Icesave og já og nei baráttuhóparnir

Nú má ég til með að leggja orð inn í umræðuna, um það hvernig við eigum að meðhöndla atkvæði okkar, þegar að kjördegi kemur.

Menn berjast hatrammlega hver fyrir sínum málstað, þó svo að báðir hafi mikið til síns máls.

Þetta minnir mig á, að Íslendingar hafa alla tíð verið miklir baráttumenn, og hvergi gefið eftir í málafylgju.

Þrátt fyrir þessa kosti (og galla), þá virðist þeim sem stendur utan við báða hópana, að fara megi með meiri yfirvegun og hófsemi um veginn.

Ég játa fyrir ykkur, að ég hef samúð með báðum þeim sjónarmiðum, sem leita eftir atkvæði mínu.

Hins vegar er ég sjálfur með skoðun, sem ég lét í ljós í bloggi 16.02.2011. Þannig að ég sit heima og er í þeirri einkennilegu stöðu að ég held með hvorugu liðinu!

Ef verður ofan á þá mun ég gleðjast yfir því að við höfum tekið í hönd grannþjóða okkar og handsalað samkomulag um lausn deilunnar. Jafnframt þarf ég að vona og biðja, að mál okkar þróist svo hagfellt, að við komum út úr deilunni með sanngjarnar byrðar miðað við stöðu mála í dag.

Ef nei verður ofan á, þá mun ég leyfa mér að vona, að mál okkar þróist þannig, að við komum út úr deilunni, með beint bak og óskaddaða ásýnd, og sanngjarnar byrðar miðað við stöðu mála í dag.

bjarni_ben-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Ég tek ofan fyrir Bjarna Benediktssyni fyrir að taka afstöðu - þó hún brjóti í bága við sterka flokksmenn í hans liði.

samfylkingin-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Samfylkingarfólk er að mestu leyti já - megin

vinstrigraen-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stuðningsmenn Vinstrihrefyingarinnar eru líklega mest já-megin ?

sjalfstfl-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Sjálfstæðisfólk er líklega nokkuð skipt milli - já og nei sjónarmiða

framsokn.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Framsóknarfólk er líklega nokkuð skipt milli - já og nei sjónarmiða

Þetta verða alla vega tvísýnar kosningar !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband