Færsluflokkur: Heimspeki
2.10.2011 | 22:35
Gagnrýnin hugsun og siðfræði
Það gleður mig að sjá áhuga fyrir gagnrýninni hugsun, samhliða því að siðfræði er nefnt til sögunnar sem nauðsynlegt kennsluefni, sem þurfi að auka og bæta.
Mín skoðun er sú að siðfræði megi gjarnan vera fyrst upptalið og númer eitt á þessum lista og síðan komi gagnrýnin hugsun.
Því hvaða gagn er það manninum að eignast allann heiminn ef hann fyrirgerir sálu sinni.
Með öðrum orðum, þá er siðferðið eða sálarheillin það sem fyrst þarf að vernda og hlúa að, til þess síðan að geta tekið upp gagnrýna hugsun um málefni efnis og anda, heims og hugmynda.
Ég hef oft haldið því fram, að gagnrýnin hugsun án siðferðis, sé vindhögg hið mesta. Grunnstoðirnar þurfa að vera heilar og ófúnar til að halda uppi heilbrigðri umgjörð sem stendst tímans tönn.
Þá fyrst erum við fær um að koma fram með gagnrýnin hug, enda þarf hann að innihalda kærleika og vizku aldanna.
Ekki má hugurinn vera andlaus og sneyddur gróanda hins besta sem mannkynið hefur alið með sér, heldur þvert á móti, því hann á að flytja með sér fræ hins komandi tíma og vera umhverfi sínu hinn sanni hjálparandi.
Heimspekingur á að flytja með sér allt það besta sem þjóðfélagið getur melt og meðtekið.
Gagnrýnin hugsun og siðfræði má lesa um hér.
Páll Skúlason er mikils virtur heimspekingur sem metur siðferðisgildi mikils
30.9.2011 | 01:03
Geir Jón Þórisson kveður lögregluna
Þessi vinalegi stóri maður hefur verið vel sýnilegur gegnum árin.
Hann hefur verið framvörður lögreglunnar í Reykjavík hin síðari ár.
Alveg stórkostlegur í allri framgöngu.
Vinsamlegur hvað sem yfir hann gengur.
Ég man það svo greinilega þegar tekið var sjónvarpsviðtal við hann eitt sinn á Austurvelli.
Þar var þá allt í hers höndum og mikill ofsi og geðraskanir ráðandi í mörgum.
Fullt af villingum sem nýttu sér ástandið til að koma sínum brengluðu hugmyndum í verk.
Menn sem fóru fram með ofbeldi og skemmdarfýsn í stað friðsamlegra og virðulegra mótmæla.
Það var hreint undur að heyra svo hinn jákvæða tón í yfirlögregluþjóninum Geir Jón.
Hann var eins og fæddur friðarhöfðingi sem lægði öldurnar, eða slökkviliðsmaður sem sussaði á eldinn.
Alveg er það klárt að hans verður sárt saknað.
Erfitt verður að fara í sporin hans.
Hafi hann þökk fyrir hvað hann er góð fyrirmynd, ekki aðeins fyrir lögregluna, heldur einnig fyrir hinn almenna mann.
Geir Jón Þórisson er einstakur maður
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 01:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2011 | 14:01
Íslenskar kirkjur - Bókaútgáfa sem er tímamótaverk
Nú er búið að senda á markað frá hendi Þjóðminjasafns Íslands og Húsfriðunarnefnd, ásamt með Biskupsstofu mikið bókasafn sem inniheldur allar friðaðar kirkjur á landinu.
Bókasafnið samanstendur af 7 prófastsdæmum með alls 16 bókum.
Þetta safn er ég nú að njóta að fara yfir og má til með að senda þakkir til hlutaðeigandi fyrir glæsilega vinnu.
Þar fer saman nákvæm samantekt um byggingarsögu og helstu kirkjumuni, ásamt fallegum myndum.
Þarna sést ljóslifandi hvílikur trúararfur er verndaður í kringum þessar kirkjur sem á sínum tíma voru friðaðar, þannig að ekki má farga þeim né láta þær fara í niðurnýðslu.
Á undan þeim höfðu verið kirkjur á öldum áður, svo að sagan er löng og teygir sig langt aftur um aldir.
Manni verður hugsað til alls þessa hagleiksfólks sem komið hefur að smíðum og sóknarstarfi, sálmagerð og innblásnu safnaðarstarfi. Enginn smáræðis trúararfur, sem hér birtist og unnið hefur að sínu, að mestu í kyrrð og hógværð.
Fólk í staðfastri trú á æðri mátt, er þarna að fylgja þræðinum eftir og láta gott af sér leiða.
Hefur fyrir sjónum hugsjónir um betri heim, sem það vill hlúa að með því að leggja sitt að mörkum.
Allt er þetta byggt á bjargi traustu og enginn breyskleiki mannanna getur eyðilagt fagrar hugsjónir.
Hvammskirkja fyrir fáeinum árum
Hvammskirkja í dag, með nýjan (gamlan) turn, eins og hann var um 1940
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2011 | 11:35
AGS kallar eftir hugrökkum stjórnmálamönnum
Hverjir eru hugrakkir stjórnmálamenn, eða til forystu fallnir.
Hvernig væri að stærsti stjórnmálaflokkur þjóðarinnar velji sér hugrakka forystu.
Þar gæti hinn mikli skörungur Davíð Oddsson verið fremstur í flokki, bæði sem stjórnvitringur og lipur samningamaður, með færni þeirra fremstu.
Þar gæti honum til hægri handar verið Hanna Birna Kristjánsdóttir. Hún væri kjörin sem hinn góði samvinnumaður, sem vill tengja flokka og fólk saman til góðra verka.
Þetta er tillaga mín til að flokkurinn komi sterkari til starfa fyrir land og þjóð.
Muna menn eftir Konrad Adenauer, þýskum stjórnmálaskörungi sem kallaður var "öldungurinn", enda var hann einn elsti þjóðarleiðtogi í sögunni.
Hann endurreysti Vestur-Þýskaland úr rústum og eymd eftir síðari heimsstyrjöldina, til voldugs ríkis sem naut virðingar um allan heim.
Davíð er framúrskarandi stjórnmálamaður og gæti komið inn í landsmálinn sem þroskaðri og yfirvegaðri en áður.
Hanna Birna gæti komið inn í landsmálinn sem fulltrúi yngri kynslóðarinnar, enda hefur hún sannað sig í borgarmálefnunum.
22.9.2011 | 11:05
Forræðishyggja gengur of langt
Í áratugi hafa kvenfélög haldið kökubasar eða kaffisölu til að fjármagna ýmsan kostnað sem til fellur í samfélaginu.
Þar getur verið um að ræða hjálparstarf hvers konar, kirkjustarf og ótal margt sem konur þessa lands vilja rétta hjálparhönd með framtaki sínu.
Nú heyrir maður af því að einhver ráðherra er að agnúast út í svona jákvætt framtak, undir því yfirskyni að matvælafyrirtæki þurfi starfsleyfi.
Ekki er hægt að tala um matvælafyrirtæki, þó einstaklingar taki sig til og baki kleinur eða annað sem tilheyrir eldamennsku á heimilum landsmanna, og nýtt er í mannúðarskyni.
Allir mega baka kökur og gefa þeim sem vilja þiggja, og flestir þekkja af því að góðgjarnar konur baka til að gefa eldra fólki og til mannúðarmála. Það væri smánarlegt ef sú góða iðja yrði niðurlögð vegna banns frá opinberum aðilum.
Því miður eru ýmsir því marki brenndir að þeir þola ekki að vera í valdastöðu, án þess að fara yfir strikið í reglugerðarleiðangri sínum.
Það er nauðsynlegt að meðalhófs sé gætt við stjórn landsins.
Aðhald og virðing fyrir lögum eru góð og nauðsynleg.
Frjálsræði einstaklinga er einnig bundið í lögum og er góð og nauðsynleg á sama hátt og hið fyrra.
Ráðamenn þurfa endilega að vita hvar þeirra takmörk eiga að liggja, og haga sér í samræmi við það.
Þannig ná allir að geta notið sín, jafnvel þó þeir búi við stjórn "hinna vinnandi stétta".
Hér er umrædd grein úr Fréttablaðinu í dag.
18.9.2011 | 01:05
Hanna Birna er til forustu fallin !
Mitt álit er það að Hanna Birna sé til forustu fallin og geti verið mjög góður fulltrúi stærsta flokks þjóðarinnar.
Sérstakir hæfileikar hennar eru mikil mælska.
Það sem er þó þýðingarmest eru hennar viðhorf til samferðamanna sinna. Hún sýndi það sem borgarstjóri, að hún lítur í kringum sig og sér samverkafólk í öllum sem eru a sama vettvangi. Hún virkjar til samstarfs og verka, þá sem eru í öðrum flokkum, sem er sjaldgæft og staðfestir að hún meinar það sem hún segir, að hún vilji byggja brýr á milli fólks og flokka.
Hún er þannig hin vel gerða samvinnukona.
Með þessa æskilegu eiginleika þá höfðar hún til miklu fleira fólks, heldur en ella væri raunin.
Hanna Birna er æskilegur forustumaður og ekki spillir útlitið !
15.9.2011 | 11:54
Stefanía Jónasdóttir Sauðárkróki kveður sér hljóðs
Ég má til með að vekja athygli almennings á skarpri grein Stefaníu frá Sauðárkróki.
Maður finnur innra með sér að þarna er talað af innstu sannfæringu, um efni sem kemur öllum Íslendingum við. (Ég hef orðið Íslendingum með stórum staf að ásettu ráði.)
Meira að segja nefnir hún til sögunnar og skorar á Davíð Oddsson að koma aftur í stjórnmálin, vegna þess að hann sé örugglega Íslandsvinur.
Þetta er ekkert smáræðis innlegg í umræðu dagsins, því ýmsir aðrir hafa orðið til þess að óska eftir kröftum Davíðs. Það virðist mikil þörf á sérstökum mönnum, með greind, með skap, með íslenska eiginleika af bestu gerð.
13.9.2011 | 10:56
Illugi Gunnarsson aftur á þing
Það verð ég að segja, að lengi hef ég haft mikið álit á Illuga.
Ekki hefur hann gefið mér tilefni til vonbrigða að þessu leyti.
Alltaf er hann kurteis og fágaður. Unun er að fylgjast með svona mönnum og njóta krafta þeirra við stjórn landsins.
Auðvitað munu einhverjir hnjóta í hann. Það losnar enginn undan slíku sem fer í störf til almannaþágu.
Hvað sem því líður þá óska ég þessum fyrirmyndarmanni alls hins besta, þegar hann tekur á ný til starfa fyrir þjóð sína.
Ég tek fram til að fyrirbyggja mistúlkun, að ég þekki manninn eingöngu sem einn úr fjöldanum, sem hef fylgst með hans athöfnum frá þeim sjónarhóli.
Illugi Gunnarsson er alltaf til fyrirmyndar
10.9.2011 | 16:50
Pólitískt ofstæki er því miður rótgróið hjá okkur
Eftir að ég hældi Guðna Ágústssyni fyrir vinsamlegan tón í pólitískri umræðu, þá datt mér í hug að ástæða væri að nefna og vara við neikvæðu og barnalegu tali um pólitíska andstæðinga.
Þannig er að ég var í mannfagnaði um daginn. Þar var m.a. vinafólk mitt sem ég met mjög mikils. Þar á meðal kona ein sem er mér mjög kær. Ég lít á hana sem gull af manni, svo kærleiksríka og hjálpfúsa hvar sem hún fer.
En eitt vantar hana tilfinnanlega og það er pólitíska sanngirni og réttsýni. Það á svo sannarlega við um marga fleiri.
Orðin sem hún lét falla voru þessi: "Sigmundur er skítseiði" og þar átti hún við forustumann Framsóknarflokksins Sigmund Davíð Gunnlaugsson.
Hvað hafði konan svo upp úr krafsinu. Hún ætlaði auðvitað að minnka áhrif Framsóknarflokksins og um leið að bæta við fylgi síns eigin flokks.
Auðvitað snérist svona tal henni í óhag. Það var miklu frekar að hún hafi gjaldfellt sínar eigin hugsjónir með þessu gálauslega tali og misst samsvarandi meðbyr fyrir sinn eigin flokk.
Því miður er til fullt af fólki sem er á sömu slóðum og hér er lýst, en hið eina sem út úr því kemur er meiri glundroði og moldviðri út um allar trissur.
Svo sannarlega er pólitík dauðans alvara. Hún verður hins vegar ekki endurbætt öðru vísi en að hafa sanngirni og hófsemi með í för.
10.9.2011 | 14:25
Vel mælt !
Mikið var notalegt að lesa grein Guðna Ágústssonar í Morgunblaðinu í dag.
Þar nálgast Guðni pólitíska umræðu þannig að unun er að.
Hann segir m.a. "það þurfa að vera góðir menn í öllum flokkum", og "Fari Guðmundur í friði".
Umræðuefnið er m.a. úrsögn Guðmundar Steingrímssonar úr Framsóknarflokknum.
Það væri ánægjulegt ef pólitísk umræða færi meira fram á svona kurteislegum og vinsamlegum nótum, þar sem örlar fyrir sanngirni og skynsemi langt fram úr því sem venjan er.
Guðni hefur oft komist vel að orði og er skemmtilegur maður
Grein Guðna má lesa hér
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)