Að lesa biblíutexta

Ég hef haft þá venju að lesa mér til gagns.

Þannig að ef ég les biblíutexta, þá tek ég eingöngu mark á texta sem færir mér eitthvað jákvætt og uppbyggjandi.

Allt sem lyktar af niðurbroti og neikvæðni læt ég sigla sinn sjó og geri ekkert með það.

Það á við um allt mögulegt annað.

Val á bókum, kvikmyndum, tónlist, heimspeki, trúarbrögðum o.s.frv.

Á sama hátt forðast ég að vera of partískur. Fylgja einum hópi og leggja fæð á annann.

Ég ber virðingu og kærleika til minna trúarbragða og vona að annarra trúar menn séu jafn góðir þegnar sinna trúarbragða, án þess að leggja fæð á önnur trúarbrögð.

Því til staðfestingar, þá get ég sagt frá því, að ég spila borðtennis með Víking.

Tefli skák með skákdeild KR, og tefli einnig með Riddaranum, félagi skákmanna eldri borgara í Hafnarfirði, sem hefur aðstöðu á vegum Hafnarfjarðarkirkju.

Er meðlimur í Fríkirkju Hafnarfjarðar, en heimsæki kirkjur út um allt.

frikirkjan_hafnarfir_i_-_lotning_-.jpg

domkirkjan_-_lotning_1068328.jpg hafnarfjar_arkirkja_-_lotning_-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

         Fríkirkjan Hafnarfirði                               Dómkirkjan  Reykjavík                           Hafnarfjarðarkirkja                             

blomin_skarta_sinu_-2.jpg

 blomin_skarta_sinu_-3.jpg

 

 

 

 

 

 

 

               Elskulegu fallegu blómin skarta sínu fegursta og eru ekkert að metast sín á milli

teflt_i_bro_erni_i_kr.jpg teflt_i_bro_erni_i_riddaranum_hafnarfjar_arkirkju.jpg 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

       Menn tefla í bróðerni í KR heimilinu                        Menn tefla í bróðerni í Riddaranum á vegum Hafnarfjarðarkirkju


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband