Færsluflokkur: Heimspeki

Það er í lagi að vera vantrúa og hafna Guðlegri forsjá

Hitt er aftur á mót verra þegar vantrúa maður tekur upp á því að hatast útí Guðlega forsjá.

Þá eru menn komnir upp á annað stig í tilveru sinni.

Þannig er það einmitt sem ég upplifi viðmót ýmissa vantrúa manna, sérstaklega í bloggheimum.

Einnig þekki ég aðra sem líka eru vantrúa, en halda þó sínu jafnaðargeði og eru þægilegir í viðmóti og framkomu. 

Svo eru hinir fyrrnefndu. Þeir eru með stækkunargler á allt sem heitir trú og stökkva á það með látum til að koma sínum vanstilltu hughrifum á framfæri.

Það væri mikil bragarbót ef slíkir menn hægðu á sér og breyttu framkomu sinni á þá lund að lifa í friði með þeim sem hafa aðra "trú" en þeir sjálfir. Því vantrú er líka trú á sinn hátt, bara ekki með Guðlega forsjá innan sinna lífsviðhorfa.

Við eigum öll að geta lifað saman í friði án tillits til þess hvað hver og einn trúir á.

Einnig eiga svokallaðir trúaðir menn að lifa í friði án tillits til þess hvað trúin heitir sem þeir aðhyllast.

hallgrimskirkja.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Hallgrímskirkja - til heiðurs Hallgrími Péturssyni, hinu mikla sálmaskáldi.

Hér er  fyrsta erindi, eða inngangur að passíusálmunum.

Þrungið andagift hins trúaða sálmaskálds.

"Upp, upp, mín sál og allt mitt geð,

upp mitt hjarta og rómur með,

hugur og tunga hjálpi til,

herrans pínu ég minnast vil."

Hallgrímur Pétursson f. 1614 d. 1674


Er Islam eitt trúarsamfélag ?

Það berast fréttir frá löndum Islam þar sem hræðileg ódæði eru framin á fólki í þessum heimshluta. Þeirra eigin trúfélagar stunda það að drepa meðbræður sína jafnvel þegar þeir eru í helgum húsum.

Hvaða ályktanir er hægt að draga af þessari vá.

Það fólk sem fer um heiminn með ógn og skelfingu, virðist þá ekki hlífa sínum eigin nálægu bræðrum. Er það ekki merki um að hér eru á ferð ofbeldismenn sem hlífa engum, hverrar trúar sem fórnarlömbin eru. Mér finnst að það renni stoðum undir að hér er ekki trúarstríð af hendi heildarhreyfinga á hendur Vesturlöndum, heldur frekar þröngur hópur ofstækismanna sem vill láta illt af sér leiða og heggur á báðar hendur.

Er það ekki vitað, að ofstækismenn eru, hvar sem er, víðsjárverðir. Þeirra hugmyndaheimur er þannig innréttaður, að ofstækið getur þróast upp í illsku og voðaverk, hvar sem er. Hver sem trúarlegur bakgrunnur er.

Það átti sér stað á miðöldum, að trúarlegir ofstækismenn, úr kristnum jarðvegi, fóru um lönd og skildu eftir sig blóð og eyðileggingu.

Ekki hef ég orðið var við að núlifandi kristnir menn telji sig vera á sakamannabekk út af þessum meinum liðins tíma.

Það þarf að hafa í huga að þetta fólk sem elst upp í mikilli fátækt og vonleysi, er í jarðvegi neikvæðrar framvindu.

Sjáið hvernig því fólki líður hér á Íslandi, sem hefur verið órétti beitt og er að missa eigur sínar. Þetta er nokkuð sérstakt ástand, en gefur fólki tækifæri til að sjá hliðstæðu við óréttlæti úr öðrum heimsálfum, þó þar séu vandamálin af gömlum meið og viðvarandi.

Liggur jafnvel í hugmyndaheimi, sem hefur ekki kærleika sem kjarna.

Okkur hér á Vesturlöndum er með öllu fyrirmunað að skilja refsigleði sem speglast í því að þjófar eru handhöggnir og konur grýttar í hel, þar sem hegninginn er hundraðföld eða þúsundföld, miðað við afbrotið. 

Kristur sagði: "Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum". Sem betur fer var engum steinum hent í þetta sinn. Enginn sem tók Krist á orðinu, enda hefði sá hinn sami ekki verið syndlaus eftir það.

swami_byrjun_1040320.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sai Baba, helgur indverskur maður hefur þessi einkunnarorð:

Sýnið öllum kærleika

Þjónið öllum

Hjálpið öllum

Valdið engum skaða


 


Lögfræði er hún ígildi sannleikans ?

Í sakleysi mínu hef ég ætið litið á lögfræði sem verkfæri eða aðferð til að ná fram sanngirni í samskiptum manna. Þannig að sá sem er órétti beittur geti leitað fulltingis lögfræðinnar til að ná sínu markmiði.

Með þetta í huga verður maður stundum felmtri sleginn, þegar kveðnir eru upp dómar, þar sem niðurstaðan virðist hrópa á mann úr öllum áttum og segja þessa niðurstöðu úr takti við allt sem rétt er.

Einnig hefur maður margsinnis séð álitamál vera með tveim gjörólíkum niðurstöðum milli dómstiga.

Hvernig má það vera að sannleikurinn er svona falinn að hann finnist ekki hvað sem leitað er.

Lögfræðingar hafa svarið réttlætisgyðjunni hollustu sína og maður verður að gera ráð fyrir að það sé alltaf efst í huga þeirra.

Til að halda öllu til haga þá er það skylda lögmanna að verja sinn skjólstæðing og draga sérstaklega fram það sem honum er talið til tekna í umræddu máli. 

En er nokkuð hægt að segja með vissu að hærra dómstigið sé með réttari dóm og hið lægra hafi ekkert til síns máls, þegar dómum er snúið á hvolf ?

Þetta er mikið umhugsunarefni - ef maður vill hugsa um það á annað borð. Þolendur vilja um fram allt fá kveðinn upp dóm sem losar þó við kvalræði sitt.

Náist það ekki fram með lægra dómstiginu verður að setja alla sitt traust á hið hærra. Það er þó ekkert öruggt með útkomuna. Samt er mikið í húfi. Jafnvel líf og dauði, svo stærra getur vandamálið ekki orðið.

Stundum sér maður lögfræðingana takast á fyrir dómi og hefur á tilfinningunni að þetta sé nánast eins og að horfa á skylmingar.

Ef lögfræðin er aðeins leikur eða skylmingar, með orð að vopni, þá er ekki þar með sagt að sá sem er færari í skylmingum sé með réttari málstað að verja, séð frá sjónarmiði réttlætisgyðjunnar.

Enda er það almennt þannig, að menn leita til því frægari og dýrari lögfræðinga eftir því sem þeir hafa lakari málstað að verja.

Það er þekkt fyrirbæri, að þeir sem hafa mikið fé úr að moða, hafi það hugfast framar öðru,að þeir geti keypt sig frá slæmum eða óþægilegum dómi, með útsjónarsömum lögfræðingi.

Niðurstaða þessa pístils verður því sá, því miður, að ekki sé öruggt að saklaus maður fái sinn sýknudóm.

 

 

rettlaetisgy_jan_b.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

rettlaetisgy_jan_1a_1040137.jpg

 

 

 

 

 

 

 


  Réttlætisgyðjan á tveim dómstigum - hvor þeirra fellir réttlátan dóm ?

 

 


Jón Gnarr er ekki á réttum stað

Þegar ég fór að fylgjast með Jóni Gnarr var hann starfsmaður hjá Kaþólska söfnuðinum, ef ég man þetta rétt.

Alltaf gaman að heyra frá honum, hann var einlægur og hann sagði sögur svo eftir var tekið.

Ógleymanleg var sagan sem hann sagði af börnunum sem fengu ekkert að borða vegna þess að þau voru með allt of stórar sleifar í höndunum. Hins vegar fengu allir nóg að borða þegar hjálpast var að og hver mataði næsta mann ! Frábær saga.

Síðar kom tímabil uppgangs hjá Jóni í leiklistinni. Hann sýndi svo ekki varð um villst að hann bjó að snilligáfu á þessu sviði.

En þegar við svo komum til nútímans þá er þessi góði maður orðin borgarstjóri. Hann tekur við eftir frábæran feril Hönnu Birnu. Samanburðurinn verður því eins miskunnarlaus og verða má.

Það er innbyggt í flest fólk að það finnur á sér þegar það er á réttri hillu. Þá gengur lífið dásamlega. Allir ánægðir með sitt hlutskipti og engar óánægjuraddir.

Ein stærsta villa sem nokkur maður gerir er að hreykja sér hærra en efni eru til.

Nú er samsagt orðið flestum ljóst að þetta gengur ekki, að góður leikari sé í stöðu lélegs borgarstjóra. Það eru mjög slæm skipti. Hæfileikar Jóns fá ekki notið sín. Borgin líður fyrir þessa skipan mála. Það er sem sagt engum til góðs að halda þessari leiksýningu áfram.

Best hefði verið að Jón hefði hætt við framboðið á sínum tíma og aldrei sagt þessi fleygu orð: "Bara djók!" Það hefði komið í veg fyrir þennan vandræðagang sem nú er uppi.

 


Einn ríkasti maður heims lofar hin gömlu góðu gildi

Einfalt er gott.  Inn á borð mitt kom notaleg saga sem mig langar til að deila með ykkur.

Einn ríkasti maður heims (var nr. 2 árið 2009 en er á þessu ári talin nr. 3) heitir Warren Edward Buffett. Fæddist 30. ágúst 1930. Hann lærði að spara fyrir 11 ára aldur.

"Fáðu börn þín til að spara", segir hann. En þannig varð hann að lokum stjarnfræðilega ríkur.

Hann keypti lítið sveitabýli þegar hann var 14 ára, með því að bera út blöð.

Hann á enn heima í 3ja svefniherbergja húsi sínu í Omaha, sem hann keypti fyrir 50 árum þegar hann gifti sig.

Segist hafa allt sem hann þarfnast og húsið nægi honum ennþá.

"Ekki kaupa meira en þú þarfnast og leggðu að börnum þínum að gera slíkt hið sama".

Hann ekur bíl sínum hvert sem er og hefur hvorki bifreiðastjóra né aðra aðstoðarmenn í kringum sig.

"Þú ert það sem þú ert". (Engin sýndarmennska).

Hann ferðast aldrei með einkaflugvél, þó svo að hann eigi heimsins stærsta leiguflugfélag.

"Gættu alltaf að því að gera hlutina á hagkvæman hátt".

Hann er ekkert fyrir samkvæmi fína fólksins. Eftir vinnu fer hann heim og sest við sjónvarpið með poppkorn til að maula.

"Ekki sýnast, en gerðu það sem þú hefur gaman af að gera".

Warren Buffett gengur ekki með síma í vasanum og hann er ekki með tölvu á borðinu.

Fyrir fáeinum árum hittust Bill Gates (ríkasti maður heims) og Warren Buffett. Bill Gates taldi að þeir ættu lítið sameiginlegt og hann hafði aðeins gert ráð fyrir hálftíma fundi. Reyndin varð sú að hálftíminn varð að tíu tímum og Bill Gates varð stórhrifinn af manninum. Síðan hafa þeir haft mikið saman að sælda.

Warren Buffets ráðleggur ungu fólki:

A. Forðist kreditkort og bankalán. Leggið peninga til hliðar og safnið fyrir því sem hugurinn girnist.

B. Peningar búa ekki til menn, en maðurinn býr til peninga.

C. Lifðu einföldu lífi eins og þér er eiginlegt.

D. Ekki gera eins og aðrir segja, en hlustaðu samt á þá. Að lokum skaltu fara eftir eigin hyggjuviti og því sem er þér fyrir bestu.

E. Ekki kaupa tískuföt, en vertu í því sem þér finnst sjálfum notalegt.

F. Ekki eyða í óþarfa, en keyptu það sem þú telur þig nauðsynlega þurfa.

G. Þú ættir að lifa þínu lífi, án þess að láta aðra trufla þá áætlun.

"Hamingjusamasta fólkið á ekki endilega ~alla bestu hlutina~, njótið þess sem þið eigið".

Boðskapur Warren Buffett er að við skulum lifa einföldu og þægileguu lífi.

Hann gefur 99% auðæfa sinna til góðgerðamála.

Tökum þennan mann okkur til fyrirmyndar, það geta allir gert !

warren_buffet_og_bill_gates_a_1039563.jpg

 

 

 

 

 

 Warren Buffett og Bill Gates í léttum leik

 

warren_buffett_og_bill_gates_s.jpg

 

 

 

 

 

 Warren Buffett og Bill Gates í spjallþætti

 

warren_buffet_s.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 Warren Buffett - sérstakur maður !

 

 

warren_buffet_likur_halldori_jonssyni_a.jpg

 

 

 

 

 

  Á þessari mynd minnir hann mig mjög

  á hinn mikla bloggara

  Herra Halldór Jónsson verkfræðing !

 

 


Einstaklingarnir og heimilinn eru undirstaða þjóðfélagsins

Nú um stundir hriktir í heimilum landsmanna.

Fjöldi fólks berst við hungurvofuna - hvorki meira né minna.

Það eru hörmuleg tíðindi.

Ég var að lesa innlegg Hrannars heimspekings um stjórnarfarið í landinu og hann kemst að því að hér sé kommunismi við líði. Ekki upplífgandi greining, en að mörgu leiti rétt.

Það er þó enn sem komið er frjáls skoðanaskipti og því er varpað fram mörgum vinklum á stjórn landsins og hvar eigi að staðsetja hana.

Mér skilst að kommunismi hafi velferð allra þegna sinna sem markmið. Ef svo er í raun þá þarf miklu að breyta til að slíkur kommunismi sé orðin stjórnfastur hér á landi.

Reyndar er það svo að jafnvel Norður Kórea er ekki einu sinni kommunistaríki þegar haft er í huga að stór hluti þegna þess ríkis njóta ekki lágmarks næringar til að halda heilsu.

Þar fer orka ríkisins í að hervæða landið og þegnarnir verða að bíða með að borða þar til því markimiði er náð.

Svo er það spurning hvort ríkið hafi þá einhverja þegna til að manna hernaðarstarfið þegar þar að kemur. Ef til vill leysa þeir það vandamál með því að þeir sem geta stundað hernað fái þá örugglega að borða.

Mikil blessun er að búa í herlausu landi og mega segja hug sinn um stjórnarfarið og allt annað, þó svo að margir misbjóði hinu frjálsa orði, með óviðunandi orðavali.

 

 

a_happy_home_is_heaven_on_earth_a_b_c_d_e_1038659.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hamingjusöm heimili eru undirstaða fyrir farsælt þjóðfélag

 

 


Kristinn siður hefur reynst þjóðinni happadrjúgur

Kristinn siður hvetur til sáttfýsi og mannkærleika.

Kristinn siður er mannbætandi.

Kristinn siður er bindiefni þjóðfélagsins.

Kristinn siður er siðbætandi.

Kristinn siður er siðmennt okkar tíma (orð sem andstæðingarnir hafa tekið inn í sína málnotkun).

Þegar ég var að alast upp þá fór ég oft í fríkirkjuna Salem á Ísafirði. Einnig á kvöldsamkomur í Herkastalanum. Þessar heimsóknir gerðu mér ekkert annað en gott. Varð mér til blessunar.

Þar fékk ég efni til umhugsunar á uppvaxtarárunum.

Þessi grunnur hefur fylgt mér alla tíð síðan.

Ég tek eftir því að það er mikill fjöldi fólks sem virðist feiminn við að viðurkenna tengsl sín við trú, þó slíkt ætti ekki að vera málefni sem sé neinum manni til minnkunnar, nema síður sé.

Ekki svo að skilja að trúmál séu einn farvegur, heldur eru þar margar leiðir. Enda segir Kristur: "Í húsi mínu eru margar vistarverur".

Einnig er sagt að það liggji allir vegir til Rómar, í merkingunni að þó leiðirnar séu margar sé áfangastaðurinn einn og hinn sami fyrir alla.

holskirkja_bolungarvik_7_screens.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Hólskirkja Bolungarvík á fögrum degi.


Davíð Oddsson er sá eini sem sá í gegnum peningamennina !

En vegna þess að Davíð var ekki til sölu og ekki var hægt að kaupa hans fylgispekt, þá gat sá maður sem hafði keypt Ísland og gat gengið í alla þá sjóði sem til voru í landinu, sigað gervallri þjóðinni beint á Davíð.

Það var gert með hjálp fjölmiðla og stjórnmálafla sem peningamaðurinn hafði keypt sér til fylgilags og stuðnings. Með því fólki sem var pólitískt á móti Davíð.

Þjóðinni var kennt að hatast út í þann mann sem í reynd var sá eini sem stóð í fæturnar gegn peningaöflunum. Þvílík þversögn að þjóðin skuli hafa meðtekið menn mammons og hafnað Davíð.

Sjá menn ekki líkinguna við eitthvað frá fornum tíma?

Nú loksins er að koma upp á yfirborðið, hin hrottalegustu mál, sem eru svo ótrúleg og yfirgengileg, að ef einhver hryllingssöguhöfundur gæti upphugsað  þannig atburðarás, þá yrði hann fullsæmdur af.

Sýn Davíðs á peningamennina er hér með staðfest og vonandi opnar það augu Íslendinga fyrir því hver er hinn raunverulegi landsfaðir, sem sér og skilur og finnur til með þjóð sinni.

 


Trúarbænir Íslendinga

Við eigum mikinn fjársjóð Íslendingar í bænaversum.

Hafi maður á takteinum eina eða tvær bænir sem hægt er að fara með sér til sáluhjálpar, þá er vel. 

Hér eru fáein vers, auðveld og létt að muna.

Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi faðir þér ég sendi,
bæn frá mínu brjósti sjáðu
blíði Jesú að mér gáðu.

Ásmundur Eiríksson

--

Nú er ég klæddur og kominn á ról,
Kristur Jesús veri mitt skjól,
í guðsóttanum gef þú mér
að ganga í dag svo líki þér.

Höfundur ókunnur

--

Kvöldabænir sem eru í senn stuttar og einlægar og auðvelt er að muna, eru ætíð vinsælar sem nesti inn í svefninn.

Vertu nú yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.

Sigurður Jónsson

--

Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.

Ókunnur höfundur

--

Í þeim faraldri sem nú gengur yfir til að leggja stein í götu kristinna gilda, er mér fyrirmunað að skilja hvað þessi fallegu vers geta gert nokkrum manni annað en eitthvað sérstaklega hugljúft og háleitt.

_thli_arkirkja_-_stytta_2_1036358.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Engill við Úthlíðarkirkju

 

 


Trúleysi er mótvægi við fornaldar viðhorf um Vítisvist

Ég hef fulla samúð með trúlausu fólki. Ég veit að það fer mikils á mis í sínum heimspekilegu hugleiðingum í leit sinni að hamingju.

Hins vegar skil ég vel að fólk hafi varpað trúmálum burt, þegar það hefur orðið vitni að Vítiskenningu kirkjunnar í fornöld og samsamar þeirri kenningu við daginn í dag.

Vítiskenningin er ekki viðtekin sannindi í trúmálum dagsins, leyfi ég mér að vona. Má vera að eitthvað sé hægt að finna hana í jaðar trúarhreyfingum.

Samkvæmt Martinusi er ekkert Víti til nema sem hugarástand hvers og eins.

Þegar talað var um í gamla daga að börn færu ekki til himna ef þau væru ekki skírð, þá bið ég fólk að taka það ekki hátíðlega á okkar tímum. Þetta er birting ófullkomleikans í hæstu líkingu. Þá var jörðin sögð flöt og vera miðpunktur tilverunnar. Þá var ekki leyfilegt að hafa aðrar skoðanir en viðteknar voru af valdastéttinni á þeim tíma.

Á okkar dögum sjáum við öfgar frá þessum tíma í þeim stefnum sem voru ráðandi á síðustu öld. Kommúnismi var hugsjón sem sett var í framkvæmd með hörmulegum afleiðingum. Hugsjónin um jafnræði og að riðja í burtu fátækt er og verður alltaf hugsjón sem vinna skal að. En í meðförum skammsýnna manna fer margt á versta veg. Þegar völd eru fenginn þá á að yfirbuga alla gagnrýni með ofbeldi og þá er stutt í ragnarök.

Nasismi og fasismi eru svo annað birtingarform þar sem illskan var dýrkuð algjörlega. Það voru óhugnanlegir tímar sem vonandi koma aldrei aftur.

Mig langar til að enda þessa hugleiðingu á þeirri ósk að Ísland, þetta litla góða land verði land með hlutverk.

Hér er svo mikið af góðu fólki sem vill láta gott af sér leiða.

Það þarf að læra að geta unnið með öðrum að sínum hugsjónum um betri heim. Með því að allir sameini krafta sína til góðra verka, án tillits til stjórnmálaflokka og trúmálaskoðana. Hér eru frjáls skoðanaskipti sem er góður grunnur til að byggja á og í því málfrelsi mun þróunin til betri heims ná að skjóta rótum.

martinus_sympol_faerdige_maenneske_a.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er mynd eftir Martinus um hinn fullkomna mann.

Maður sem fyrirgefur út í hið óendanlega.

Sá sem fyrirgefur, hann skilur.

(Þetta vita allar mæður, allavega þegar þeirra eigin börn eiga í hlut)    

_safjar_arkirkja_kristslikneski_2_1035075.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er Kristur (Ísafjarðarkirkja) höfundur trúarbragða Íslendinga.

Sá sem fyrstur kenndi okkur að fyrirgefa út í hið óendanlega (70x7 sinnum á dag)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband