Færsluflokkur: Heimspeki
21.1.2011 | 14:44
Séra Þórhallur heldur fræðsluerindi um trúarbrögð
Ég hef í nokkur ár fylgst með séra Þórhalli sem nú er sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju.
Hann er svo fjölfróður um trúarbrögð heimsins að unun er á að hlýða. Hann er enda búin að nema slík fræði árum saman.
Hann er svo örlátur að gefa okkur tækifæri til að njóta þessa lærdóms sem hann hefur áunnið sér, með því að draga saman sitt langa nám í samþjappað form.
Þessa stundina kynnti hann Hindúatrú með fyrirlestri í gærkvöldi, sem lýkur næsta fimmtudagskvöld.
Ég er nú þegar orðinn spenntur að fá notið næstu trúarbraðgakynningar sem verður um Búddatrú.
Svo skemmtilega vill til að ég er einmitt að lesa Orðskviðir Búdda þessa dagana.
Trúarbrögðin eru leiðir mannsins til að nálgast Skaparann.
Það er sú lenska ráðandi að telja sig aðhyllast bestu trúarbrögðin og öll önnur séu skör lægri.
Þetta er algjör óþarfi. Það þarf ekkert að vera að hreykja sér í þeim efnum. Ætli maður sér að vera góður nemandi, í þeim trúarbrögðum sem maður hefur alist upp með, þá á maður erfitt verkefni framundan !
Það er t.d. ekkert einfalt mál fyrir okkur kristna menn að fylgja eftir boðskap og fyrirmælum Krists.
Á sama hátt er ekki auðvelt að fylgja eftir kenningum Búdda.
Það kemur líka í ljós að allt eru þetta leiðbeiningar í átt að ljósinu, sé það lesið og skilið eins og meistararnir bera það fram.
Það á að rækta hið góða og sanna. Slíkt er öllum erfitt á öllum tímum og í öllum löndum.
Hafnarfjarðarkirkja á fögru sumarkvöldi
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 17:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2011 | 00:59
Vegur sannleikans - Orðskviðir Búdda
Þessa dagana er á náttborði mínu, Dhammapada - eða orðskviðir Búdda, sem Njörður P. Njarðvík íslenskaði.
Það er þroskandi að lesa smávegis fyrir svefninn úr slíkri bók. Hún opnar andann, svo hann skynji nýjar lendur.
Í tveim seinustu pistlum þurfti ég að nefna hið illa, sem manninum fylgir. Var mér um megn að sitja hjá, því hneykslun mín var mikil á þeim verknaði sem til umræðu var þar.
Skoðum nú hvað Búdda hefur um slíkt að segja. Hér er hending þar sem varað er við að skaða góðan mann:
"Eins og ryk þyrlast í vindi
rekst illskan aftur á þann
er skaðar hjartahreinan mann
sannan og saklausan."
Þrátt fyrir þann útúrdúr sem ég gerði með þessum fyrrnefndu tveim pistlum, þá er mér miklu meira í mun, að beina sjónum mínum að hinu góða og göfuga.
Þar hefur Búdda sitthvað til málanna að leggja, eins og t.d. þessa hendingu:
"Að forðast allt illt
að rækta réttsýni og góðsemi
að hreinsa hugann.
Þetta er kenning þeirra
sem vaknað hafa til nýrrar vitundar."
Að lokum vil ég færa Nirði P. Njarðvík góðar þakkir fyrir að koma þessari djúpvitru bók inn á íslenskan markað.
Búdda á yngri árum - sóttist eftir friði og leitaði vizkunnar.
Dalai Lama er fyrirmyndar fulltrúi fyrir Tíbeta og fyrir Búddatrú.
Ég fór í Laugardalshöllina þegar hann var hér á síðasta ári.
Það lýsir góðvild frá þessum manni.
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 15:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2011 | 10:15
Margir saman ráðast að einum manni
Furðulegt er til þess að vita að það skuli eiga sér stað slík veruleikafyrring, að fleiri en einn maður skuli ráðast saman á einn andstæðing.
Framkoma að því tagi var óþekkt hér áður fyrr - algjört tabú - enda talin lýsa sérstökum lítilmennum.
Nú bregður svo við, oft á tíðum, að hópur manna sækir að einum. Hvílík lágkúra og siðblinda.
Nógu mikið getur hallað á, þegar sterkur maður ræðst gegn sér veikari andstæðingi. En þegar við bætist að fjöldi manna gengur gegn einum manni, þá eru siðferðisviðmið algjörlega horfin.
Hvað á þá að segja, þegar margir menn saman, sparka í höfuð liggjandi manns ?
Eru til svona margir án siðferðis og lífsgilda ?
Er komin upp lítilsilgd og ill hópdýrkun í kjölfar eiturefnanotkunar ?
Eiturefnaneytendur eru þjónar myrkraaflanna.
Eina leiðin til ljóssins er að hrista eiturhlekkina af sér og standa upp frjáls.
Íþróttir eru ein leiðin til frelsis
Góðir þegnar Íslands eru allsgáðir
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 10:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.1.2011 | 09:49
Höfuðspark er morðtilraun
Mann setur hljóðan gagnvart ólýsanlegum meinsemdum, þar sem, að því er virðist, eðlilegt fólk fer fram með vísvitandi morðtilraun gagnvart andstæðingi sínum í átökum.
Hvaða illska er þarna að verki ?
Þegar ég var ungur voru áflög alltaf nálægt þegar fólk var með víni. Það virðist vera samtvinnað að hið illa vaknar til lífsins hjá mörgum, þegar vín er haft um hönd.
Hins vegar voru aldrei viðhöfð þau meðöl að sparka í höfuð andstæðingsins. Þegar annar var fallinn í götuna þá var áflogum hætt, þar sem enginn andstæðingur var uppistandandi lengur.
Búið var að afgreiða misklíðina - hafi hún einhver verið, sem alls ekki er sjálfgefið.
Stundum eigast við bláókunnugir menn, sem ekkert hafa haft saman að sælda.
Nú á dögum bregður svo við, að sigri í áflogum er fylgt eftir með áframhaldandi barsmíðum og þá er þeim beint að veikasta hlekk fórnarlambsins, sjálfu höfðinu.
Er nokkuð annað til í dæminu, en að hér sé birtingarmynd þessara hryllilegu eiturefna, sem eru margfalt hættulegri en vínið, þó það sé víðsjárvert ?
Hvað sem veldur, þá er þetta óendanlega sorgleg þróun.
15.1.2011 | 00:27
Eru til slíkir draumar að boðskapur þeirra breyti heiminum ?
Ég var að horfa á ævintýramynd.
Þar var svo falleg stúlka sem lifði í draumaveröld. Hún trúði á ást og söng. Nálægð hennar nægði til að þeir sem voru ósáttir og fullir af depurð, náðu saman á ný með endurnýjaða ást í farangri sínum.
Hvílík breyting sem verður, þar sem sakleysi og ást brjóta sér leið, inn í heim hinna "raunverulegu" manna. Þeirra manna sem taka allar draumsýnir og jarða þær sem óraunveruleika sem ekkert gagn gera.
En það er nú eitthvað annað!
Draumar um betri heim, um elsku og sakleysi eru sannarlega raunverulegir.
Það er hollt og gott að lifa með háleitar og fallegar draumsýnir í farangrinum.
Slíkir draumar færa birtu yfir allt, "gera alla hluti nýja"!.
Draumaprinsessan og kastalinn.
Bretar segja að heimilið sé þeirra kastali.
Stundum eru draumaprinsessur af holdi og blóði.
Disney færði okkur ævintýraheiminn svo um munaði !
Og hann var og er í regnbogans litum.
Innlegar þakkir til þeirra sem gáfu okkur ævintýraheiminn.
12.1.2011 | 12:42
Er friðhelgi og frelsi í heiðri haft á elliheimilum ?
Þessi hugsun leitar á mig nú um stundir. Ekki vegna þess að ég sé á leið í slíka vist, sem maður þó veit aldrei hvenær gæti orðið að veruleika.
Pabbi minn hafði alla sína ævi verið hallur undir náttúrulækningastefnuna (þaðan fékk ég áhugann). Sem slíkur reyndi hann að borða hollan mat og gæta sinnar heilsu eftir föngum. Ég var sendur í Gamla bakaríið á Ísafirði til að kaupa heilhveitibrauð.
Hann gerði sér grein fyrir að maður á að gæta heilsu sinnar og væri í raun ábyrgur fyrir henni, eins og er í mannlegu valdi auðvitað.
Ekki minnist ég þess að hann hafi verið eitthvað í lækningalyfjum, enda heilsan góð eins og fyrr er sagt, og hann lumaði á mörgum góðum náttúrulegum ráðum, við hinum ýmsu heilsufarslegu vandamálum.
Svo gerist það þegar hann er orðin 82 ára, að hann fær slag og verður að taka sér hvíld.
Honum var útvegað pláss á elliheimili bæjarins (Tjæreborg, Danmörku) og þá brá svo við að maðurinn sem aldrei tók pillur, var nú skyldaður til að innbyrða kynstrin öll af lyfjapillum. Þetta líkaði honum ekki og neitaði að taka inn ósköpin.
Þá var honum sagt að hann yrði að taka pillurnar (ef til vill sem þakklætisvott fyrir að fá að dvelja á elliheimilinu. Hvað á maður að halda).
Pillurnar voru fjölmargar, líklega um 20 stk. á dag.
Þetta fannst mér og fleirum vera skelfileg frelsissvipting. Sérstaklega var þetta átakanlegt þar sem maðurinn vildi ekki undirgangast þessa áþján og þetta ok. Hann hafði, vel að merkja, allt sitt líf verið þessum lífsstíl fráhverfur.
Það var þyngra en tárum taki að sjá hvernig farið var með manninn á sínum síðustu dögum. Sjálfsvirðing hans og frelsi var beygt í duftið og hann í raun sviptur frelsi sínu.
Ef ég á eftir að fara á slíka stofnun þá vona ég að tekið verði tillit til minna óska, og þær virtar eins og tilefni er til. Frelsi til að velja á að vera sett í algjört fyrsta sæti.
Pillur í massavís !
Hér eru pillur dagsins herra Herlufsen !
9.1.2011 | 14:13
Barnamessa í Bessastaðakirkju - bæði fjörug og innileg
Í morgun fór ég í barnamessu í Bessastaðakirkju. Á Álftanesi býr sonur minn með stóra fjölskyldu. Þau hjónin eiga alls 5 börn. Það var ástæðan fyrir því að ég og kona mín (afi og amma), vorum þarna líka.
Í messunni í morgun var þeim börnum sérstaklega boðið sem verða 6 ára á þessu ári. Þeim var gefin falleg myndabók hverju og einu.
Það var sérstakt í kirkjunni að við kórsvæðið var uppsett kvikmyndatjald. Á það var varpað þeim texta sem syngja átti hverju sinni. Þetta hef ég aldrei séð fyrr, en finnst það mjög hentugt. Þá þarf ekki að notast við sálmabækur.
Þegar þessi litlu og saklausu börn komu upp til prestsins og fengu gjöfina afhenta þá var ánægjulegt að vera áhorfandi.
Auðvelt að skilja þau orð sem höfð eru eftir Jesús: "Leyfið börnunum að koma til mín því þeirra er Guðsríki".
Enginn kemst til himna nema vera einlægur og sannur eins og barn.
Hvenær skildi maður glata þessum eiginleika barnsins ?
Á maður eitthvað að vera að glata góðum eiginleika , sem sér manni fyrir fari til himnaríkis ?
Spyr sá sem gjarnan óskar sér að eiga samastað með himinsælunni, reyndar bæði í þessu lífi sem því næsta.
Bessastaðakirkja á fallegum sumardegi
5.1.2011 | 01:53
Jesús og aðrir andlegir meistarar
Ég var að lesa grein eftir Pawel Bartoszek stærðfræðing "Jesús var líklega til".
Hann kemst á þá skoðun að Jesús hafi verið til eftir að hafa skoðað ýmsar heimildir.
Sjá greinina hér neðanmáls.
Í því sambandi datt mér annað í hug sem styrkir þær sagnir að Jesús hafi verið meðal manna.
Má segja að hann hafi verið til vegna þess að hann kynnti til sögunnar æðra siðferði og breytni, heldur en var þekkt og viðurkennt af hans samtíma. Slík vakning verður ekki til af engu.
Það er mjög sterkur vitnisburður um að fram hafi komið andlegur meistari, sem var fær um að miðla nýjum veruleika inn í annars allt annan skilnings- og vitundarheim.
Jesús kom inn í heim þar sem æðsta réttlæti var að gjalda illt með illu. Hann kom og sagði okkur að fyrirgefa hið illa sjötiu sinnum sjö sinnum, sem í raun segir að við eigum að fyrirgefa út í það óendanlega. Þau orð hafa auðvitað vakið furðu og reiði í margra hugum.
Þetta þurfti hann að kynna, vegna þess að það er enginn lausn að standa í stöðugu stríði. Þannig verður enginn framþróun og kynþættir standa í stað, eða hjá þeim verður hnignun og afturför.
Svo er það hitt að í okkar samtíma hafa komið fram miklir hugsuðir og andleg stórmenni.
Vil í því sambandi nefna danska heimspekinginn Martinus (1890-1981). Hann talar til okkar í bókum sínum, þar sem hann kynnir til sögunnar hærri vitund og breytni, en við höfum áður fengið séð eða hlotið vitneskju um.
Þó eigum við fullt í fangi með að melta og aðlaga atferli okkar þeim boðskap sem Jesús kynnti okkur og bað okkur að fylgja.
Einnig vil ég nefna Sai Baba sem er enn í jarðneskum búning, nýlega orðin 85 ára.
Sai Baba óskar öllum Gleðilegra Jóla
Hann segir að allir eigi að iðka trú sína af einlægni, hver sem hún er. Vera fulltrúi fyrir ljósið á sínum stað í tilverunni. Kristnir menn séu góðir fulltrúar kristinnar trúar. Aðrir iðka sína trú af sömu einlægni og láta gott af sér leiða.
Kristur - Friðflytjandinn
Jesús sagði: "Sjá ég gjöri alla hluti nýja"
Jesús var í engum vafa um hver væri hans yfirvald.
Hér leitar hann styrks til að geta gengið í gegnum þjáninguna á krossinum.
3.1.2011 | 16:04
Bestu synir og dætur Íslands gangi fram.
Já, ég bið bestu syni og dætur landsins að ganga fram í styrkleika og jákvæðum anda.
Það er þörf fyrir ykkar inngrip með góðum verkum, landi og þjóð til heilla.
Of margir draga sig inn í skel og sinna eingöngu sínum nærtækustu málefnum.
En okkur vantar fleiri, sem vilja láta gott af sér leiða í stjórn á okkar málum.
Sá vettvangur sem þarf nýjan eldmóð og vinnufúsar hendur er stjórnmálavettvangurinn.
Þangað þurfa fleiri að koma til, sem finna hjá sér löngun og getu, til að byggja upp, vinna saman á þann hátt að öll bestu sjónarmið stjórnmálaflokkanna, fái þar rými og virkni.
Það er komið nóg af skotgrafavinnubrögðum, að sá stjórnmálaflokkur sem er við völd þessa stundina, setji sín mál á dagskrá án tillits til þess, að stór hluti þjóðarinnar, jafnvel mikill meirihluti hennar, er andvígur þeim aðferðum eða aðgerðum sem beitt er.
Nauðsyn sú hrópar á okkur að unnið sé með það markmið efst í huga, að öll jákvæð sjónarmið komi upp á borðið og verði með í kjarna aðgerða stjórnmálanna.
Eins og forseti landsins sagði, þá er það vilji landsmanna sem ræður, eða alla vega á að ráða. Einstaka áherslur stjórnmálamanna, sem ekki njóta almannahylli, eiga þá ekki að hafa vægi umfram byr.
Vinna fyrir Ísland
Vinna fyrir þjóðina
Forsetinn ávarpar þjóðina
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 16:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.1.2011 | 02:10
Nýársnóttin vekur hjá manni djúpa löngun um betri heim
Víða á jarðarkringlunni eru áramótinn mikilvægustu tímamót í lífi margra þjóða.
Allt okkar karp um keisarans skegg virðist svo óendanlega smátt á slíkum tímamótum.
Þegar á mann leita eilífðarspurningarnar, verða smámunir enn smærri en venjulega.
Fyrir einu ári setti ég mér heit fyrir árið 2010. Þá ætlaði ég alls ekki að koma nálægt því sem kalla má stjórnmál !
En hvað geri ég svo. Í lok þessa árs setti ég fram ósk um að Davíð Oddsson komi aftur fram á stjórnmálavöllinn og leyfi þjóðinni að njóta krafta sinna, meðan hann er enn ungur og vinnufær. Það verður að teljast, að ég þar með hafi brotið heit mitt all hressilega.
Það sem ég ber fram mér til varnar, er það, að mér finnst þessi málaleitan vera alveg raunhæf og meira að segja einstaklega knýjandi nú um stundir.
Meðal annars vegna þess að mér finnst Davíð eiga það inni hjá okkur þjóðinni, að fá uppreisn æru. Hann hefur orðið fyrir svo miklu ósanngjörnu aðkasti, eiginlega fyrst og fremst vegna þess að hann er svo mörgum kostum búin.
Einskonar öfund sem brýst fram hjá þeim sem þurfa vinnu sinnar vegna, að hafa Davíð fjarri, svo þeir sjálfir hafi meira rými og möguleika.
Þeir sem líta í kringum sig, sjá augljóslega hvað góð verkstjórn í ríkisstjórn er nauðsynleg, til að ná fram samheldni og árangri.
Hvað sem annars verður á þessu merka ári sem nú fer í hönd, þá vil ég senda lesendum bestu óskir um farsæld og góða heilsu. En góð heilsa er það dýrmætasta sem við getum átt.
Gleðilegt ár ágæta þjóð !