Færsluflokkur: Heimspeki

Geir Haarde - fyrrverandi forsætisráðherra fyrir dóm

Við lifum undarlega tíma.

Maður sem var forsætisráðherra þegar bankahrunið skall á landinu, er dreginn fyrir dóm.

Hver er meiningin með þessu ótrúlega atferli?

Maðurinn er ekki sekur um nokkurn skapaðan hlut, heldur þvert á móti.

Hann hafði framtak í sér til að koma á neyðarlögum í hrunbyrjun, til að bjarga því sem bjargað varð.

Hvar eru allir meðráðherrarnir sem störfuðu með manninum. Rennur þeim ekki blóðið til skyldunnar?

Það heyrist ekki í neinum.

Hvernig líður fólkinu að sitja hjá og horfa á þessar aðfarir á fyrrum félaga sínum?

Þeir sem í raun eru sekir um meiriháttar glæpi, eru allir saman frjálsir menn.

Það má mikið vera ef þeir eru ekki flestir á fullu í svipuðum farvegi og fyrir hrun. Nokkrir þeirra eru reyndar með lítið milli handanna og því líklega skaðlausir að þessu leyti.

En prúður maður og drenglyndur er komin fyrir landsdóm!

Hvílíkt og annað eins.

geir_haarde_2.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Geir Haarde fyrrverandi forsætisráðherra Íslands

 


Bjarni Benediktsson og Icesave

Nú hefur það gerst, að Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur tekið af skarið og samþykkt núverandi Icesave drög.

Ég sé að sumir bregðast ókvæða við og telja hann hafa svikið flokk sinn.

Þessu er ég algjörlega ósammála.

Þvert á móti, finnst mér Bjarni hafa vaxið mikið við þessi straumhvörf.

Hann sýnir myndugleik og hugrekki, sem er nauðsynlegt hverjum stjórnmálamanni. Ekki síst flokksforingja, sem þarf stöðu sinnar vegna, að vera brautryðjandi.

Hann hefur ótal rök, til að styðja málstað sinn og hann mun vaxa í áliti hjá fólkinu í landinu.

Við þurfum miklu fleiri stjórnmálamenn af þessari tegund.

bjarni_b-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bjarni Benediktsson formaður


Icesave og InDefence

Mig langar til, á þessum tímamótum, að senda InDefence hópnum sérstakar þakkir, fyrir þeirra aðkomu að lausn Icesave málsins.

Þegar þeir gripu inn í atburðarásina var útlitið ekki björgulegt. Ríkisstjórnin ætlaði hreinlega að leggja þessar ofurbirgðar á komandi kynslóðir og gefa ekkert með öll þau rök, sem voru fyrir annarri og sanngjarnari niðurstöðu.

Sem betur fer kom þá þessi skeleggi hópur til sögunnar, sem kallast InDefence. Þeir knúðu í gegn þjóðaratkvæðagreiðslu og í dag sést hvað mikið hefur áunnist vegna þeirra inngripa.

Svo kom vandaður lögmaður, Ragnar Hall og lagði fram ákveðið varnarplagg, sem hefur fengið heitið, Ragnars Hall ákvæðið.  Þessu ákvæði er ætlað að gæta öryggis Íslendinga, svo ekki geti komið til þess að þjóðin þurfi að taka á sig óljósar ofurbirgðar, eftir því hvort málið þróast til betri eða verri vegar.

Í núverandi stöðu, er heppilegast að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram, um þann samning sem alþingi samþykkti í vikunni.

Þá fengi fólk að kjósa milli þriggja valkosta:

1. Samþykkja núverandi samning eins og alþingi hefur gert.

2. Samþykkja núverandi samning að viðbættu Ragnars Hall ákvæðinu.

3. Hafna þessum samningi og fara dómstólaleiðina.

Ég reikna með að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar myndi velja lið 2 og fá Ragnars Hall ákvæðið inn í samninginn.

InDefence hópurinn samanstendur af fólki á miðjum aldri. Einmitt það fólk sem þyngstar byrgðar mun bera af þessu máli, hvernig svo sem það verður samþykkt.  Nú þarf þessi hópur að beita sér, svo málið fái þann farsæla endi sem mér sýnist flestir líta til vonaraugum.

indefence_motmaelir_vi_bessasta_i.jpg

 

 

 

 

 

 

InDefence krefst þjóðaratkvæðagreiðslu


Icesave - fleiri hliðar málsins

Fyrst vil ég segja, að Íslensku þjóðinni ber ekki að greiða þessa skuld, sem útrásarvíkingarnir skyldu eftir sig.

Að því leyti stendur þjóðin vel, sé aðeins litið á lagalegu hliðina.

Einnig er rétt að minnast hryðjuverkalaganna sem Bretar settu á okkur.

Hins vegar má gjarnan líta á hlið Breta og Hollendinga.

Ekki báðu þeir um þessa sendingu frá Íslandi, sem leiddi til ógæfu fyrir fullt af fólki í þeirra löndum.

Reyndar hefðu Íslendingar aldrei fengið leyfi til bankareksturs í þeirra löndum, nema vegna þess að land okkar naut virðingar og var mikils metið.

Nú má vel segja, að Íslendingar hafi skyldur á móti, við lausn þess vanda.

Vandinn er sameiginlegur fyrir löndin þrjú.

_sland_-.jpg

 

 

 

 

 

 

 Ísland

bretland_-.jpg

 

 

 

 

 

Bretland

holland_-.jpg

 

 

 

 

 

 

 Holland

 

 


Fagur blómvöndur skal þér gefin

Í seinasta bloggi samfagnaði ég konu minni, sem var heiðruð fyrir langt starf í þágu Kvenfélags Fríkirkjunnar í Hafnarfirði.

Það sem vantaði með þeirri frásögn, var þessi bráðfallegi blómvöndur, sem ég hef reyndar farið höndum um, svo hann væri jafn frambærilegur og hann á skilið.

"Segðu það með blómum", segir blómakaupmaðurinn.

Margir taka undir hans orð, því að blóminn eru sú sköpun sem best lýsir hinum andlega heimi.

Þegar einhverju skal fagnað, þá eru það blómin og kvæðin sem eru verkfærin, er setja atburð í æðra ljós.

sigga_-_hei_urfelagablom_10.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Glæsilegi blómvöndurinn - punkturinn yfir atburðinn

 


Heiðursfélagi Kvenfélags Fríkirkjunnar í Hafnarfirði

Konan mín kæra var í gær gerð að heiðursfélaga í Kvenfélagi Fríkirkjunnar í Hafnarfirði eftir 50 ára þjónustu. 

Þetta er langur tími í starfi fyrir kirkjuna sína.

Þannig vill til að afi konunnar minnar, Árni Hallgrímsson og langafi minn, Eiríkur Jónsson voru báðir í sjálfboðavinnu við byggingu kirkjunnar árið 1913.

Þá var enginn kirkja í Hafnarfirði, en farið út á Garðaholt, sem var töluverð vegalengd. Flestir fóru fótgangandi á þessum fyrstu árum.

Hafnarfjarðarkirkja var byggð ári síðar.

Við hjónin höfum átt okkar kirkjulega starf öll hjúskaparárin í Fríkirkjunni og þau nálgast nú 50 ár.

Ég er þakklátur fyrir þessa látlausu kirkju, sem stendur svo tíguleg á klettinum. Hún hefur átt farsælan feril og þess er ánægjulegt að minnast, þegar litið er til baka.

Algjörir fyrirmyndar prestar hafa þjónað þar gegnum tíðina og aldrei hefur hnökra borið á starfið.

Þessa er sannarlega ánægjulegt að minnast.

 

frikirkjan_hafnarfir_i_1057406.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fríkirkjan í Hafnarfirði

 

sigga_hf_3.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Heiðursskjal eiginkonunnar sem ég er stoltur af

Ath. Tvísmella til að sjá stórar myndir


Fólk á að tala saman - með hjartanu!

Hugsið ykkur veröldina og samskiptamátann, ef allir myndu tala saman með hjartanu. Létu skilrúm eins og trúarbrögð, stjórnmálaskoðanir, kynþætti, landamæri, menntun o.s.frv. ekki eyðileggja sambandið milli manna.

Hvernig er samband milli móður og barns. Er það ekki byggt upp á gagnkvæmum kærleika. Er umhyggja móðurinnar ekki byggð á skilyrðislausri elsku til afkvæmisins, sem henni er ætlað að vernda, þar til barnið getur farið að sjá um sig sjálft.

Jú, sannarlega er og verður móðurástin tignuð, svo alt um faðmandi sem hún er. Þá er ekki þar með sagt að ákvarðanir móðurinnar séu réttar í öllum viðfangsefnum, en viljinn er eitt og hið rétta getur verið annað.

Ég segi fyrir mig að móðurástin eins og hún snýr að mér, hefur verið mér mikils virði. Verið sem verndandi hendi í gegnum lífið.

Við sækjumst mörg eftir þessum verndandi kærleika í kirkjunni okkar og vonumst til að finna hann þar. Svo eru aðrir, sem hafa sína trú og lífsgildi innra með sér og bera ekki á torg.

Hvort heldur sem er þá stendur upp úr að maðurinn er það sem í hjartanu býr. Allt annað er minni háttar.

sai_baba_andlegur_meistari.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sai Baba - Indverskur meistari.
Hann hefur lengi skrifað "Hugsanir dagsins"
og hér fyrir neðan er hugsun þessa dags.

 

Date: Sunday, January 30, 2011

THOUGHT FOR THE DAY

Wherever you may be, in whatever country, do not give room for religious differences. Do not give up your religion; adhere to your faith and tradition. When differences between religions are given up, love will develop in you. When love grows, you can have a direct vision of God. Without love, mere verbal prayers are of no avail. Realise that the Love that is present in everyone is the same. It is that common bond of Love of God that binds everyone.

Lausleg þýðing:

HUGSUN DAGSINS

 Í hvaða landi sem þú ert staddur, þá skaltu ekki gefa rými fyrir trúarlega mismunun. Ekki láta þína eigin trú lönd og leið; gættu að þinni trú og arfleifð. Þegar mismunur eða misklíð milli trúarbragða er þurrkuð út, þá kemur kærleikurinn fram í þér. Þegar elska þín vex, muntu geta nálgast Guð. Án kærleika, eru bænir til lítils gagns. Gerðu þér grein fyrir að kærleikur er til staðar í öllum og er af sama meiði hvarvetna. Það eru kærleiksböndin til Skaparans sem binda alla saman.

 


Prestar hafna vítiskenningunni

Ég tek eftir því að nokkrir bloggverjar halda á lofti, að vítiskenningin sé viðurkennd af prestum landsins. Það virðast menn gera, til að hafa fóður og ástæðu, til að gera prestum og trúarboðun þeirra, allt til miska.

Þessu vil ég mótmæla og taka upp vörn fyrir prestana. Ég gef mér það að þeir séu, allir sem einn, fráhverfir þessari einfeldningslegu og barnalegu kenningu.

Kenningu um að sumir þurfi að þola vítiskvalir í lengri eða skemmri tíma, aðallega þó til eilífðar! En aðrir, yfirleitt alltaf þeir sjálfir, ættu fyrir höndum himnaríkisvist! Þetta er í senn grátlegt og hlægilegt í senn, að til skuli vera svo sjálfumglatt fólk, einfalt og eigingjarnt.

Að nokkrum mönnum komi til hugar að þeir séu svo yfir aðra hafnir, að þeir fari til himna, en aðrir fari til vítis til að kveljast um eilífð.

Kristur gekk sjálfviljugur í ólýsanlega þrautagöngu. Lætur fólk sér til hugar koma að hann myndi óska skjólstæðingum sínum, að ganga í gegnum hið sama, og það til eilífðar - þvílík blinda.

Það þarf ekki að útlista fyrir nútíma mönnum að þessi forheimskandi kenning á ekkert erindi inn í nútimann.

Kristur sjálfur sýndi meðaumkun með öllu lífi og ekki getur þetta verið frá honum komið. Hins vegar, þegar mis vel gerðir menn, fóru að boða trú á hann fyrr á öldum, með eldibrandi og ólýsanlegri grimmd, þá var stutt í vítiskenninguna.

Ég bið kirkjurækið fólk sem og aðra áhugamenn um trúnna, að halda ró sinni. Það er eingöngu kærleikurinn sem er aðgöngumiði að betra lífi.

Fólk sem ræktar slík viðhorf, sendir sinn kærleika til allra manna og vill öllum allt hið besta. Það biður fyrir fólki og ekki síst þeim sem eru vansælir og ganga í blindni og vegvilltir.

Slíkt gott fólk vill engum það hlutskipti að kveljast, hvorki í þessu lífi né hinu næsta.

himnariki_-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Sjáið hvað himnaríki er líkt íslensku landslagi!


Ég sakna hugsjóna Sparisjóðanna.

Þegar ég flutti til Hafnarfjarðar árið 1960 var þar fyrir Sparisjóðurinn.

Þar reyndist vera innan veggja fönguleg mær og ég fékk það hlutverk að eiga með henni samleið í lífsins sjó, sem nú spannar tæp 50 ár.

Vegna þessa, kynntist ég Sparisjóði Hafnarfjarðar betur en ella væri.

Á þessum tíma var Sparisjóðurinn akkeri Hafnfirðinga. Margir leituðu þangað eftir úrlausn sinna mála.

Eins og gengur þá eru óskirnar margar og ólíkar, en þó þannig að flestir gengu ánægðir frá Sparisjóðsstjóra, sem á minni tíð hafa verið þrír, Matthías Mathiesen, Guðmundur Guðmundsson, og Þór Gunnarsson.

Flestir viðskiptamenn voru að kaupa íbúð og einhverjir lausamuni.

Þar var gjaldkeri Jón Gestur Vigfússon. Hann var samvizkusemin holdi klædd. Honum var trúað fyrir að ganga tryggilega frá öllu í lok vinnu. Mér var sagt að það hafi oft komið fyrir að hann færi aukaferð um kvöld eða nótt til að fullvissa sig um að dyrnar væru örugglega læstar!

Þetta var á þeim tímum þegar öryggisgæzla var ekki tiltæk, enginn upptökuvél og enginn sjálfvirkur búnaður til að gæta öryggis.

En það öryggi sem var til staðar í þessum Sparisjóði, var samvizkusemi starfsmannanna.

Ég þakka fyrir að sá tími var ekki komin, að starfsmenn væru skikkaðir til, af stjórnendum, að reyna að blekkja saklaust fólkið sem kom í svona stofnanir með allt sitt trúnaðartraust og bað um góð ráð.

Enginn sá fyrir hverskonar fólk myndi koma í heiminn og hasla sér völl í fjármálabyggingum og gjörbreyta öllum siðferðisviðmiðum.

Já, ég sakna þeirra hugsjóna sem Sparisjóðirnir voru byggðir á.


Heimsendir árið 2012 - enn ein heimsendaspáin...

Ég er að velta fyrir mér þessum heimsendaspám, sem reglulega skjóta upp kollinum gegnum veraldarsöguna.

Þar tel ég vera um að ræða kaflaskil í sameiginlegri andlegri reynslu þjóðanna. Einskonar ganga upp á æðra svið.

Þannig að það eigi sér stað sjáanleg umbylting í mannheimi. Hin gamla veröld líður undir lok og eitthvað nýtt og æðra fæðist.

Varðandi árið 2012 þá má vel sjá fyrir sér að mikil andleg vakning sé framundan, og að undirbúningurinn  sé einmitt þessar ægilegu hamfarir sem ríða yfir heiminn og ekki skal gleyma hamförunum í fjármálaheiminum. Þær hamfarir urðu vegna græðgi og einbeitts brotavilja fjármálamanna, sem skeyttu engu um rétt og rangt.

Auðvelt er nú að sjá, að hér á Íslandi hefði árið 2007 ekki verið ákjósanlegt, til að bera fram andleg sannindi. Þjóðin hefði ekki verið reiðubúin til að hlusta.

En á árinu 2012 er miklu líklegra að mannkynið sé búið að fá hinn rétta undirbúning og því komið með hinn rétta grunn til aukins skilnings.

Hremmingar þær sem gengið hafa yfir heimsbyggðina skapa aðstæður og gerir móttækilegar sálir reiðubúnar og sem geta þá náð andlegum framförum.

Á sama hátt og garðurinn er plægður til að gefa af sér góða uppskeru, þá þarf að umbylta og mýkja þjóðarsálina svo hún sé undirbúin til að taka á móti hærri andlegri veruleika en hún hefur hingað til verið reiðubúin fyrir.

Samkvæmt spádómum Edgar Cayce þá mun mannkyn framtíðarinnar verða andlegra en áður og ávinna sér yfirnáttúrlega hæfileika.

(Yfirnáttúrulegir hæfileikar eru að sjálfsögðu orðaleikur, því það er ekkert yfirnáttúrlegt til, nema sem ástand eða hæfileiki sem er æðri núverandi skilningi.)

Slíkt mannkyn mun þá vinna sem sameinað jákvætt afl. Þá verður hinn andlegi veruleiki ekki nein fjarlæg draumsýn, heldur raunsannindi sem hver maður játar og skilur með sínum eigin skynfærum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband