Hvaða fíkn er ákjósanleg ?

Þessi spurning flýgur um hugann eftir lestur á frétt í Morgunblaðinu.

Þar er talað um að fíkniefnasalar kynni marijúana sem lífræna úrvalsvöru.

Í skrítnum heimi, er hægt að rugla fólk í ríminu, einmitt það fólk sem er veikt fyrir nýjungum í sinni tilveru. Sérstaklega þá sem eru ungir og í mótun. Þegar slíkt fólk rennur af leið, þá skemmir það heilbrigða ályktunargáfu sína og verður í raun sjálfu sér verst.

Ég vil nefna til sögunnar fáein atriði, sem við skulum nefna jákvæða fíkn, og sjá hvort að þeim fylgi eitthvað sem er þess virði að nýta sér.

1. Drykkur sem líkaminn setur í fyrsta sæti er vatn.

2. Matur sem líkaminn setur í fyrsta sæti er korn.

3. Hvíld sem líkaminn setur í fyrsta sæti er svefn.

4. Andlegt heilbrigði á sér einn góðan félaga og vin: góð samviska.

5. Líkamlegt heilbrigði á sér einn góðan félaga: hreifanleika. Sem er hægt að fullnægja með óteljandi góðum venjum, svo sem íþróttum af mörgum gerðum, en þá þarf að varast öfgar sem leiða til andhverfu sinnar. Slíkt er algengt í ýmsum kraftaíþróttum.

Taktu eftir því, að það sem þér sjálfum finnst um þessar stoðir heilbrigðis, er stundum annað en líkaminn sjálfur kallar á.

Það má segja að rétt ályktun byggi á því, að þú standir utan við þinn eigin líkama og horfir til hans ópersónubundið, og leggir fram samviskuspurningar honum til heilla. Þá verður svarið annað heldur en ef þú spyrð eingöngu tunguna og bragðlaukana, en gleymir að spyrja magann og hjartað og aðra líkamshluta, hvað þeim komi best.

Því miður hefur hinn hvíti maður ofmetnast, vegna sinna tæknilegu afreka.

Hann hefur fjarlægst uppruna sinn.

Vatnið hefur maðurinn hætt að drekka, og býr til úr því allt annað, sem hann yfirleitt hefur lítið gott af. Nú er þó greinilegur afturbati í gangi, sem greina má af framboði á drykkjarvatni á ólíkustu stöðum, í stað kaffis sem var algengast.

Kornið hefur hann hætt að nota í upprunalegri mynd. Tekið í burtu hitt og þetta, og telur sig vera að gera betur heldur en náttúran sjálf.

Hvíld er lífsnauðsyn sem margir vanrækja.

Andlegt heilbrigði  hefur verið misfarið með, m.a. með því að taka allt gott og gilt. Horfa á kvikmyndir sem misbjóða skilningarvitunum. Búa til veröld sem enginn getur búið í, án þess að bíða tjón á sálu sinni.

Eftir þessa upptalningu, vil ég þó taka fram, að ég sé vakningu í nútímanum, fyrir því að hverfa frá slíkum eyðingarmætti. Leita frekar til upprunans og dýrka heilbrigðan lífsstíl.

Ég bind miklar vonir við þá jákvæðu viðhorfsbreytingu.

kvennahlaupi.jpg

 

 

 

 

 

 

Kvennahlaup síðustu ára er merki um viðhorfsbreytingu

borgarfulltruar_hvetja_til_hjolrei_a.jpg

 

 

 

 

 

 

Borgarfulltrúar hvetja til hjólreiða

hjolrei_ar_i_vinnuna-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hjólað í vinnuna

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband