Færsluflokkur: Heimspeki
7.9.2011 | 12:52
Kínverska tilboðið á Grímsstöðum
Þetta merkilega tilboð frá Kína, er eitt af meiriháttar málum dagsins í dag.
Rétt í þessu var ég að lesa tvær áhugaverðar greinar um málið í Morgunblaðinu.
Fyrri greinin heitir: Kínversk risafjárfesting er takmörkunum háð og er eftir Baldur Guðlaugsson lögfræðing sem kom að samningu lagafrumvarps um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri.
Þar fáum við athyglisverðar upplýsingar um hvernig skuli standa að sundurgreiningu og meðferð slíkra mála. Guðlaugur leggur fram spurningu í lok greinar sinnar, hvort fjárfestirinn þurfi heila 300 ferkílómetra lands vegna sinnar fyrirhuguðu atvinnustarfsemi.
Næsta grein, ekki síður áhugaverð heitir: Kína og Ísland og er eftir Svein Óskar Sigurðsson MSc í fjármálum, MBA og BA í heimspeki og hagfræði.
Sveinn fer skilmerkilega yfir sögu Kínaveldis, mannréttindi og upprisu þessa mikla ríkis. Hann er jákvæður í umsögn sinni en segir svo í lokin: "Sterkari tengsl Íslands við Kína styrkir stöðu okkar sem þjóðar á meðal þjóða. Við verðum þó ávallt að tryggja að stjórnvöld í Kína virði okkar sjálfsákvörðunarrétt, sjálfstæði og menningu."
Þetta er vel mælt og í raun eru þessar tvær greinar náskyldar þó þær komi úr tveim áttum. Nú er aðeins að vona að niðurstaðan sem stjórnvöld og þjóðin komast að, verði heilladrjúg fyrir land og þjóð.
Kínverski múrinn, stór og mikilfenglegur eins og Kínverska heimsveldið
Helstu náttúrugersemar Íslands eru ekki manngerðar
3.9.2011 | 01:24
Jón Baldvin og Eystrasaltslöndin
Fréttatíminn birtir um þessa helgi viðamikla grein um þátt Jóns Baldvins Hannibalssonar við frelsun Eystrasaltslandanna.
Ég man vel þegar þessir viðburðir áttu sér stað. Þá var ég stoltur af utanríkisráðherra þjóðarinnar og ég fann til þakklætis að tilheyra þessari þjóð.
En í sambandi við þetta mál þá leikur mér forvitni á að vita hvernig Davíð Oddsson og hans ráðuneyti kom að málinu.
Svo undarlega vill til að þessa er ekki minnst svo mig reki minni til, hvort Jón Baldvin hafi haft samþykki og blessun ríkisstjórnarinnar til að takast á hendur þessa áhrifaríku ferð.
Af hverju hafa fréttamenn ekki spurt Jón og ríkisstjórnarmeðlimi um þann þátt málsins.
Þó auðvitað hafi Jón verið mikill gerandi, þá er nauðsynlegt að halda til haga hver afstaða ríkisstjórnarinnar var, og hafi hún einróma verið honum samstíga, þá má það gjarnan fréttast svo enginn vafi sé á.
Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi utanríkisráðherra fyllti þjóðina stolti með framgöngu sinni við frelsun Eystrasaltslandanna.
Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra og hans ráðuneyti hlýtur að hafa verið samstíga utanríkisráðherra. Það væri mjög gott að fá það skírt og greinilega fram svo að allir njóti sannmælis sem að málinu koma.
31.8.2011 | 20:33
Ögmundur innanríkisráðherra í kastljósinu
Ég vil bera lof á Ögmund fyrir hans nálgun á umsókn Kínverja (einstaklings og ríkis) um kaup á landi.
Það er allt gott um framsetningu Ögmundar að segja. Hann vill gæta að öllum hliðum málsins. Sérstaklega því sem kemur Íslendingum best í bráð og lengd.
Einfalt en um leið einfeldningslegt væri að rétta fram höndina til að taka á móti greiðslu fyrir landið, án þess að skoða hvað á eftir kemur.
Í þessu samhengi bendi ég á grein í Morgunblaðinu í dag eftir Leif Sveinsson lögfræðing.
Hlekkur á greinina er hér
Hann kemur með mjög gott innlegg og ég ráðlegg öllum að lesa það.
Á meðan umræða fer af stað um framhaldið bið ég fólk að taka málið sömu tökum og Ögmundur og Leifur. Það er að hugsa það gaumgæfilega frá öllum hliðum og rasa ekki um ráð fram.
Heimspeki | Breytt 17.1.2012 kl. 09:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.8.2011 | 18:20
Eiturlyf og árar Vítis
Heiti þessa pistils er ekki án ástæðu og samlíkingin er vel viðeigandi.
Þegar einstaklingar eða hópar nota eiturlyf, þá er það ígildi þess að banka á dyr Vítis og bjóða árum þeim sem þar eiga bústað, að koma í dans.
Auðvitað verður sá dans ígildi faðmlags við Myrkrahöfðingjann sjálfan, þar sem einstaklingurinn úr mannheimum fer hallloka fyrir dansfélaga sínum.
Það hef ég heyrt sagt að mjög erfitt sé að hjálpa þessu ólánsfólki sem ánetjast eiturefnum, einmitt vegna þess að hin myrku andlegu öfl fá aðgang að þessu fólki.
Það veit ég til, að fjöldi fólks er á bæn til hjálpar hinum ólánsömu fíklum, og má það biðja heitt og lengi til að ná árangri gegn ofurvaldi hins myrka heims.
Hvað er þá til ráða.
Auðvitað fyrst og síðast að koma aldrei - ég segi aldrei - í námunda við eiturefni.
Halda sig í þeim hluta heimsins, þar sem sólin skín og viðfangsefni dagsins eru mannleg og leysanleg. Sleppa öllu samneyti við hinn myrka heim, þar sem ólánsemin og óhamingjan sprettur fram í hverju spori.
Gangi ykkur vel sem hlustið á þessi orð.
28.7.2011 | 01:14
Þjóðkirkjan er miklu merkari stofnun en sem nemur sekum einstaklingum.
Þetta er mér efst í huga, þegar búið er að ljúka þeim vandamálum sem komu upp, vegna framferðis Ólafs biskups.
Kirkjan er framlenging og birting þeirrar trúar sem með hverjum manni býr.
Ekki er hægt að búast við að innan hennar séu allir fullkomnir.
Ekkert frekar en að allir lögregluþjónar séu algjörlega löghlýðnir.
Það er mikið gleðiefni að kirkjuleg yfirvöld hafi fundið sér farveg með slík vandamál.
Þá verður vonandi hætt að kalla eftir því að saklausir menn gjaldi fyrir hina seku.
Þörfin á að skapa fagrar byggingar Guði til dýrðar fylgir mannkyninu
Íslendingar hafa einnig lagt mikið á sig af sama tilefni
25.7.2011 | 12:45
Norski morðinginn má ekki fá opin réttarhöld
Þá á ég við, að hann má ekki fá aðstöðu til að ávarpa fjölmiðlamenn.
Með slíku sjónarspili væri honum hampað. Hann kæmi með réttlætingar fyrir morðæði sínu, en það má aldrei verða.
Hann vekti með því aðra ofstækismenn til að róa á svipuð mið og hann sjálfur.
Ekkert má gera sem getur orðið vatn á millu þessa brenglaða manns.
Ég vil heldur sjá, að þessi voðaatburður verði upphaf að mannlegri nálgun í stjórnmálum og öðru því sem að þjóðfélaginu snýr.
20.7.2011 | 12:41
Heimspekin um hamingjuna
Það eru margar leiðir í boði þar sem fram fara lífsspekikerfi margskonar.
Á þessu ári las ég speki Rope Yoga og líkaði vel það sem fram var sett.
Ég hélt í einfeldni minni að þetta væri æfingakerfi með köðlum og hafði ekki hugmynd um hvaða æfingar færu fram, né hvers konar heimspeki svifi þarna yfir vötnunum.
Nú hef ég lesið langa kynningu eftir Guðna Gunnarsson og get með gleði mælt með þessu heimspekikerfi, því það er vel upp sett og fellur alla vega mjög vel að mínum smekk.
12.7.2011 | 22:36
Hverjir mega lifa og hverjir eiga að deyja ?
Það er í raun furðulegt að nokkur maður skuli voga sér að setja fram þau "rök" að það sé peningasparnaður fyrir ríkið að ákveðin tegund manna fái ekki að fæðast.
Í frétt frá Danmörku kemur fram að fóstrum með downseinkenni sé kerfisbundið eytt.
Það er verið að setjast í hásæti Skaparans með slíku inngripi, nema að þetta séu verk manna sem ekki hafa neinn Skapara í sinni heimsmynd, og séu því sjálfir komnir í það dómarasæti.
Þannig hlýtur það að vera, þar sem það þykir gott og gilt að ákveðnir kynþættir fái að lifa, en aðrir megi ekki lifa, og slíka ákvörðun voga menn sér að taka, sem ekki hafa guðlegt vald.
Auðvitað myndi vera sett spurningamerki við þann sem teldi sig hafa slíkt guðlegt vald, og ætla sér að nota það á þennan veg.
Það boðar ekkert gott að dauðlegir menn séu að leika höfuðskepnurnar, og taka fram fyrir hendur hinnar ósýnilegu veraldar.
Hvernig er annars hægt að ræða við fólk um rétt og rangt, sem aðhyllist svona þankagang.
Hitler lét kerfisbundið eyða sjúku fólki, ásamt því að eyða öllum þeim gyðingum sem hægt var að ná í.
Ef hann hefði látið boð út ganga um að illu fólki skyldi alls staðar rutt úr vegi, þá hefði hann sjálfur verið settur í gasvélarnar og óteljandi margir með honum. Líklega hefði fátt fólk verið eftir.
Það furðulega er líklega sú þversögn að einmitt hið ljúfa og einlæga fólk, með sín downseinkenni, yrði líklega eina fólkið sem fengi að halda lífi, við slíkar kringumstæður.
Heimspeki | Breytt 13.7.2011 kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2011 | 12:54
Vek athygli á góðri grein Kristjáns Hall
Kristján er með grein í Morgunblaði gærdagsins, sem er andsvar við pistli um arfleifð torfbæjanna.
Hér er ekki um hefðbundið karp að ræða, milli ólíkra viðhorfa, heldur notar Kristján tækifærið til að draga fram fyllri og raunsannari mynd af lífi fólksins á þessu tímaskeiði.
Ég bið fólk að taka sér tíma til að lesa þessa grein, því hún vekur athygli á því að hver tími hefur sín viðfangsefni, sínar þrautir og sínar hamingjustundir.
Við, fólk dagsins í dag, getum alveg eins misstigið okkur í okkar vellystingum, eins og þeir sem lifðu við þrengri kost á árum áður.
Á sama hátt getur fólk gærdagsins einnig hafa átt sínar hamingjustundir, hvað sem líður ytri aðstæðum.
10.7.2011 | 01:39
Þjáningin og lífið - megum við vera hamingjusöm?
Þjáningin hennar ömmu er viðfangsefni pistilsins.
Þannig er að hún amma mín elskuleg var ljósmóðir hér í Hafnarfirði og tók á móti flestum hafnfirðingum sem komu í heiminn á fyrri hluta síðustu aldar.
Hún var einlægur sósíalisti, eftir að bróðir hennar Dr. Benjamín H. Eiríksson kom frá Rússlandi og hafði sannleikann með sér í vasanum.
Þ.e.a.s. þann sannleika að sósialismi væri lausnin á þjáningunni og lífsgátunni.
Þetta var áður en Rússar réðust inn í Finnland, en þá snerist Dr. Benjamín frá trúnni, en ekki hún amma!
Amma sem ljósmóðir kom á mörg fátæk heimili, þar sem eina ríkidæmið var mannauðurinn.
Á ömmu hvildu allar syndir og vandamál heimsins. Fátæktin og vanmátturinn á þeim dögum var fólki efst í huga.
Þannig mun ég minnast þessarar gegnu konu, með þennan alvarlega svip, starfandi í Góðtemplarareglunni, því hún hafði séð hvernig vínið fór með heimilin.
Afi, Stígur Sæland, maðurinn hennar ömmu, var lögregluþjónn í Hafnarfirði og fylgdi heilshugar sömu slóð með starfi í Góðtemplarareglunni. Auðvitað sá hann hið sama í sínu starfi, að óregla var rót mistaka og óhamingju.
Þrátt fyrir að amma sæi fyrirheitna landið í austri, þá sótti hún kirkju eins og eldri kvenna var siður á þeim tíma.
Hún lét ekki austrið ráða öllu !
Það merkilega er að þegar amma sá lausn lífsbaráttunnar leysta austar á hnettinum, var verið að murka lífið úr vesalings fólkinu sem stritaði þar á akrinum.
Þetta er vissulega mikil þverstæða og því er samfara mikil sorg og vonbrigði, hvernig fólkið fer með meðbræður sína.
En eins og ég hef sagt margsinnis, þá verður ekkert þjóðfélag betra en einstaklingarnir sem það byggja.
Mikill stjórnmálamaður, Davíð Oddsson, vitnaði oft í ömmu sína og ég er ekkert frá því að þessar tvær ömmur hafi átt margt sameiginlegt.
Amma 70 ára - alltaf í íslenskum búning