13.3.2011 | 11:33
Maðurinn er sköpunarafl
Við erum eins og droparnir í hafinu og hafið er þá Skaparinn, öðru nafni Guð.
Sannreyndu þessa mögnuðu vitneskju með því að skapa þítt eigið líf. Skapa þína eigin hamingju.
Vertu gerandi á þínu áhrifasvæði. Það er raunverulega hægt að umbreyta sínu lífi. Því meira sem þú trúir því, því sterkari og áhrifaríkari verða þín verkfæri.
Sköpunarafl þitt er enginn ímyndun. Þú ert einmitt þetta þó þér sé ekki tamt að trúa að svo stórt geti búið í þínum veikbyggða líkama.
Vertu maður og lítill Guð í sameiningu!
Samkvæmt Martinusi er Guðsneisti okkar eilífur
Samkvæmt Martinusi þá fyrirgefur hinn fullkomni maður út í hið óendanlega og þannig breytir hann sögunni með sinni eigin breytni. Hann verður friðflytjandi, "friðarhöfðingi" sem snýr stríðsástandi yfir í friðarástand.
Okkar trúarhöfðingi gekk einmitt á undan til að sína magnað fordæmi. Hann gekk sjálfviljugur til krossfestingar, þó hann hefði getað flúið þau hræðilegu örlög.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.