Færsluflokkur: Heimspeki
22.5.2011 | 00:42
Sovét-Ísland óskalandið, hvenær kemur þú?
Þessi fræga setning er úr kvæði eftir Jóhannes úr Kötlum, frá því um miðja síðustu öld.
Í spurningunni liggur mikil hugsjón og mikil þrá, eftir einhverju betra en var í boði á þessum árum.
Til að höfundurinn njóti sanngirni, þá er rétt að hafa í huga, úr hvaða jarðvegi og tíma, þessi magnaða setning er fram komin.
Gulagið í Sovjet var ekki orðið opinber staðreynd.
Sovjetríkin voru ekki hruninn af stalli.
Á þessum árum voru margir sem litu á kommúnisma, sem leiðina til hins fulkomna þjóðfélags, þar sem reisn einstaklingsins og mannhelgi væri í hávegum höfð.
Í dag vitum við svo miklu miklu meira!
Allt sem hafði verið falið og haldið í leynum, er nú öllum opið og ljóst. Mannhelgin var ekki í heiðri höfð.
Við höfum komist að því að þjóðfélagið verður ekki betra heldur en einstaklingarnir sem byggja það.
Við höfum komist að því að hið frjálsa orð, tjáningarfrelsið, er nauðsynlegt til að geta þróast fram á við og bætt heiminn.
Af hverju er ég með þessar hugleiðingar einmitt núna?
Það er vegna þess að mörgum er tíðrætt um að Sovjet Ísland sé að festa sig í sessi um þessar mundir.
Sá stóri munur er þó á, að við fáum að kjósa okkur fulltrúa á fjögurra ára fresti, hið minnsta.
Og Íslendingar kjósa ekki yfir sig helkalt stjórnmálakerfi, heldur eitthvað mennskt, eitthvað afl sem vill færa öllum skilyrði til lífs og vaxtar.
Kosningar eru þarfar og nauðsynlegar og verða haldnar innan tíðar
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 00:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2011 | 10:21
Heimsendir og hugleiðingar
Dagurinn í dag er talinn sá síðasti samkvæmt spá gamals manns i Ameríku.
Í tilefni þessa síðasta heimsendaspásdóms þá kemur margt upp í hugann.
Það er t.d. algjör vissa að "heimsendir" á sér stað í lífi hverrar manneskju, vegna þess að dauðinn sækir alla heim.
Þrátt fyrir þessa staðreynd, er eins og fáir kippi sér upp við þá viðkvæmu vitneskju.
Hvernig má það vera að menn taka ekki alvarlega þetta stutta líf, vitandi að "heimsendir" er innan seilingar, með vísan til skapadægurs okkar allra?
Mér finnst miklu líklegra að menn myndu fara betur með möguleika sína, ef framtíðin væri höfð með í heildarmyndinni.
Gleðjumst yfir fegurð heimsins með því að skoða blómateppið á Grand Place í Brüssel
14.5.2011 | 00:13
Það eru aðeins ein trúarbrögð - trúarbrögð kærleikans
Kjarninn í kenningum Sai Baba hafa borist mér í hendur, og mér er það kærkomið að fá að deila þeim með þér.
Það eru aðeins ein trúarbrögð, trúarbrögð kærleikans
Það er aðeins einn kynþáttur, kynþátturinn mannkynið
Það er aðeins eitt tungumál, tungumál hjartans
Það er aðeins einn Guð, og hann er alltumverandi.
- Með Guð sífellt í huga, þá sér maður alla sköpunina sem birtingu guðdómsins í öllum formum
- Með því að undirstrika hið mikilvægasta, sem hnýtir saman öll trúarbrögð, sem og að hafa skilning og samúð með öllum trúarbrögðum, vegna þess að þau grundvallast á kærleikanum
- Með því að líta á alla vinnu sem þjónustu tileinkaða hinum guðdómlega
- Með því að hafa samúð með öllum vandamálum, og hafa ætíð hinn guðdómlega kærleika í stafni, sem kemur fram í skilningi, meðaumkun, þolinmæði, góðvild og greiðvikni o.s.frv.
- Með því að gera allt í kærleikans nafni, hafna því að syndga og halda uppi háum siðferðisstaðli í samfélaginu.
- Með því að taka þátt í andlegu uppeldisstarfi og þjónustu, bæði sem einstaklingur og sem hluti af samfélagsþjónustu, sem haldið er uppi af mannúðarfélögum, án þess að ætlast til sérstakra launa eða hyglunar, heldur eingöngu sem auðmjúkur þjónn sem vill njóta kærleika Guðs og náðar.
Trúa á Guð - vegna þess að það er aðeins einn Guð fyrir alla menn, þó svo að hann sé nefndur mörgum nöfnum.
Fylgdu af einlægni þínum trúarbrögðum og lifðu lífinu í samhljóm með kenningunni um góða breytni og gott siðferði.
Sýndu öllum trúarbrögðum virðingu - vegna þess að engin trúarbrögð beina kenningum sínum að lakari eðlisþáttum mannsins.
Framkvæmdu fórnfúst starf fyrir hina fátæku, sjúku, og hina þurfandi, án hugsunar um laun eða umbun.
Lifðu lífi þínu í sannleika, guðdómlegum kærleika, réttri breytni, friði og án valdbeitinga og reyndu að koma þessum verðmætum til skila meðal allra.
Vertu réttsýnn og farðu eftir lögum lands þíns.
Þeir sem fylgja Sai Baba eru beðnir að tileinka sér 9 atriði:
1. Stunda hugleiðslu og bæn daglega
2. Stunda helgihald með félögum þínum, og biðja bænir með fjölskyldunni einu sinni í viku
3. Taka þátt í námi sem framkvæmt er af miðstjórninni fyrir börn Sai Baba meðlima.
4. Taka þátt í samvinnuverkefnum og öðrum framkvæmdum sem lúta að viðhaldi starfsins.
5. Taka þátt í hópstarfi með andlegum söng, minnst einu sinni í mánuði.
6. Lesa reglulega í ritverkum Sai Baba
7. Tala mjúklega og kærleiksríkt við alla
8. Aldrei að tala illa um aðra, sérstaklega þegar þeir eru fjarverandi.
9. Gera að veruleika að "eyða löngunum", og nýta sparnað til að hámarka þjónustu við fólkið. Það má draga saman í eftirfarandi: Ekki henda mat...ekki fara illa með fæðuna. Ekki eyða orku, rafmagni, þinni eigin orku (of mikið tal, reiði, afprýðissemi og annað neikvætt, sem er sama og eyða Guðdómlegri orku) Ekki eyða tíma ... því tíminn er lífið sjálft. Ekki eyða peningum.
Tíu leiðbeiningar til að lifa eftir:
1. Líttu á fæðingarstað þinn og land sem heilagan stað. Vertu stoltur af þjóð þinni, en ekki gagnrýna aðrar þjóðir eða lítilsvirða. Ekki skaltu á nokkurn hátt valda landi þínu sorg.
2. Berðu virðingu fyrir öllum trúarbrögðum á jafnan hátt.
3. Líttu á mannhafið sem eina fjölskyldu - komdu fram við alla eins og fjölskyldumeðlim - elskaðu alla.
4. Hafðu hús þitt og umhverfi hreint - það mun bæta heilsuna og verða þér til blessunar.
5. Stundaðu góðgerðastörf - en ekki skaltu ýta undir betlara með peningagjöfum. Gefðu mat, föt, húsaskjól og hjálpaðu á annan hátt (ekki ýta undir leti).
6. Aldrei að gefa mútur eða taka við þeim - aldrei að ýta undir spillingu.
7. Eyddu öfund og afprýðissemi, útvíkkaður sjónarhorn þitt og hugmyndir, komdu fram við alla á jafnan hátt, án tillits til trúar eða kynþáttar.
8. Reyndu að gera sem mest sjálfur - þú getur orðið ríkur og fengið þjóna - þjónn þinn getur hjálpað - en þjónusta við þjóðfélagið þarftu að gera sjálfur - í eigin persónu.
9. Lifðu og þjónaðu í "Kærleika til Guðs og forðastu synd" - hafðu andstyggð á syndinni.
10. Aldrei skaltu brjóta lög landsins - fylgdu þeim alltaf - bæði í orði og á borði - vertu fyrirmyndar borgari.
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 01:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2011 | 20:00
Íslendingar, bjóðum lúpínuna og hennar dýrð velkomna
Nú er sumarið komið, eftir nokkra frábæra daga. Mann fer að hlakka til sumarsins, með sínum fögru blómum og öðrum gróðri.
Þá varð mér á að hugsa til lúpínunar. Þetta fallega blóm virðist fara í taugarnar á þeim yfirvöldum, sem við treystum fyrir að vernda umhverfið og gróðurinn.
Einhver mótsögn er í þessu öllu saman og slæm hugsanavilla.
Allur gróður sem getur þroskast á Íslandi, er komin til að vera. Það er eingöngu veðurfarið sem ræður takmörkun gróðurs, það á ekki að vera á hendi manna, að ákveða fyrir okkur öll, hvað má gleðja augu okkar og hvað ekki.
Lúpinan í sínum fegursta skrúða sumarið 2010
Tvísmellið fyrir stærri mynd
11.5.2011 | 11:48
Ég dæmi Geir Haarde saklausan!
Hvernig stendur á því að ég voga mér að setjast í dómarasæti, sem hvorki er lögfræðingur né saksóknari.
Hins vegar tel ég mig hafa ágæt skil á réttu og röngu.
Enda er það svo, að verjandi Geirs, finnur að lélegum rökstuðningi saksóknara.
Er það ekki einmitt fyrsta vísbending um að saksóknin er á sandi byggð?
Það getur ekkert annað komið út úr dómsmáli gegn fyrrverandi forsætisráðherra, en að hann fái viðurkenningu fyrir að hafa staðið sig einna best allra sem í embættinu hafa setið.
Það væri það eina rétta í stöðunni, enda á Geir miklar þakkir skildar fyrir snöfurmannleg tök á landsstjórninni, þegar allt hrundi sem hrunið gat.
Geir var snöfurmannlegur þegar mest á reyndi
Heimspeki | Breytt 12.5.2011 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2011 | 12:35
Mitt heimili var að greiða hraðasekt á stofnbraut
Já, en hvað er svo merkilegt við það?
Skoðum það nánar.
Staðurinn er Álfaskeið í Hafnarfirði og er gatan stofnbraut hverfisins.
Engum bílum er lagt við götuna - þarna er víðsýnt
Tvísmellið á myndina til að sjá aðstæður nánar
Og svo er það hraðinn. Ekið var á 39 km samkvæmt mæli, síðan voru tekin til frádráttar vikmörk um 3 km svo sektin var miðuð við 36 km akstur.
Nú bið ég fólk að meta aðstæður og spyrja sig, hvort þetta sé eðlilegt á þessum vegi á þessum stað.
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.5.2011 | 18:36
Lífljóseindagreining og sjúkdómsmeðferð
Fyrir nokkru las ég um þetta fyrirbæri lífljóseindagreiningu og meðferð. Greinin birtist í blaði Heilsuhringsins sem sent er út á netinu nú orðið.
Ég hafði samband við hlutaðeigandi og fékk meðferð með þessari aðferð.
Í stuttu máli get ég sagt frá því, að nú eftir einar fimm-sex meðferðir, finnst mér ég vera tíu árum yngri.
Það munar um minna.
Hér fylgir svo grein um þessa aðferð, sem gerir meðferðinni fullnægjandi skil.
6.5.2011 | 10:28
Geir Haarde og dómurinn
Mér verður mjög hugsað til fyrrverandi forsætisráðherra Geir Haarde.
Á sínum tíma, var ekki annað að sjá, en að hann ræktaði sitt starf af alúð.
Þegar kom að bankahruninu, þá stóð hann vaktina af stakri elju, og þær ráðstafanir sem hann stóð fyrir, hin svokölluðu neyðarlög, komu því til leiðar, að við búum við betra ástand í hrunmálunum, en ella hefði orðið.
Þessi maður, af öllum mönnum, er dreginn fyrir dóm, vegna sinna vinnubragða!
Þetta er alveg ótrúlegt að horfa upp á.
Hins vegar hefur komið í ljós, og ekki síst þessa daga, að bankamennirnir hafa verið ósvífnari í sínum glæpaverkum, en nokkurn óraði fyrir.
Þeir hafa gengið gjörsamlega fram af þjóðinni.
Þeir eru ekki fyrir rétti eða í fangelsi, sem þó sannarlega hafa unnið fyrir langri refsivist.
Enga sök sé ég hjá þessum manni
Heimspeki | Breytt 7.5.2011 kl. 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2011 | 00:29
Heimsendaspámenn eru komnir á kreik
Það er ekkert smáræðis fyrirferð á heimsendaspámönnum þessa dagana.
Heilsíðuauglýsing í Fréttablaðinu.
Hver skyldi vera að eyða peningunum sínum áður en þessi auglýsti dómsdagur kemur?
Alveg er það ótrúlegt hvað menn endast til að spá heimsendi. Slíkt hefur verið gert ótal sinnum, en við erum hér þrátt fyrir allar spár.
Það væri betra ráð að sleppa svona hræðsluboðum. Þau valda taugaveikluðum og öðrum sem eru í ójafnvægi, sálarangist og hræðslu við hina komandi tíma.
Þetta er illa gert. Muniði eftir sértrúarsöfnuðinum í Bandaríkjunum, sem fyrirfór sér fyrir nokkrum árum, allir sem einn.
Það á að lifa þannig að það velti ekki allt á tímanum sem við kveðjum, enda vitum við aldrei hvað okkur eru skammtaðir margir dagar.
Best af öllu er að lifa hvern dag eins vel og mögulegt er. Gera gott úr hlutunum, en vera tilbúin hinu óvænta. Vona þó helst að hið óvænta beri með sér góða tíð.
Ég geng rólegur til hvílu þegar ég hef lokið þessari grein. Mun hlakka til að vakna á morgun. Þá er hugmyndin að spila brids og hafa gaman af því. Síðan verður farið í borðtennis og haft gaman af því.
Eftir það er farið í kvöldmat og hans notið með öllum skilningarvitunum.
Ég vona að sem flestir njóti þess að lifa lífinu lifandi.
Vinkona mín sendi mér óvenjulegar kirkjumyndir, sem ég vil endilega gefa ykkur hlutdeild í.
Ýtið hér, ef þið viljið eignast óvenjulegar kirkjumyndir:
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 00:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2011 | 00:41
Sai Baba varð 94 ára samkvæmt tímatali Hindúa
Talið hefur verið að Sai Baba myndi lifa til 94 ára aldurs eftir okkar tímatali, og því sé eitthvað misræmi milli hans frásagnar og raunverulegs dánardags.
Sai Baba talaði út frá þeirri venju Hindúa að miða við Tungl tíma (Lunar time), en hann er 27,21 dagur pr. mán.
Heildartími hans hér á jörðu var 30.833 dagar, deilt með 27,21 sem er 1133 mánuðir sem gerir 94 ár.
Sai Baba (1926-2011)