Færsluflokkur: Heimspeki

Góð heilsa er grundvöllur lífshamingjunnar

Í fyrri pistli mínum dreg ég fram, að það er á eigin ábyrgð, að hlúa að heilsunni.

Hár aldur er enginn fyrirstaða til að njóta lífsins, svo fremi að heilsan sé góð. 

Það er á þínu valdi að styðja við heilsuna með réttum lífsstíl.

Sinna heilsueflingu, en forðast öfgar. Það er t.d. enginn lausn að bryðja sterapillur og verða útbólgið líkamströll.

hver_er_a_ljuga_thvi_a_eg_hafi_teki_anabola_a.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Hér er óheilbrigðið augljóst
Þetta fyrirbæri er miklu frekar sjúklegt, heldur en að það lýsi heilbrigðum líkama.

 

2906_bild1.gif

 

 

 

 

 

 

 

 

Á mínum uppvaxtarárum var Arne Tammer fyrirmynd ungra manna.
Hann þjálfaði fólk án þess að nota nokkur tæki.
Hann bað um 15 mínútur af daglegum tíma þínum og þá lofaði hann góðum árangri.

 

Taktu eftir fimleikafólkinu.

Það hefur stæltan líkama og heilbrigða samhæfni.

Þar eru engar svona ýkjur eins og ég var að lýsa.

Heilsan á að viðhaldast fram á grafarbakkann ef svo má segja.

Til að ná þeim árangri þarf allt að ganga upp.

Hugur og líkami að vinna saman, svo úr verði eins mikil lífsgleði og lífsupplifun og framast er unnt.

Gangi þér vel !


Af hverju að hafa sjúkdóma á heilanum?

Það er ekki einhugur um þá stefnu, að vera með stórvirka leitarstöð að sjúkdómum. 

Hafa læknar ekki meira en nóg að starfa, við að hjálpa þeim sem eru hjálpar þurfi. Er ekki eitthvað brogað við það, að bæta því svo ofan á, að leita að sjúkdómseinkennum, sem í 99% tilfella verða aldrei raunverulegir sjúkdómar.

Væri ekki nær, að leggja svipað átak í að kenna fólki, að lifa heilbrigðu lífi og þar sem slíkt dugar ekki til, til að viðhalda heilsu sinni, þá og þá fyrst, ætti að koma til kasta læknisins, við að endurheimta heilsuna.

Það eru margir, sem hafa uppgötvað sína raunverulegu skyldu, sem er í raun sú, að hugsa vel um sína velferð og heilsu. Enda stendur það engum nær.

Það er hvers manns hagur í bráð og lengd, og umbunin er vellíðan og lífsgleði í hæstu hæðum.

Það eru hin dýrmætu laun, því að góð heilsa er gæfa hvers manns.

Sá maður sem hefur misst allt hið efnislega, þakkar sínum sæla fyrir að hafa góða heilsu og geta þannig endurheimt efnisleg gæði, með því að vinna hörðum höndum.

Í þeim aðstæðum blessar maður góða heilsu.

prinsessa_4.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fallega prinsessan þarf að borða eitthvað annað en kökur til að viðhalda lengur sinni æskufegurð

Indversk fegurðardrottning frá árinu 1949

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Indversk fegurðardís frá 1949. Hennar fegurð var einnig hverful

unga_fallega_folki.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Unga fallega fólkið þarf að hugsa um sinn lífsstíl til að viðhalda góðri heilsu.

lifsgle_i_njottu.jpg

 

 

 

 

 

 

Njóttu heilbrigðrar lífsgleði

 


Sjálfvirknin léttir lífið

Nú eru fáeinir dagar þar til opnað verður fyrir skattaskýrsluna.

Hugsið ykkur þá breytingu sem orðin er á þessu sviði. 

Áður fyrr var meiriháttar mál að telja fram til skatts.

Nú til dags þarf aðeins að lesa tilbúna skýrsluna og kvítta fyrir, með því að senda hana inn, án þess að breyta stafkrók hjá flestum.

Þetta er meiriháttar framför og þarna verður líf okkar léttara og áhyggjuminna.

go_sjalfvirkni.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Hjartað er dæmi um góða sjálfvirkni

 

slaem_sjalfvirkni.jpg

 

 

 

 

 

Dæmi um slæma sjálfvirkni !

eilif_arvelin.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Eilífðarvélin er enn ekki fundin upp.

 

 

 


Er endurkoma Jesú í nánd ?

Af og til má sjá þessa setningu í fjölmiðlum.

Vandinn á að svara þessari spurningu, er fyrst og fremst sá, að svo fáir eru líklegir til að þekkja Jesú endurborinn.

Flestir trúarheitir menn, eiga auðvelt með að trúa því, að Jesú hafi í raun verið Guðssonur og gert kraftaverk.

Sömu menn sjá ekki sendiboða Almættisins í þeim sem á eftir hafa komið. Mönnum sem greinilega búa eða bjúggu yfir mikilli andagift og vizku. Í því sambandi er margra manna að minnast, sem hafa skarað fram úr, svo um munar, í gegnum aldirnar.

Þess vegna verða allar samkomur sem tala um endurkomu Krists, haldnar með þeim formerkjum, að hann sé ekki kominn og sé ekki á meðal okkar, en hann muni áreiðanlega koma í framtíðinni. 

Sú framtíð verður alltaf til staðar, en verður aldrei að nútíð, því þessum mönnum virðist vera það um megn, að hugsa sér tilveruna þannig, að þeir standi frammi fyrir endurbornum meistara frá Guðs mektarríki.

Ég get nefnt tvo menn, sem rísa undir því, að vera kallaðir Jesú endurborinn. Báðir hafa það sammerkt að hafa verið uppi á mínum dögum, ef svo má að orði komast.

Það er að segja, á tímabilinu frá 1900 til 2000.

Hins vegar tel ég það ekki þjóna neinum tilgangi, að fara út í smáatriði. Myndi aðeins vera til sundrungar meðal safnaðarins, og það er eingöngu til tjóns fyrir trúarlífið og samheldnina. 

Ástæðan er sú, að þeir sem sjá og skilja, þegar andlegir meistarar eru á ferð, þeir einir hafa gagn af og geta nýtt sér þá vitneskju, sér til aukins þroska.

Í Guðspekinni sem og ýmsum Mannbótareglum þar sem framþróun mannsins er í fókus, er lagt mikið upp úr því, að opinbera ekki um of, hin duldu sannindi.

Sjálfur lagði Jesú einmitt áherslu á það atriði, með frægri setningu, sem óþarfi er að hafa eftir. Það gæti hugsanlega einhverjum sárnað. Líklegra er þó hitt, að enginn taki það til sín.

himnariki-d-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Himnaríki varðað góðum verkum og miklum þrautum

himnariki---.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í skýjunum er hinn andlegi heimur

himnariki.jpg

 

 

 

 

 

 

Líklega er himnaríki í annarri vídd


Andardrátturinn tengir okkur Skaparanum

Hefur þú skoðað andardráttinn gaumgæfilega? Hvernig hann heldur áfram sínu starfi út í eitt.

Fyrir nokkrum áratugum var ég í trúarreglu, þar sem andardrátturinn var stór undirstaða í þeim æfingum, sem við þátttakendurnir framkvæmdum.

Æfingunum var ætlað að ná fram meiri nálgun við Skaparann. Meiri einingu við frumaflið.

Allir sem að þessu komu fengu umbun í formi betri heilsu og meiri skilnings á tilveru sinni.

Það er sagt að höfuðhár okkar séu talin og að andardrátturinn sé ákveðinn frá byrjun. Hvað sem því líður þá er merkilegt hvað þessi nauðsynlega framkvæmd - að anda - er viðkvæm. Enginn hindrun eða truflun má eiga sér stað, þá er líf okkar að veði.

Þrátt fyrir þessa augljósu staðreynd, er til fólk sem leggur sig fram um að eyðileggja þessa eðlilegu framkvæmd. Það er til fólk sem reykir ofan í lungun og gerir líffærunum mjög erfitt um vik að stunda sína þjónustu.

Það er settur fótur fyrir sjálft lífsinntakið.

Við dýpri hugsun um eðli málsins, þá er þetta framferði með algjörum ólíkindum.

falleg_nattura_og_hreint_loft_-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Falleg náttúra og hreint loft - dásamleg blanda!

falleg_nattura_og_hreint_loft_2.jpg

 

 

 

 

 

 

Falleg náttúra og ferðalög - dásamleg blanda!

falleg_nattura_og_hreint_loft.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Íslenskar náttúruperlur eru Guðdómlegar!

sigretta_a.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Megi þetta fyrirbæri hverfa úr mannheimi

 


Bókin um veginn eftir Lao-Tse

Þegar ég les þessa litlu en merkilegu bók, þá verður mér hugsað til þess að spekin sem hún flytur er óvenjulega gefandi, óvenjulega áræðin, óvenjulega krefjandi.

Krefjandi á þann hátt að maður þarf að hugsa!

Maður þarf að kryfja málin til mergjar.

Öllum er hollt að handleika slíkar gersemar.

bokin_um_veginn.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er dæmi úr bókinni:

LXXIV. ENGIN DAUÐAREFSING.

1. Til hvers er að hræða menn með dauðanum, ef þeir óttast hann ekki? Ef mönnum stæði sífelld ógn af dauðanum, og jafnan væri unnt að handsama illvirkjana og taka þá af lífi, - ætti þá að gera það?

2. Það vald er jafnan yfir okkur, sem kveður upp dauðadóminn. Að setjast í sæti þess, og taka af lífi, er líkt því, að klaufi fari að höggva með öxi smíðameistara. Hann kemst sjaldan hjá því, að höggva í hendurnar á sjálfum sér.

LXXV. ORSAKIR AÐ ÓGÆFU ÞJÓÐARINNAR.

1. Þjóðin þolir hungur vegna þungra skatta, sem stjórnendurnir eyða. Þetta er orsök að hungursneyð.

2. Það er erfitt að stjórna þjóðinni vegna íhlutunarsemi stjórnendanna. Þetta veldur erfiðleikum við stjórnina.

3. Fólkið veitist auðvelt að deyja, vegna þess að það erfiðar of mikið fyrir gæðum lífsins. Þess vegna lætur það sér dauðann í léttu rúmi liggja. Þess vegna er betra að láta sér lífið í léttu rúmi liggja, en að gera of mikið úr því.


Ég skulda fáeinum vítisáhugamönnum afsökunarbeiðni.

Forsaga málsins er sú að nokkrir aðsópsmiklir bloggverjar, hafa sameinast í ásökunum sínum á prestana, um að þar færu vítiskenningarsmiðir sem boðuðu stríð.

Mér rann til rifja þessar ásakanir og kom prestunum til hjálpar. Afsökun mín fyrir að grípa til varna, var sú að ég hef verið iðinn við reglubundna kirkjusókn, síðustu fimmtíu árin.

Á þeim tíma hef ég setið undir mörgum predíkunum margra mætra presta. Öll þessi ár hef ég aldrei heyrt neitt um vítisvistina. Eingöngu fengið að heyra fallegan boðskap um kærleikann og góða siði.

En svo gerðist það, að ég fékk athugasemd frá presti, um að víst væri þessi kenning viðurkennd. Vegna þessara orða prestsins, þá er mér ljúft að biðja þá bloggverja afsökunar sem hafa haldið þessu fram. Þeir hafa þá eitthvað til síns máls, eftir allt saman.

Því vil ég bæta við, að sjálfur lít ég á þessa kenningu sem barnalega og úr öllum takti við kærleiksboðskapinn. Hef ég talið þetta til nokkurs konar sölumennsku, gert til að hræða fólk til fylgis við trúnna, með því að hóta mönnum pínu og kvala ef það léti ekki að stjórn!

Sannast sagna hélt ég, að enginn myndi á þessari öld, vilja minna á löngu liðna og úrelta hugmynd, sem eingöngu getur skaðað kristindóminn og aðrar trúar birtingarmyndir manna.

Auðvitað er mér kunnugt um, að fyrr á öldum voru slíkir hávaðasamir prestar á kreiki, og ég veit ennfremur að jaðar trúflokkar halda fram öfgum á báða bóga. Fyrri öfgarnar eru þær að eingöngu þeir sem aðhyllast þeirra trúarhugmyndir munu hólpnir verða, og seinni öfgarnar eru þær að trúlausir eða annarra trúar menn, munu kveljast um eilífð í víti.

Ég ætla ekki að fjölyrða um þessar hugmyndir.

Mér finnst þær dæma sig sjálfkrafa úr leik.

_habaejarkirkju_er_thessi_fraega_mynd_af_krist_thar_sem_heinn_bi_st_fyrir_og_saekir_styrk_hann_veit_hva_a_pislargan.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kristinn trú

dalai_lama_-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Búddatrú

rettlaetisgy_jan_b.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Trúin á réttlætisgyðjuna er góð og gild

 

 

 


Frjálshyggja er ekki sökudólgur - heldur siðferðisbresturinn

Það er sífellt verið að klifa á því að frjálshyggjan hafi komið hér öllu í kalda kol.

Þess vegna hef ég farið að ígrunda málið og komist að þeirri niðurstöðu að frjálshyggjan sem slík sé ekki sökudólgurinn, heldur sé það siðferðisbrestur í samfélaginu.

Háskólinn brautskráði fólk árum saman, sem ekki fékk siðferðilegan mælikvarða í vegarnesti. Einstakir kennarar létu undir höfuð leggjast að halda uppi siðferðisboðskap í viðskiptum. Þetta merkti ég í samtölum við menn sem voru að útskrifast í slíkum fræðum. Það var haldið á lofti einhverjum viðskiptaformúlum þar sem siðferðisgildi voru sett til hliðar.

Frelsi manna er grundvallaratriði sem nauðsynlegt er að virða.

Hinn ungi maður fær aukið athafnarými, eftir því sem hann verður eldri. Hann fær aukið frelsi og aukna ábyrgð. Það er hinn eðlilegi gangur.

Ekki er þar með sagt, að um leið eigi að leggja af allar eðlilegar siðferðisreglur og samskipti borgaranna að breytast í einskonar vígvöll.

Samvinna er einnig góð og gild. Hún er nauðsynleg og skynsamleg. Það getur ekki komið í veg fyrir að hinn frjálsi vilji sé hinn eðlilegi mælikvarði, samhliða því að samvinna er viðhöfð í margskonar verkefnum.

Það sem við þurfum að temja okkur Íslendingar, er að vera sáttfúsari og samvinnufúsari, án tillits til stjórnmálaskoðana. Það eru þessar girðingar sem alltaf er verið að setja upp. Þú ert ekki í mínu liði, ekki í minni ríkisstjórn, ekki einu sinni í mínum eina sanna flokki! Þetta er alltof oft viðmiðið.

Hér verður ekki hið besta stjórnarfar fyrr en menn fara að starfa saman þvert á flokka. Fá það besta út úr hverju máli. Vera samferða. Setja sér sameiginleg markmið sem meginhluti þjóðarinnar er sammála um.

Það er leiðin til farsældar.

fallegur_dagur.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Sameiginleg farsæld fólksins - grundvallaratriði

forsetafaninn-.jpg

 

 

 

 

 

 

Forsetafáninn - sameiningartákn þjóðarinnar

17_juni_hei_ra_ur.jpg

 

 

 

 

 

 

Sjálfstæði þjóðarinnar fagnað


Icesave og þjóðaratkvæði

Nú virðist vera að koma að endapunkti deilunnar um Icesave.

Fari svo, að það komi til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið, þá tel ég það algjöra forsendu, að þjóðin fái að kjósa um fleiri kosti, heldur en aðeins að samþykkja eða hafna þeim drögum, sem koma frá alþingi.

Kostirnir væru þessir:

1. Samþykkja núverandi samning.

2. Samþykkja núverandi samning að viðbættu ákvæði Ragnars Hall lögfræðings.

3. Hafna núverandi samningi og fara dómstólaleiðina.

Ef þessi skipan málsins yrði ofaná, þá færi ég á kjörstað og krossaði við lið 2.

Verði sá liður ekki í boði sé ég engan tilgang í að fara á kjörstað. Ástæðan er sú að mér finnst núverandi samningsdrög nokkuð góð miðað við sögu málsins, en vanta tilfinnanlega inn í þau þann varnagla sem Ragnar Hall kom með snjalla lausn á.  

Það eru margir sem segja að við berum enga ábyrgð á Icesave. Já, ég viðurkenni að þeir hafa töluvert til síns máls lögfræðilega séð.  En svo mikið hef ég lært þessi uppgangs ár og eftirfarandi hrun, að lögfræðin geymir ekki öll svör mannlegra samskipta. 

Við erum mörg sem lítum svo á, að Icesave hafi orðið til vegna samvinnu viðkomandi ríkja, og að þess vegna hafi íslenskum bönkum verið leyft að starfa í Hollandi og Bretlandi. Það hefur auðvitað líka komið öllum að óvörum í þessum löndum, hvernig bankamenn hafa misfarið með stöðu sína og aðstöðu.

Í því ljósi er augljóst að við Íslendingar erum samábyrgir þessum þjóðum við úrlausn málsins.

icesave_-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Icesave lánin boðin grunlausum almenningi í Hollandi og Bretlandi

icesave.jpg

 

 

 

 

Hin "örugga" fjárgeymsla!

icesave_5.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Icesave, hinn skíri og betri valkostur!

 

 


"Dauðinn er ekki til", var sagt í danska sjónvarpinu

Í danska sjónvarpinu, koma inn á milli, merkilegir þættir, um hina óefnislegu tilveru.

Ég sá fyrir mörgum árum syrpu sjónvarpsþátta, um fólk sem taldi sig muna fyrri lífs tilveru.

Farið var mjög faglega í efnið. Fólkið lýsti fyrri tilveru sinni, sem átti sér stað, langt frá núverandi heimkynnum.

Það lýsti staðháttum og húsakynnum, þar sem það hafði aldrei komið, í núverandi lífi. Með slíka lýsingu að leiðarljósi, var farið á staðinn og málið kannað gaumgæfilega. Fundust margar staðfestingar á að hér var verið að lýsa haldbæru máli, sem gerði málstað þessa fólks trúverðugan og sannfærandi.

Nú fyrir stuttu voru tvær konur í danska sjónvarpinu sem lýstu reynslu sinni af því að deyja og koma aftur til lífsins.

Þær sögðu báðar að það væri enginn dauði til. Lífið hinu megin væri raunverulegt. Þetta var þeirra reynsla og ekkert gat hnikað þeirri niðurstöðu.

Við höfum nærtækt dæmi, þar sem Hemmi Gunn lýsti reynslu sinni og við vitum öll hvað hann Hemmi er einlægur og mikill sannleiksunnandi. Ekki færi hann að búa eitthvað til, alveg út í bláinn.

belive_in_magic_ab.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Gefðu ímyndunaraflinu næringu

be_the_light_ab.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Vertu kyndilberi meðal mannanna

valdimar_briem-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kyndilberi eins og Valdimar Breim sálmaskáld

Ath. Hægt er að stækka myndir með því að tvísmella

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband