Færsluflokkur: Heimspeki
30.12.2010 | 12:59
Davíð Oddsson óskast til forystu í stjórnmálunum.
Davíð var á árum áður samfelldur forystumaður, bæði í borgarstjórn og síðar í landsmálunum.
Svo vel var hann liðinn að sigurganga hans fór alvarlega fyrir brjóstið á öðrum stjórnmálamönnum, sem náðu ekki eins miklum vegtillum vegna þessa.
Hrint var úr vör einni mestu rógsherferð sem sögur fara af og er þó af nógu að taka á þeim velli.
Það sem skilur á milli Davíðs og annarra stjórnmálamanna á fyrri tíð er það, að til komu óhemju ríkir menn sem vildu eignast allann heiminn. Þeir töldu sig geta keypt allt milli himins og jarðar fyrir illa fengið fé sitt. Þeir fóru hamförum gegn Davíð, sem ekki var til sölu eða þjónustu fyrir þeirra áhugamál.
En víkjum þá að stjórnmálasögunni. Hvað gerðu Þjóðverjar þegar þeir voru í mjög erfiðum málum eftir stríðið. Jú, þeir sóttu Konrad Adenauer til að stjórna uppbyggingunni. Það gerði hann frá 1949 til 1963 og kom þjóðinni í forystustöðu hvað varðar velsældir. Hann var orðin hvorki meira né minna en 73 ára þegar hann tók við völdum og hélt þeim til 87 ára aldurs !
Davíð Oddsson einn besti sonur landsins var borgarstjóri frá 1982 til 1991 utanríkisráðherra frá 2004 til 2005 og formaður Sjálfstæðisflokksins frá 1991 til 2005.
Nú er hann aðeins 63ja ára og getur þess vegna vel komið í stjórnmálin með bravör.
Fyrst Jón Gnarr gat komið sem óþekktur stjórnmálamaður, en þekktur skopmaður, og sópað að sér fylgi, þá ætti Davíð Oddsson með langa farsæla stjórnmálasögu, að geta komið og sótt fylgi sem um munar, til að koma þessari þjóð á fæturna eftir hrunið.
Við þurfum laginn verkstjóra í uppbyggingarstjórnina og Davíð hefur sannað sig sem slíkur. Öllum sem unnu með honum í samsteypustjórnunum, bar saman um það.
Davíð Oddsson á besta aldri
Heimspeki | Breytt 1.1.2011 kl. 01:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
24.12.2010 | 15:54
Karlmaðurinn fer og byggir húsið, svo kemur konan og færir líf í það.
Það er oft verið að metast um hver sé fremstur meðal jafningja.
Til að skoða málið, vil ég benda á, að við höfum öll okkar sérstaka hlutverk.
Svo haganlega er það hugsað, að karlmaðurinn vinnur hin grófari verk, en konan sér um fínlegu hliðina.
Þannig verður nafn þessarar greinar að veruleika.
Með þessa hlutverkaskipan í huga þá er augljóst að það er konan sem býr til jólahátíðina með mikilli fyrirhyggju og iðjusemi. Býr til gjafir, bakar fyrir heimilið og gætir þess að allir fái það sem þeir þurfa.
19.12.2010 | 17:08
Er hin ásættanlega niðurstaða í Icesave málinu komin ?
Ég var að hlusta á Lárus Blöndal hrl. í viðtali á Hrafnaþingi.
Lárus fór til Englands með samninganefndinni gagngert til að vera fulltrúi þeirra sjónarmiða að Íslendingar væru ekki ábyrgir fyrir Icesave skuldinni.
Honum hefur orðið töluvert ágengt, vegna þess að núverandi samkomulag er svo langt um betra en hin fyrri.
Á Lárusi er að heyra, að öllu samanlögðu vegnu, þá sé rétt að ganga til samkomulags um þessa niðurstöðu.
Ekki vegna þess að okkur sé það lagaleg skylda að greiða hana, heldur vegna þess að vandamálið sem við er að fást, er sameiginlegt fyrir löndin þrjú sem í hlut eiga.
Um daginn mælti ég með því á facebook, að við skildum halda okkur við dómstólaleiðina, En eftir að hafa hlustað á rök Lárusar, þá hallast ég að því að ljúka þessu máli og sættast þannig á að vandamálið verði frágengið með núverandi lausn.
Ég vil hvetja alla til að hlusta á þetta viðtal. Það er mjög upplýsandi.
12.12.2010 | 15:20
Markmiðið er að viðhalda jólaandanum allt árið
Er það óhugsandi ?
Já, við erum ekki orðin svo þroskuð og sterk í andanum, að slíku markmiði sé mögulegt að ná með einni tilraun (einni jarðvist).
Þá trú hef ég þó, að það sé hið endanlega takmark fyrir mannkynið.
Það gerist aðeins með þróun og tilraunum sem viðhaldið er með mikilli löngun.
Þessi veruleiki nær ekki að verða til og fullkomnast með einni jarðvíst, svo mikið er víst.
Gaman er að velta fyrir sér mannheimi með slíkan andlegan veruleika viðvarandi í þjóðfélaginu.
Þar sem allir vilja gott gera og eru í sinni hæstu andlegu stöðu.
Fullir af velvild og kærleika.
Mynd Martinusar af hinum fullkomna manni.
Þeim manni sem fyrirgefur "70 sinnum 7 sinnum" - því hann skilur orsakir allra hluta.
Hann hefur hjarta fullt af kærleika sem metur allt með þeim upphafna huga.
4.12.2010 | 16:10
Endurholdgunarkenningin var framandi í mínu ungdæmi
Ég ólst upp á Ísafirði. Þá bjó þar danskur ljósmyndari sem hét fullu nafni Jens Christian Petersen Martinus Simson. Hann var alltaf kallaður Simson í daglegu tali.
Simson var fjölfróður maður og athafnasamur. Einn af skógræktarfrömuðum Ísafjarðar. Mín fjölskylda hafði töluverð samskipti við Simson, vegna þess að pabbi var einnig danskur.
Eitt sinn gerðist það að Simson setti af stað kvöldnámskeið í fræðum nafna síns danska heimspekingsins Martinusar.
Það voru margar athugasemdirnar sem komu upp þegar Simson gaf út kver með kynningum á þróun mannsins og endurholdgun. Flest var það í einskonar aulabrandaraformi. Engin djúp hugsun, né viðleitni til að skilja viðfangsefnið.
Fyrir mitt leyti þá lít ég svo á, að það sé ekkert meira kraftaverk að fæðast mörgum sinnum, heldur en að fæðast einu sinni.
Þegar Simson hélt sína fræðslufundi þá var ég ekki komin til vits og enn síður orðinn leitandi hugur. Það gerðist síðar.
Í dag á ég ritsafnið "Þriðja testamentið" eftir danska heimspekinginn Martinus, ásamt fjölda annarra sérrita. Þar er lífsgátan skilgreind og opinberuð með auðskiljanlegum hætti, þannig að allir geta fylgst með og skilið.
Ritsafnið er framhald biblíunnar. Fyrst kemur "Gamla testamentið", síðan "Nýja testamentið" og að lokum kemur "Þriðja testamentið" eftir Martinus.
Það er algjör opinberun að lesa bækur Martinusar.
Í kenningum hans er endurholdgun með sinn fasta sess. Meirihluti trúarbragða mannkynsins hefur endurholdgun innann síns kenningakerfis.
Reyndar er það undarlegt hversu langan tíma hefur tekið að gera Íslendingum þessa sýn eðlilega. Það má skrifast á einangrun landsins á árum áður og fjarlægð við menningarstrauma heimsbyggðarinnar. Hins vegar hefur einangrunin einnig sínar björtu hliðar, því hér hefur á sinn hátt þróast meira frjálslyndi gagnvart trúarbrögðum heldur en t.d. í Danmörku.
Gaman er að segja frá því að Martinus taldi að einmitt vegna þess að hann fæddist í Danmörku, þá hafi hann haft algjöran frið til að vinna að ritverki sínu, án afskipta trúaröfgamanna. Danirnir eru svo "ligeglad", eða værukærir, að þeir láta sér fátt um finnast þó einhverjir sérvitringar séu á meðal þeirra.
Ritverk Martinusar ber nú samheitið
Þriðja testamentið
- Martinus smábækur:
- Omkring mine kosmiske analyser
- Upphaf köllunar minnar (íslensk útgáfa)
- Menneskehedens skæbne
- Páskar (íslensk útgáfa)
- Påske
- Hvad er sandhed
- Omkring min missions födsel
- Blade af Guds billedbog
- Den længst levende avgud
- Mellem to verdensepoker
- Kosmisk bevidsthed
- Juleevangeliet
- Bevidsthedens skabelse
- Ud af mörket
- Reinkarnationsprincippet
- Jordmænneskets skæbneårsag
- Livets skæbnespil
- Kosmisk glimt
- Mediation
- Hinsides dödsfrygten
- Livets vej
- De levende væseners udödelighed
- Kulturens skabelse
- Vejen til Paradis
- Djævlebevidsthed og Kristusbevidsthed
- Verdensfredens skabelse
- Tvær mjög merkilegar bækur þýddar af Þorsteini Halldórssyni:
- Leiðsögn til lífshamingju I; fyrirlestrar um andleg vísindi
- Leiðsögn til lífshamingju II; kosmisk fræðsluerindi
28.11.2010 | 20:57
Rómantísk upplifun og hátíð ljóssins
Mig langar að játa fyrir ykkur að jólahátíðin er fyrir mér gluggi inn í ljóssins veröld. Gluggi inn í sjálft himnaríki, hvorki meira né minna.
Þetta verður til með þeim hætti að ég horfi á litlu ljúfu börninn sem full tilhlökkunar bíða hinnar stóru stundar.
Þetta verður til með þeim hætti að ég sæki aðventusöngva sem kirkjan bíður upp á. Þar er fallegur söngur í öndvegi, ásamt kristilegum boðskap í bland við einlægar sögur.
Fegurð jólaljósanna bæta sínum sjarma við umhverfið, bæði úti og inni.
Flestir leggja á sig mikla vinnu til að gleðja sem flesta í kringum sig.
Ekki ber að vanþakka að gjafalögmálið sé gert virkt með þessum hætti.
Mæður sem horfa í augu barna sinna væru blindar ef þær sæu ekki hvaðan börnin eru komin.
Mæður eru mýkri verur vegna stöðu sinnar innan sköpunarverksins.
Mörg ljóð hafa enda verið ort til hinnar blíðu móður.
Falleg eru englabörnin blíð
Verndarengill barnanna er í líki móður
Englabörn eru líka af holdi og blóði
Þó að úti ís og hjarn
ögri í tröllskap sínum.
Vertu sífellt sumarbarn
með sól í huga þínum.
Guðmundur Guðmundsson
Móðurjörð, hvar maður fæðist,
mun hún eigi flestum kær,
Þar sen ljósið lífi glæðist
og lítil sköpun þroska nær.
Sigurður Breiðfjörð
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2010 | 01:09
Eru gildi samfélagsins að falla ?
Spurningin leitar á mig þessa dagana.
Eiturefnanotkun síðustu ára hjá stórum hópi manna og hræðilegar afleiðingar þess liggja ljós fyrir landslýð.
Þegar ég var að alast upp þekktist ekki annar vímugjafi heldur en áfengi.
Sígrettur urðu mjög vinsælar á stríðsárunum.
Þá þótti aldeilis fínt að reykja.
Munið þið eftir Humphrey Bogart sem alltaf var með sígrettuna í höndum eða munni. Hann var aðal töffari þess tíma.
Þá var ekki vísindalega sannað að sígrettur væru hættulegar heilsunni. Í skjóli þess var reykt í hverju húsi, þó svo að andrúmsloftið væri eyðilagt fyrir þeim sem ekki höfðu fallið fyrir tískunni og sígrettunni.
Þessa stundina er framfaraskeið hvað varðar reykingar. Þeim hefur verið úthýst úr húsum landsmanna og er það mjög jákvætt.
Öskubakkar horfnir ! Heilu samkomurnar fara fram reyklausar. Þarna eru greinileg framfaraspor hjá mannkyninu (allavega Íslendingum).
Fáeinir reykingamenn hýma undir húsvegg til að þjóna þessari löngun sinni.
En eftir stendur þessi hræðilega eiturefnanotkun, sem er ekkert minna en að bjóða myrku öflunum hönd sína og líf.
Hvert tímaskeið virðist hafa sínar skuggahliðar. Hins vegar eru möguleikar okkar tíma alveg óteljandi.
Þegar á allt er litið hefur hver maður sinn frjálsa rétt til að velja.
Auðvitað velja einhverjir ranga leið.
Það fylgir hinum frjálsa vilja að það má hafa rangt fyrir sér og ganga slíkan veg.
En það má fólk vita að rangur vegur liggur auðvitað beina leið niður í ógæfuna.
Þar verða menn að dvelja þar til þeir sjá stöðu sína í heiminum og finna þrá til að koma upp til ljóssins aftur.
Niðurstaða þessara hugleiðinga eru þær að við erum þrátt fyrir allt á framfarabraut.
Það er mér mikið gleðiefni að geta þó borið slíka staðhæfingu fram þrátt fyrir að tekið sé tillit til vímuefnavandans.
Humphrey Bogart vissi ekki betur og reykti sig í hel.
Hann dó úr krabbameini árið 1957 þá 57 ára að aldri.
Hann fæddist í desember 1899.
24.11.2010 | 02:09
Allir sem hafa afrekað mikið hafa verið draumóramenn !
Veistu að það er "vísindalega sannað" að býflugur geta ekki flogið ?
Við sem lifum þá tíma þegar vísindin eru alfa og omega allrar þekkingar, eigum í erfiðleikum með að meðtaka þetta.
Eigum við þá að hætta að trúa okkar eigin augum? Við sjáum að býflugur geta flogið, en verðum að neita því að það geti átt sér stað, vegna þess að það stangast á við lögmál vísindanna. Vísindin segja að þær geti ekki flogið. Eigum við ekki að vera skynsöm og taka þeim "sannleika" eins og við gerum við fleira frá þeirri þekkingaruppsprettu ?
Jæja, við höfum hér alla vega eina undantekningu sem sýnir fram á ekki eru öll vísindi óskeikul.
Þeir sem fara fram með "óframkvæmanlega" hugmynd og ná að hrinda henni í framkvæmd, eru þá draumóramenn og vísindamenn í senn. Þeir hafa sannað með vísindalegum aðferðum að "óframkvæmanleg hugmynd" er möguleg, þrátt fyrir að hin "heilbrigða skynsemi" segi hið gagnstæða.
Einnig er það vísindalega sannað að ekki er hægt að afla sér þekkingar nema með efnislegum skilningarvitum. Þrátt fyrir það eru dæmin óteljandi, þar sem menn meðtaka vitneskju eftir öðrum leiðum en efnislegum.
Okkar frægi og vinsæli fjölmiðlamaður Hemmi Gunn., hefur nýlega sagt frá reynslu sinni af því að deyja og koma til baka með vitneskju, sem hefur breytt honum varanlega.
Nú er Hemmi búin að fá sýna fullvissu sem enginn vísindi fá raskað. Að lífið eftir þetta líf er ekki neitt til að óttast. Það myndu margir vilja fórna stórum fjárhæðum til að njóta slíkrar upplifunar.
Thomas Edison - ungur og forvitinn.
Var talinn ófær um að læra !
Hér er hann orðin fullorðin.
Þessi mikli draumóramaður reyndist einn besti sonur Ameríku.
Ein stærsta gjöf hans til heimsins var ljósaperan.
Fáein ummæli höfð eftir hugsuðinum og uppfyndingamanninum:
"Mörg mistökin voru gerð af fólki sem var nálægt sínu takmarki - en gafst þá upp."
"Ég fann hvað heimurinn þarfnaðist - og hellti mér út í að finna það upp."
"Læknir framtíðarinnar mun ekki vísa á lyf. Hann mun heldur vekja áhuga sjúklingsins fyrir því að byggja upp líkamann. Hann mun fræða sjúklingin um mataræði og orsök og vörn gegn sjúkdómum."
"Tækifærin eru hulin fólki, vegna þess að þau eru falin og líta út eins og vinna."
"Mér hefur ekki mistekist, heldur hef ég fundið 10.000 leiðir sem sýna hvernig það tekst ekki." (um ljósaperuna)
"Hugmyndaflug þitt er aðal þröskuldurinn og í raun takmörk þín."
"Ég myndi ekki segja að mér hafi mistekist 1000 sinnum. Ég myndi segja að ég hef uppgötvað 1000 leiðir sem ekki ná settu marki."
13.11.2010 | 11:16
Kristinn trú og heilbrigð dómgreind
Ég hef alist upp við nokkuð dæmigerða trúarhefð.
Virðing mín og þakklæti til þeirra sem haldið hafa uppi kirkjustarfi, svo sem starfsmenn, kirkjukórar, organistar og prestar, sem hafa flestir verið öndvegisfólk, hefur vaxið með árunum og er mikil.
Þrátt fyrir þessa trúarafstöðu dæmigerðs Íslendings, þá hef ég aldrei afsalað mér eðlilegri dómgreind og spuruls huga.
Rétt er að taka fram að ég hef ekki lesið biblíuna orði til orðs. Frekar gripið í texta hér og þar.
Í bloggheimum er maður sem hefur oft bent á ákveðinn ritningartexta Luk. 14.26 til staðfestingar því að Jesús hafi verið stríðsmaður.
Ég hef aldrei heyrt vitnað í þennan texta í kirkjum landsins. Það er skiljanlegt, vegna þess að efni máls er óskiljanlegt sé það skilið eftir orðanna hljóðann.
Luk.14.26 hljóðar svo: "Ef einhver kemur til mín og hatar ekki föður sinn og móður, konu og börn, bræður og systur og enda sitt eigið líf, sá getur ekki verið lærisveinn minn".
Textinn, án þess að lesa í dýptina, boðar algjör vinslit foreldra og systkina og jafnvel við sjálfan sig.
Það ætti að vekja fólk upp til vitundar um að hér er talað í líkingum.
Mín skoðun er sú að hér sé textinn misskildur alvarlega og nú bið ég fólk að taka eftir.
Textinn gengur út á að elska fleiri en sína nánustu. Ekkert er auðveldara en að elska þá sem standa manni næst. Hinn frumstæðasti maður gerir það, þó svo hann gangi um rænandi og drepandi gegn öðrum sem eru honum fjarlægari.
Það þarf því ekki neina sérstaka hvatningu til að elska sína nánustu.
Grundvallarboðorðið er að við eigum að elska alla menn.
Þannig verða skyldmenni ekki undanskilin, né maður sjálfur, þeim kærleika sem á að vera viðvarandi í okkur öllum.
Hin nýja hugsun, að umvefja alla menn með kærleika á sama hátt og Kristur gerði og boðað er í lögmálinu um rétta breytni, skal taka gildi.
Elska alla án tillits til skyldleika, kynþáttar eða trúarskoðana.
Reyndar er verið að segja að við eigum að elska alla sköpunina í sínum fjölbreytileika. Ganga um með kærleikshuga hvert sem maður fer.
Hér er boðuð ekki minni hugarfarsbreyting en þeirri að fara frá hugmyndinni um flata jörð, yfir í nútímann sem þekkir ómælisvíddirnar.
Í Hábæjarkirkju er þessi þekkta mynd af Jesú Krist, þar sem hann leitar styrks í tilbeiðslu, enda veit hann hvaða píslarvætti bíður hans.
Kristur og píslarvættið
Kristur og lambið - líkindin við það þegar lambið er leitt til slátrunar
Kristur og lærisveinarnir
Kristur ~ friðflytjandinn
11.11.2010 | 00:27
Hvað táknar að vera sannkristinn
Tilefni þessara hugleiðinga er framkomin vegna þess að í bloggheimum var mér líkt við, eða álitinn vera sannkristinn maður, auðvitað gert með neikvæðum formerkjum. Mátti álíta þessa skilgreiningu þannig að viðkomandi liti á mig sem farisea, eða mann sem hreykti sér yfir aðra og þættist yfir aðra hafinn í einhverjum skilningi.
Ég neitaði því þá að vera sannkristinn, enda tel ég mig ekki vita hvað felst í þeirri staðhæfingu.
Nú hef ég reynt að kynna mér það mál nánar með því að leita í alfræðivélinni google.
Eftir að hafa flett þar ýmsum greinum þá hrökklaðist ég þaðan með óþægilega tilfinningu. Það var nefnilega enga sannkristni þar að finna, fyrir minn smekk.
Það bar mest á mönnum úr félagsskapnum Vantrú, sem voru á kafi í biblíunni til að finna einhverja texta og vers, þar sem þeir gátu síðan sannað að Jesú væri ofbeldismaður og boðaði stríð. Ekkert af þessu hugnaðist mér, svo ég sé ekki annað ráð, en að útskíra hvað ég tel sannkristni standa fyrir.
Þannig sannkristni skal ég fúslega gangast undir.
Hér eru aðalatriðin í hugmyndum mínum og trú.
1. Skaparinn er ótakmarkaður andi, skínandi ljós, sem hefur kærleika sem innsta kjarna.
2. Jesú kom í heiminn sem sendiboði æðri gilda heldur en voru við líði á hans tímaskeiði.
3. Jesú lagði áherslu á fyrirgefninguna ótakmarkaða, þegar lögmálið á hans tíma var auga fyrir auga.
4. Jesú hafnaði því að kona yrði grýtt, hann sagði: "Sá kasti fyrsta steininum sem syndlaus er".
5. Lífið er eilíft. Hringrás tímaskeiða. Þróun og þroski er takmarkið. Maðurinn fæðist endturtekið.
6. Andlegur heimur er veruleiki samhliða þessum efnisheimi.
7. Mannkynið er á sameiginlegri vegferð til aukins þroska.
8. Þjáningin er sú leið sem skapar manninn og fínpússar. Án slíks hvata væri stöðnun.
9. Röng breytni veldur þjáningum og þannig réttir maður stefnuna smátt og smátt.
10. Aðeins með því að lifa innan lögmálsins um rétta breytni, erum við á framfarabraut.
11. Maðurinn hefur frjálsan vilja, en leyndardómurinn er sá, að hann sjálfur velji það hlutskipti að afsala sér sínum vilja og velja heldur að hlýða Guðs vilja.
12. Allir menn og allir kynþættir eru jafnir gagnvart Guði, óháð trú eða trúleysi, miklu viti eða engu viti.
13. Engin Vítisvist er nokkrum manni búin. Slíkt er eingöngu til sem hugarástand þjáðs manns.
14. Við eigum að læra að elska hvert annað. Það er kjarni lögmálsins.
Læt þessa upptalningu nægja sem lýsingu á mínum hugmyndum um Guð og tilveruna þó hægt væri að hafa þetta miklu lengra. Hver maður býr sér til sína eigin skilgreiningu.
Hin efnislega sól heldur lífi í líkama okkar.
Hin andlega sól heldur lífi í sálum okkar.