllur lífshamingjunnar
Í fyrri pistli mínum dreg ég fram, að það er á eigin ábyrgð, að hlúa að heilsunni.
Þetta fyrirbæri er miklu frekar sjúklegt, heldur en að það lýsi heilbrigðum líkama.
Hann þjálfaði fólk án þess að nota nokkur tæki.
Hann bað um 15 mínútur af daglegum tíma þínum og þá lofaði hann góðum árangri.
Hár aldur er enginn fyrirstaða til að njóta lífsins, svo fremi að heilsan sé góð.
Það er á þínu valdi að styðja við heilsuna með réttum lífsstíl.
Sinna heilsueflingu, en forðast öfgar. Það er t.d. enginn lausn að bryðja sterapillur og verða útbólgið líkamströll.
Hér er óheilbrigðið augljóst
Þetta fyrirbæri er miklu frekar sjúklegt, heldur en að það lýsi heilbrigðum líkama.
Á mínum uppvaxtarárum var Arne Tammer fyrirmynd ungra manna.
Hann þjálfaði fólk án þess að nota nokkur tæki.
Hann bað um 15 mínútur af daglegum tíma þínum og þá lofaði hann góðum árangri.
Taktu eftir fimleikafólkinu.
Það hefur stæltan líkama og heilbrigða samhæfni.
Þar eru engar svona ýkjur eins og ég var að lýsa.
Heilsan á að viðhaldast fram á grafarbakkann ef svo má segja.
Til að ná þeim árangri þarf allt að ganga upp.
Hugur og líkami að vinna saman, svo úr verði eins mikil lífsgleði og lífsupplifun og framast er unnt.
Gangi þér vel !
Athugasemdir
Mér finns þessi steratröllamynd alveg meiriháttar. Hún sýnir árangur stera sem eru framleiddir fyrir dýr, og ekki fólk. Þetta er kallaður fóðurbætir í Asíu og bara notað fyrir grísi og nautgripi það í landi og ég hef aldrei séð infædda nota þetta sjálfir.
Þetta er svipað og einhverjir útlendingar færu að byrja að éta fóðurbætirinn frá kindum og kúm til sveita á Íslandi.
Meiri gleði á áhuga hjá kindum er ekki hægt að hugsa sér enn þegar maður mætir með fóðurbætinn á veturna...ætli það sé skapa svona ánægju hjá einhverjum bara með venjulegum fóðurbæti? ;)
Óskar Arnórsson, 9.3.2011 kl. 22:37
Takk fyrir þetta Óskar,
gott til þess að vita, að litið sé á stera sem dýrafóður, frekar en til manneldis.
Vonandi að einhver steratröll lesi þetta! og best væri að þau myndu sölsa um og hætta þessu rugli.
Sigurður Alfreð Herlufsen, 9.3.2011 kl. 22:59
Sterar eru bara eins og hvert annað eiturlyf og jafn hættuleg. Sterar eru þó ekki eins líkamlega vanabindandi og m-rg -nnur efni. Enn af því að fólk tengir þá við heilsu leiðir fólk hugan framhjá staðreyndum.
Það er ekkert öðruvísi enn þegar foreldrar keyptu heróíndropa handa óværum börnum í USA í bestu meiningu. Víst sváfu börnin vel af þessu "meðali" læknavísindanna og svo komu áhrifin af "góða svefninum" fram á fullorðinsaldri..
Óskar Arnórsson, 9.3.2011 kl. 23:10
Já, þetta er mergurinn málsins.
Þakka þér kærlega fyrir að segja þetta svona skírt og skorinort!
Sigurður Alfreð Herlufsen, 9.3.2011 kl. 23:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.