Færsluflokkur: Heimspeki

Hvítasunnan er höfuðtími heilags anda

Vísindavefurinn segir um heilagan anda: "Hlutverk heilags anda er að upplýsa sérhvern mann og endurnýja gjörvalla sköpun Guðs. Hann er sagður sá umskapandi kraftur sem kemur öllu góðu til leiðar í mannlífi og náttúru."

Ekkert lítið hlutverk sem heilagur andi hefur í lífi sérhvers manns. Þá er ekki óeðlilegt að spyrja hvernig maðurinn geti náð að verða upplýstur af þessum umbreytandi krafti. Krafti sem gerir alla hluti nýja.

Í viðbót við að halda fast í verund Guðs allar stundir, má einnig styrkja hinn skapandi kraft með hugleiðslu, með bæn, með síverandi nálægð við hinn stóra og mikla anda sem umlykur allt okkar líf.

heilagur_andi_vi_skirnina-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Heilagur andi kemur gegnum skírnina

uppljomun_i_gegnum_thjaninguna-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Gegnum þjáninguna kemur umbun skilnings og náðar

ad_skynja_texta_gu_s-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við lestur á háleitum texta kemur heilagur andi í heimsókn

hendur_sem_thjona-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Gegnum þjónustu nálgast maðurinn heilagan anda

 falleg_nattura_og_hreint_loft_-.jpg

 

 

 

 

 

 

Með því að lesa í sköpun Guðs


Land of Hope and Glory

Þetta er frægt lag þar sem Breska heimsveldið fær lof og prís.

Í heimsstríðinu síðara lék Bretland stórt og afgerandi hlutverk til varnar Evrópu og heiminum öllum.

Ég hef áður nefnt til sögunnar og sagt frá því að Bandaríkin hafi tvívegis bjargað hinum frjálsa heimi frá tortímingu, þar sem einræðisöflin voru næstum búin að knésetja Evrópu.

Þó hlutur Bandaríkjanna hafi verið stór og komið sem frelsandi vindur á elleftu stundu, þá má alls ekki gleyma hlut hinna minni landa, og þá sérstaklega Bretlands.

Þar fór fyrir Winston Churchill hinn stórbrotni forustumaður Bretlands.

Frakkland var fallið og Bretland stóð eitt eftir. Það var aðeins tímaspursmál hvenær Þýskaland Hitlers hæfi lokasóknina á England.

Bretland var á þessum tíma vanbúið hertólum. Þar uggðu menn ekki að sér, eftir að fyrra heimsstríðinu lauk. Töldu menn að friður héldist um langa hríð og óþarfi væri að vígbúast við þær aðstæður.

Á sama tíma var Þýskaland að hervæðast sem aldrei fyrr. 

Þó kom engum í hug hvílík ragnarök fylgdu nasismanum. Hann reyndist í engu vera betri en kommúnisminn, sem Stalín stjórnaði, þegar hann fórnaði fólki sínu á altari eigin vitfyrringar.

Þegar ég heyri lagið Land of Hope and Glory þá streyma þakklætistár niður kinnar mínar.

Ég er hluti af þessari sögu, man eftir stríðinu, þó ég byggi í öryggi á Ísafirði. Hef notið vestræns hugsunarháttar, þar sem reynt var að gera þjóðfélagið mennskt og aðlaðandi.

Vera Linn syngur: Land of Hope and Glory

vera_linn-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vera Linn var fræg söngkona frá stríðsárunum

Frægasta lag sem Vera Linn hefur sungið er We will meet again.

Það lýsir hinum mikla trega og sársauka hermannanna og vandamanna þeirra, þegar þeir voru sendir á vígvellina og máttu vera sér þess meðvitandi, að dauðinn var með í för, og ef til vill kæmu þeir ekki til baka.

Hér syngur Vera Linn þetta fræga lag.


Konur trúa á Guð

Þessa setningu sá ég í DV og hafða eftir Svarthöfða, sem þar er dálkahöfundur.

Auðvitað trúa konur á Guð, hvernig má annað vera. Þær sjá undur sköpunarinnar í stærra ljósi og meiri nánd en hitt kynið sem ekki var nefnt til sögunnar.

Þær bera börn innra með sér frá fyrstu snertingu, og bera síðan velferð þeirra fyrir brjósti alla sína ævi, eftir að þau eru komin í þennan heim.

Svo vill nú til að mikill fjöldi karlmanna trúa einnig á Guð. Trúa á Skaparann. Að alvitund sé til staðar og við sem einstaklingar séum hluti hennar.

En aftur að konunum.

Hugsið ykkur hvað margar mæður krjúpa í bæn vegna barnanna sinna.

Þær kveikja á kertum og senda einlægar bænir til blessunar börnunum sínum.

Auðvitað teygja þær sig lengra og senda blessunarorð til verndar annarra en sinna eigin barna.

Þetta verður til þess að konur fá næmari réttlætiskennd heldur en ella.

Með allt þetta í huga þá er ekki að undra að við setjum traust okkar á að konur bæti heiminn.

mo_urleg_umhyggja-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hér er hin móðurlega umhyggja séð með andlegum augum

blomin_skarta_sinu_-3.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 Konur hlúa að blómum og viðhalda þeim

prinsessa_4.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stundum eru konur líkastar draumi

englar_4_b.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Konur sjást ætið sem verndarar barnanna 


Geir Haarde ákærður - er ekki sárt að vera Samfylkingarmaður?

Já, ég spyr ykkur ágætu samfylkingarmenn. Er ekki viðkvæmt og sárt að vera samfylkingarmaður og horfa upp á, og bera að nokkru leyti ábyrgð á, að vammlaus fyrrverandi vinnufélagi Geir Haarde, er fyrsti maðurinn sem þarf að sitja undir pólitískum réttarhöldum.

Á sama tíma situr Björgvin Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðherra á friðarstóli og án ákæru.

Einnig situr Jóhanna Sigurðardóttir fyrrverandi formaður viðskiptanefndar á friðarstóli og án ákæru.

Það hlýtur að vera mjög óþægileg staða að horfa upp á þessa skökku mynd af réttlætinu.

Ég legg til að þið reynið að bæta úr þessu með því að skrifa undir stuðningsyfirlýsingu við Geir Haarde.

Slóðin á síðuna er hér 

samfylkingin-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Ég bið Samfylkingarfólk að styðja Geir Haarde og skrifa undir stuðningsyfirlýsinguna


Stuðningssíða við Geir Haarde - malsvorn.is

Ég var að skrá mig inn á stuðningsmannasíðu við Geir Haarde.

Flott framtak hjá þeim sem standa fyrir þessu átaki.

Ég hvet alla til að skrá sig og leggja eitthvað að mörkum fjárhagslega.

Geir Haarde er fyrir landsdómi, hvorki meira né minna, og hefur þó ekki framið neitt afbrot!

Þetta er fráleit niðurstaða, og því fleiri sem sjá hvers konar kórvilla er hér viðhöfð, því betra fyrir okkar mann.

Fram, fram, allir réttlátir menn!

geir_haarde_4.jpg

 

 

 

 

 

 

Geir Haarde er sýndur stuðningur - síðan heitir: malsvorn.is

Hlekkur á síðuna


Þorsteinn Pálsson með frábæra grein í Fréttablaðinu

Þar skrifar Þorsteinn um hin pólitísku réttarhöld yfir Geir Haarde.

Hann tekur hliðstæðu af hinum frægu réttarhöldum, í Rússlandi Stalíns, yfir Búkharín.

Þarna finnur Þorsteinn frábæra samlíkingu, því þessi réttarhöld yfir Geir Haarde eru einsdæmi í lýðræðisríki, yfir manni sem hefur ekkert afbrot framið.

Þegar litið verður til baka yfir þessa tíma, munu menn sjá hversu stórt pólitískt klámhögg hefur verið slegið.

Það þyrfti að fara alla leið yfir í McCharthy tímann í Bandaríkjunum, til að sjá viðlíka brjálæði í lýðræðisríki.

Vonandi læra menn af þessari ótrúlegu villu, sem verður til í pólitísku ölduróti, sem slær menn út af laginu, og þeir gera það sem hendi er næst, þó svo það sé augljóslega vindhögg hið mesta.

_orsteinn_p-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Þorsteinn Pálsson fær 5 stjörnur fyrir grein sína

geir_haarde_6.jpg

 

 

 

 

 

 

Geir Haarde "sakborningur" í pólitískum réttarhöldum


Björn Bjarnason, merkur stjórnmálamaður sestur í helgan stein

Það er við hæfi að þakka Birni Bjarnasyni fyrir sérstaklega merkt og mikilsvert stjórnmálastarf, þar sem hann hefur lagt  að mörkum, miklu meira en gengur og gerist.

Vil ég sérstaklega nefna til sögunnar, að Björn hóf að blogga, eins og það er kallað, og gefa fólki innsýn í verk sín og stjórnmálin almennt, með mjög miklum ritsmíðum.

Hann hefur bloggað lengur en aðrir stjórnmálamenn. Reið á vaðið í netheimum og nýtti sér tækni sem þá var að hefja innreið sína.

Alltaf hefur verið áhugavert að fylgjast með skrifum hans og verkum. Hann var og er sívinnandi og ekki er hægt að segja, að hann hafi reynt að komast létt frá sínum ráðherradómi.

Það mega margir taka Björn sér til fyrirmyndar. Það væri betur komið fyrir þjóðinni ef vinnusemi og elja Björns svifi, í sama mæli, yfir verkum annarra stjórnmálamanna.

Einnig færi ég Birni til tekna að hafa æft jógakerfi, sem inniheldur líkamsæfingar og heimspeki andans.

Það er öllum hollt að hafa víðsýni og djúphygli sér til halds og trausts.

Björn Bjarnason

 

 

 

 

 

Björn Bjarnason - fyrirmyndar stjórnmálamaður            


Löng er sagan af reykingum síðustu áratuga

Ég var langt á undan minni samtíð, þegar ég setti upp skilti á rakarastofunni minni, þar sem ég bað menn að hlífa mér við tóbaksreyk, á meðan ég sinnti því að klippa viðkomandi viðskiptavin.

Þetta þætti fróm og sanngjörn ósk nú til dags.

Annað var upp á teningnum, þegar ég setti upp skilti á stofuhurðina heima og bað fólk að hafa ekki reykingar um hönd, meðan það dveldi í stofu minni!

Ýmsum þótti þetta mikið feilhögg og lýsa fanatík og frelsisskerðingu reykingarmanna.

Enda eru komin ein 30 - 40 ár síðan, og þá var ekki orðið eins þróuð vörn gegn óbeinum reykingum, eins og er reyndin í dag.

Aldrei hafði ég þó það hugmyndaflug, að einhvern tímann kæmi til þess, að mælt yrði með því að reyktóbak og annað tóbak, yrði aðeins til sölu í Lyfjaverslunum.

Svona getur þróunin tekið af okkur öll völd, og við orðið að þægum þegnum, sem ekki er leyft að óhlýðnast, eða leyfa sér neina lesti.

Nú er fyrirséð að við verðum vöktuð með aðstoð myndavéla, sem munu sekta okkur, ef við förum svo mikið sem 5 km eða jafnvel minna, fram yfir leyfilegan hámarkshraða.

Samskonar eftirlit er hugsanlegt með aðrar reglur sem ekki má brjóta eða beygja.

Þannig verðum við njörvuð niður og bókin um alræði ríkisins 1984, mun sannast á okkar tímum.

sigretta_a.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Nú vitum við hvað sígretta hefur að geyma

humphrey_bogart_a.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Humbrey Bogart var tískan holdi klædd fyrir 60 árum

 


Kjarnorkuslysið í Fukushima veldur tímamótum

Ég hef verið að fylgjast með ótrúlegri þrautagöngu Japana, eftir að flóðbylgja reið yfir landið, í kjölfar jarðskjálfta. Bylgjan fór yfir kjarnorkuverið í Fukushima og það eyðilagðist.

Hræðilegar afleiðingar þessa slyss, hefur vakið Japani og fleiri, til vitundar um hverslags tímasprengja er fólgin í kjarnorkuverum heimsins.

Í fréttum dagsins í dag kemur fram, að Þjóðverjar hafi ákveðið að loka kjarnorkuverum sínum fyrr en áður var ákveðið, í ljósi slyssins í Fukushima.

Við Íslendingar erum aldeilis heppnir með okkar orkubúskap. Höfum aldrei þurft að treysta á kjarnorku.

Nú þegar augu manna opnast fyrir áhættunni sem fylgir kjarnorkunni, að allt líf er í stórhættu, þegar eitthvað fer úrskeiðis, þá er aðeins ein leið til út úr skaðræðinu.

Það er að hætta alfarið að nota kjarnorku.

Sannarlega stórt skref að stíga fyrir þjóðir, sem hafa fáar náttúruauðlindir, að halla sér að.

Aðrir valkostir eru ekki í boði, því lífið á hnettinum hlýtur að ganga fyrir öllu öðru.


Hverjir koma og bjarga jörðinni á 21. öldinni ?

Við höfum fyrir okkur að Bandaríkin voru bjargvættur 20. aldarinnar.

Fyrst komu þeir til að bjargar Evrópu, þegar hinn þýski her marseraði yfir álfuna 1914-1918.

Næst komu þeir í sömu erindagjörðum, þegar hinn hræðilegi þýski her, með gunnfána Nasista í fararbroddi, flæddi yfir Evrópu. Þá var með sanni hægt að segja að lengi getur vont versnað.

Nú er þessi hryllingur komin nokkuð langt inn í söguna og farið að fenna í sporin.

Samt ekki meira en svo, að sá sem þorir að segjast vera nasisti, verður um leið stimplaður persona non grata, samanber danska leikstjóran Lars VonTrier, þegar honum var skipað á brott frá Cannes.

En spurning þessa pístils er um bjargvætti núverandi aldar. Hverjum er treystandi til að bjarga jörðinni í gegnum vanda núverandi tíma?

Bandaríkin eru að sönnu stórveldi, enginn vafi er á því. En hvað með hugsjónaeldinn og skaphöfnina. Er þessi þjóð búin að ganga of lengi á velsældarvegum og því sé skaphöfn hennar orðin lin og vekgeðja?

Þannig má vel spyrja, því án þess að lifa í aga og andríki hreinu, verður ekki til hugsjónaeldur sem kveikir glóð meðal mannanna.

Mér kemur í hug hvort Rússar séu tilbúnir til að koma fram sem leiðandi afl á þessu sviði. Því hefur verið spáð fyrir langa löngu, að vegna sérstakrar þrautagöngu þjóðarinnar, sé hún nú búin að skapa með sér þá eiginleika, sem forustuþjóð þarf til að bera, svo hún geti látið gott af sér leiða.

Þetta getur auðvitað vel verið of snemmt, því lýðræðið er þar mjög vanmáttugt, sérstaklega samanborið við Íslendinga, sem eiga lengstu lýðræðishefð sem þekkt er á vesturhveli jarðar.

En Rússar eru kröftug þjóð með mikinn auð og svari þeir kalli og komi til alþjóðlegs uppbyggingarstarfs, þá er það um leið aflvaki þjóðarstyrks þeirra, því aukin ábyrgð gefur af sér aukinn þroska.

Þessa dagana eru Bandaríkjamenn að biðla til Rússa um að miðla málum í Líbíú. Kannski verður þar fyrsta skrefið stigið til meiri alþjóðlegrar þátttöku.

Næg eru verkefninn.

Bandariski faninn

 

 

 

 

 

 

Bandaríkin, stórveldið sem tvívegis hefur varið hinn frjálsa heim

Russneski faninn

 

 

 

 

 

 

Rússland, stórveldið sem á eftir að sanna sig sem forustuafl


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband