Heimsendaspámenn eru komnir á kreik

Það er ekkert smáræðis fyrirferð á heimsendaspámönnum þessa dagana.

Heilsíðuauglýsing í Fréttablaðinu.

Hver skyldi vera að eyða peningunum sínum áður en þessi auglýsti dómsdagur kemur?

Alveg er það ótrúlegt hvað menn endast til að spá heimsendi. Slíkt hefur verið gert ótal sinnum, en við erum hér þrátt fyrir allar spár.

Það væri betra ráð að sleppa svona hræðsluboðum. Þau valda taugaveikluðum og öðrum sem eru í ójafnvægi, sálarangist og hræðslu við hina komandi tíma.

Þetta er illa gert. Muniði eftir sértrúarsöfnuðinum í Bandaríkjunum, sem fyrirfór sér fyrir nokkrum árum, allir sem einn.

Það á að lifa þannig að það velti ekki allt á tímanum sem við kveðjum, enda vitum við aldrei hvað okkur eru skammtaðir margir dagar.

Best af öllu er að lifa hvern dag eins vel og mögulegt er. Gera gott úr hlutunum, en vera tilbúin hinu óvænta. Vona þó helst að hið óvænta beri með sér góða tíð.

Ég geng rólegur til hvílu þegar ég hef lokið þessari grein. Mun hlakka til að vakna á morgun. Þá er hugmyndin að spila brids og hafa gaman af því. Síðan verður farið í borðtennis og haft gaman af því.

Eftir það er farið í kvöldmat og hans notið með öllum skilningarvitunum.

Ég vona að sem flestir njóti þess að lifa lífinu lifandi. 

Vinkona mín sendi mér óvenjulegar kirkjumyndir, sem ég vil endilega gefa ykkur hlutdeild í.

Ýtið hér, ef þið viljið eignast óvenjulegar kirkjumyndir:


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband