Færsluflokkur: Heimspeki

Tolli myndlistarmaður afhendir alþingismönnum möntru

Merkilegt og jákvætt framtak hjá þessum vinsæla listamanni, að afhenda alþingismönnum disk með möntru.

Ef alþingismennirnir hefja hugleiðslu og reyna að breyta atferli sínu, með jákvæðu innleggi í daglegt líf, þá er alveg víst að sjálft alþingi myndi breytast úr þeim baráttuvelli sem það er nú, yfir í jákvæðan og uppbyggjandi vinnustað, allri þjóðinni til heilla.

Megum við leyfa okkur að vona að eitthvað slíkt undur gerist ?

Það yrði stærsta gjöf sem þjóðin gæti fengið.

Þá færu stjórnmálin á hærra plan, og þjóðfélaginu yrði betur stjórnað, en nokkru sinni áður í sögu þjóðarinnar.

tolli_1073920.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tolli Morthens fær mína viðurkenningu fyrir þarft framtak

althingi-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Alþingi gæti orðið áhrifaríkara og jákvæðari vinnustaður

_sland-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Ísland er landið sem hýsir okkur og mennirnir sem stjórna því eiga að leiðast af æðri vitund


Fátækur er sá maður ...

Fátækur er sá maður sem eyðir lífi sínu í hégóma, því lífið er örstutt og því á að lifa.

Rækta sinn innri mann og horfa á hvern dag sem hinn eina sem okkur er gefin.

Nýta þetta sérstaka tækifæri og vera lifandi, skapandi og leitandi.

Hugsa!

Þær eru margar spurningarnar sem við ættum að varpa fram.

Af hverju er ég hér og hver er tilgangur lífs míns.

Hvernig get ég lifað frjósömu og farsælu lífi.

Hver hefur rétt fyrir sér. Er það maðurinn sem hefur hæst.

Eða er það maðurinn sem er hljóður og segir fátt,

en sem virðist segja eitthvað viturlegt þegar hann tjáir sig.

Þetta nefni ég einmitt núna, vegna þess að ég var við jarðarför,

þar sem rúmlega fimmtug kona í blóma lífsins var kvödd.

Lotusblómið_A

 Myndir SH 806

 

 

 

 

 

Blómin er svo falleg og gefa svo mikið af sér - án þess að biðja um nokkuð í staðin

reynivallakirkja_juli_2009.jpgbrautarholtskirkja_mynd_2a.jpg

 

 

 

 

 

 

kalfatjarnarkirkja_og_safna_arhus_-_1073746.jpg

 brei_abolssta_arkirkja_-_1073749.jpg

 

 

 

 

 

 

Þær eru vinalegar og fallegar gömlu íslensku sveitakirkjurnar


Icesave og já og nei baráttuhóparnir

Nú má ég til með að leggja orð inn í umræðuna, um það hvernig við eigum að meðhöndla atkvæði okkar, þegar að kjördegi kemur.

Menn berjast hatrammlega hver fyrir sínum málstað, þó svo að báðir hafi mikið til síns máls.

Þetta minnir mig á, að Íslendingar hafa alla tíð verið miklir baráttumenn, og hvergi gefið eftir í málafylgju.

Þrátt fyrir þessa kosti (og galla), þá virðist þeim sem stendur utan við báða hópana, að fara megi með meiri yfirvegun og hófsemi um veginn.

Ég játa fyrir ykkur, að ég hef samúð með báðum þeim sjónarmiðum, sem leita eftir atkvæði mínu.

Hins vegar er ég sjálfur með skoðun, sem ég lét í ljós í bloggi 16.02.2011. Þannig að ég sit heima og er í þeirri einkennilegu stöðu að ég held með hvorugu liðinu!

Ef verður ofan á þá mun ég gleðjast yfir því að við höfum tekið í hönd grannþjóða okkar og handsalað samkomulag um lausn deilunnar. Jafnframt þarf ég að vona og biðja, að mál okkar þróist svo hagfellt, að við komum út úr deilunni með sanngjarnar byrðar miðað við stöðu mála í dag.

Ef nei verður ofan á, þá mun ég leyfa mér að vona, að mál okkar þróist þannig, að við komum út úr deilunni, með beint bak og óskaddaða ásýnd, og sanngjarnar byrðar miðað við stöðu mála í dag.

bjarni_ben-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Ég tek ofan fyrir Bjarna Benediktssyni fyrir að taka afstöðu - þó hún brjóti í bága við sterka flokksmenn í hans liði.

samfylkingin-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Samfylkingarfólk er að mestu leyti já - megin

vinstrigraen-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stuðningsmenn Vinstrihrefyingarinnar eru líklega mest já-megin ?

sjalfstfl-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Sjálfstæðisfólk er líklega nokkuð skipt milli - já og nei sjónarmiða

framsokn.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Framsóknarfólk er líklega nokkuð skipt milli - já og nei sjónarmiða

Þetta verða alla vega tvísýnar kosningar !


Ruth Tryggvason heiðursborgari Ísafjarðar fallin frá

Frú Ruth var einstök kona og lifandi sönnun þess, að einstaklingurinn skiptir máli. Bæði fyrir sína nánustu og sitt bæjarfélg og fyrir samfélagið.

Ég heyrði fyrst af Ruth þegar hún kom til Ísafjarðar.

Það vakti gífurlega eftirtekt þegar þessi glæsilega kona kom til bæjarins til að hefja nýtt líf með Adda Tryggva, eins og hann var oftast nefndur.

Þar sem pabbi minn var danskur var mér málið skylt.

Síðar gerðist það að ég var barnapía í fáein skipti hjá þeim hjónum, líklega í kringum 1954-5. 

Enn síðar fór ég að spila á dansleikjum með Adda að Uppsölum.

Enn síðar fór ég til Danmerkur og þá var systir hennar Lis og hennar maður Börge mín stoð og stytta.

Þessum systrum og fjölskyldum á ég því mikið að þakka.

Varðandi framlag þessarar góðu konu til mannlífsins á Ísafirði, þá er ekki annað að sjá en Ísfirðingar hafi metið hana að verðleikum. Sýnt henni vináttu og virðingu við hæfi.

Við andlát hennar drýp ég höfði fyrir heiðursborgara Ísafjarðar.

tveir_gamlir_a_safir_i_2.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Útsýni yfir Silfurtorg séð frá Gamla bakaríinu

fra_safjar_arskogi_se_-_1.jpg

 

 

 

 

 

 

Frá Tunguskógi - Addi Tryggva ók á mótórhjóli til vinnu sinnar í Gamla bakaríinu


Krabbameinslæknir afneitar forvarnargildi matarins

Ég varð alveg hvumsa þegar ég heyrði fréttirnar í hádeginu.

Krabbameinslæknir stígur fram á sjónarsviðið og tekur heldur betur upp í sig.

Hann segir að ávextir og grænmeti hafi enga þýðingu í sambandi við krabbamein, hvorki meira né minna.

Þetta eru stór orð og ekki í neinu samhengi við vísindi og heimspeki nútímans.

Hann segir þó að hreyfing sé mjög ákjósanleg til viðhalds heilsunni. Þar erum við þó algjörlega sammála.

matarmynd.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Mynd af matartegundum sem teljast hindra krabbameinsfrumur

Máttur matarins
Nýjar leiðir í krabbameinslækningum
Svona forðast þú dauðann
Matur gegn krabbameini
Áhyggjur af mjólk


Margrét Pála og Hjallastefnan

Í þessari stefnu sé ég koma í ljós, hið besta sem hugsjónir hægri og vinstri stjórnmála eru að reyna að koma í framkvæmd.

Það er í aðra röndina hugsjónin um frelsi mannsins, til að hafa áhrif á sín eigin örlög.

Fá að ráða sínum málum.

Á hinn bóginn er það hugsjónin um samvinnu og mennsku í samfélaginu. 

Það brennur á fólkinu sem elur upp næstu kynslóð, að vinna þessum hugsjónum brautargengi.

barnagaesla.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Börnin læra að vera saman og halda friðinn


Hjallastefnan og stofnandi hennar eiga mína virðingu

Fréttatíminn í dag flytur sannarlega eftirtektarverða frétt. Hún er um einstaka konu, sem stofnaði Hjallastefnuna. Stefnu sem gengur út á, að ala upp börnin, svo úr þeim verði farsælt og gott fólk.

Margrét Pála Ólafsdóttir er merkileg manneskja. Hún sannar fyrir okkur, hvað hægt er að áorka, þegar gengið er fram með hugsjónir í farteskinu, og heilbrigðar lífsreglur sér til halds og trausts.

Þessa konu ættu allir að taka sér til fyrirmyndar. Þá væri hér margt á betri vegi.

Í viðbót við þær hugsjónir sem hér er um talað í upphafi, þá hefur Margrét Pála einnig sömu aðferðarfræðina og lífsgildið að leiðarljósi, þegar kemur að fjármálunum.

Þar gengur hún fram eins og sönn fyrirmynd.

Hvet ég alla til að lesa þessa grein og gera sér ljóst gildi hennar fyrir okkar framtíð.

Í þessari frétt sé ég ljósið í myrkrinu, fæðingu hins nýja tíma.

margret_pala_1-.jpg      margret_pala_i_barnalandinu-.jpg

 

 

 

 

 

 

   Margrét Pála í barnalandinu með hugsjón sína

 

Margrét Pála - á virðingu skilda

margret_pala_handsalar_samning.jpg

 margret_pala-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Margrét Pála handsalar samning                                           Konan sem gefur okkur von !


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Hvaða fíkn er ákjósanleg ?

Þessi spurning flýgur um hugann eftir lestur á frétt í Morgunblaðinu.

Þar er talað um að fíkniefnasalar kynni marijúana sem lífræna úrvalsvöru.

Í skrítnum heimi, er hægt að rugla fólk í ríminu, einmitt það fólk sem er veikt fyrir nýjungum í sinni tilveru. Sérstaklega þá sem eru ungir og í mótun. Þegar slíkt fólk rennur af leið, þá skemmir það heilbrigða ályktunargáfu sína og verður í raun sjálfu sér verst.

Ég vil nefna til sögunnar fáein atriði, sem við skulum nefna jákvæða fíkn, og sjá hvort að þeim fylgi eitthvað sem er þess virði að nýta sér.

1. Drykkur sem líkaminn setur í fyrsta sæti er vatn.

2. Matur sem líkaminn setur í fyrsta sæti er korn.

3. Hvíld sem líkaminn setur í fyrsta sæti er svefn.

4. Andlegt heilbrigði á sér einn góðan félaga og vin: góð samviska.

5. Líkamlegt heilbrigði á sér einn góðan félaga: hreifanleika. Sem er hægt að fullnægja með óteljandi góðum venjum, svo sem íþróttum af mörgum gerðum, en þá þarf að varast öfgar sem leiða til andhverfu sinnar. Slíkt er algengt í ýmsum kraftaíþróttum.

Taktu eftir því, að það sem þér sjálfum finnst um þessar stoðir heilbrigðis, er stundum annað en líkaminn sjálfur kallar á.

Það má segja að rétt ályktun byggi á því, að þú standir utan við þinn eigin líkama og horfir til hans ópersónubundið, og leggir fram samviskuspurningar honum til heilla. Þá verður svarið annað heldur en ef þú spyrð eingöngu tunguna og bragðlaukana, en gleymir að spyrja magann og hjartað og aðra líkamshluta, hvað þeim komi best.

Því miður hefur hinn hvíti maður ofmetnast, vegna sinna tæknilegu afreka.

Hann hefur fjarlægst uppruna sinn.

Vatnið hefur maðurinn hætt að drekka, og býr til úr því allt annað, sem hann yfirleitt hefur lítið gott af. Nú er þó greinilegur afturbati í gangi, sem greina má af framboði á drykkjarvatni á ólíkustu stöðum, í stað kaffis sem var algengast.

Kornið hefur hann hætt að nota í upprunalegri mynd. Tekið í burtu hitt og þetta, og telur sig vera að gera betur heldur en náttúran sjálf.

Hvíld er lífsnauðsyn sem margir vanrækja.

Andlegt heilbrigði  hefur verið misfarið með, m.a. með því að taka allt gott og gilt. Horfa á kvikmyndir sem misbjóða skilningarvitunum. Búa til veröld sem enginn getur búið í, án þess að bíða tjón á sálu sinni.

Eftir þessa upptalningu, vil ég þó taka fram, að ég sé vakningu í nútímanum, fyrir því að hverfa frá slíkum eyðingarmætti. Leita frekar til upprunans og dýrka heilbrigðan lífsstíl.

Ég bind miklar vonir við þá jákvæðu viðhorfsbreytingu.

kvennahlaupi.jpg

 

 

 

 

 

 

Kvennahlaup síðustu ára er merki um viðhorfsbreytingu

borgarfulltruar_hvetja_til_hjolrei_a.jpg

 

 

 

 

 

 

Borgarfulltrúar hvetja til hjólreiða

hjolrei_ar_i_vinnuna-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hjólað í vinnuna

 


Maðurinn er sköpunarafl

Við erum eins og droparnir í hafinu og hafið er þá Skaparinn, öðru nafni Guð.

Sannreyndu þessa mögnuðu vitneskju með því að skapa þítt eigið líf. Skapa þína eigin hamingju.

Vertu gerandi á þínu áhrifasvæði. Það er raunverulega hægt að umbreyta sínu lífi. Því meira sem þú trúir því, því sterkari og áhrifaríkari verða þín verkfæri. 

Sköpunarafl þitt er enginn ímyndun. Þú ert einmitt þetta  þó þér sé ekki tamt að trúa að svo stórt geti búið í þínum veikbyggða líkama.

Vertu maður og lítill Guð í sameiningu!

martinus_gu_sneistinn_1068829.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Samkvæmt Martinusi er Guðsneisti okkar eilífur

martinus-_hinn_fullkomni_ma_ur.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Samkvæmt Martinusi þá fyrirgefur hinn fullkomni maður út í hið óendanlega og þannig breytir hann sögunni með sinni eigin breytni. Hann verður friðflytjandi, "friðarhöfðingi" sem snýr stríðsástandi yfir í friðarástand.

Okkar trúarhöfðingi gekk einmitt á undan til að sína magnað fordæmi. Hann gekk sjálfviljugur til krossfestingar, þó hann hefði getað flúið þau hræðilegu örlög.

 


Að lesa biblíutexta

Ég hef haft þá venju að lesa mér til gagns.

Þannig að ef ég les biblíutexta, þá tek ég eingöngu mark á texta sem færir mér eitthvað jákvætt og uppbyggjandi.

Allt sem lyktar af niðurbroti og neikvæðni læt ég sigla sinn sjó og geri ekkert með það.

Það á við um allt mögulegt annað.

Val á bókum, kvikmyndum, tónlist, heimspeki, trúarbrögðum o.s.frv.

Á sama hátt forðast ég að vera of partískur. Fylgja einum hópi og leggja fæð á annann.

Ég ber virðingu og kærleika til minna trúarbragða og vona að annarra trúar menn séu jafn góðir þegnar sinna trúarbragða, án þess að leggja fæð á önnur trúarbrögð.

Því til staðfestingar, þá get ég sagt frá því, að ég spila borðtennis með Víking.

Tefli skák með skákdeild KR, og tefli einnig með Riddaranum, félagi skákmanna eldri borgara í Hafnarfirði, sem hefur aðstöðu á vegum Hafnarfjarðarkirkju.

Er meðlimur í Fríkirkju Hafnarfjarðar, en heimsæki kirkjur út um allt.

frikirkjan_hafnarfir_i_-_lotning_-.jpg

domkirkjan_-_lotning_1068328.jpg hafnarfjar_arkirkja_-_lotning_-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

         Fríkirkjan Hafnarfirði                               Dómkirkjan  Reykjavík                           Hafnarfjarðarkirkja                             

blomin_skarta_sinu_-2.jpg

 blomin_skarta_sinu_-3.jpg

 

 

 

 

 

 

 

               Elskulegu fallegu blómin skarta sínu fegursta og eru ekkert að metast sín á milli

teflt_i_bro_erni_i_kr.jpg teflt_i_bro_erni_i_riddaranum_hafnarfjar_arkirkju.jpg 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

       Menn tefla í bróðerni í KR heimilinu                        Menn tefla í bróðerni í Riddaranum á vegum Hafnarfjarðarkirkju


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband